1120. spurningaþraut: Hér eru 10 og þó 12 spurningar um hvaðeina norskt

Þessi þema þraut snýst um Noreg. Og fyrri auka­spurn­ingin er þessi:

Hvað heitir norska konan sem sjá má á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver vann Eurovision-keppn­ina með yfir­burðum fyrir Norðmenn árið 2009?

2.  Í íshaf­inu nokkurn veg­inn milli Norður-Noregs og Sval­barða er svo­lítil eyja sem Norðmenn hafa ráðið yfir frá 1920. Byggð er þar engin þótt vís­inda­menn haf­ist þar stundum við stund og stund. Eyjan er kennd við ákveðið dýr. Hvað heitir hún?

3.  Á árunum 1965-1985 var ein fræg­asta kvik­mynda­leik­kona heims norsk. Hún lék í alls­konar myndum og sjón­varps­þáttum — þar á meðal um hina sænsku Vest­ur­fara — en var þekkt­ust fyrir hlut­verk sín í myndum hins svip­mikla sænska leik­stjóra Ingmars Bergmans. Þau áttu reyndar í sam­bandi lengi vel og eign­uð­ust dóttur saman Leik­konan hefur á seinni árum leik­stýrt myndum með góðum árangri. Hvað heitir hún?

4.  Hver er óhætt að segja að sé fræg­asti mál­ari Norð­manna fyrr og síðar?

5.  En fræg­asta tón­skáld þeirra?

6.  Þrír Norðmenn hafa fengið Nóbels­verð­launin í bók­menntum. Einn var skáld­sagna­höf­undur sem skrif­aði um Gróður jarðar, annar var karl sem skrif­aði aðal­lega leik­rit, hinn þriðji kona sem skrif­aði mik­inn bálk mið­alda­sagna um Kristínu Lavr­ants­dóttur. Hvað hétu þessir Nóbels­höf­undar þrír? Þið fáið stig fyrir tvö rétt nöfn, en Hol­men­kollen-stig fyrir öll þrjú.

7.  Senni­lega var allra vin­sæl­asti rit­höf­undur Norð­manna á 20. öld önnur sem líka skrif­aði bálk sagna frá mið­öldum. Sú kona var aldrei nefnd í tengslum við Nóbels­verð­laun en aðdá­endur hennar létu sér það í léttu rúmi liggja. Hvað nefnd­ist sagna­bálk­ur­inn hennar? 

8.  Í byrjun des­em­ber á hverju ein­asta ári bein­ist nokkur athygli ævin­lega að Noregi, eða öllu heldur Osló, þegar þar fer fram ákveðin athöfn. Gestir koma þá jafnan til borg­ar­innar og haldin er veisla, en fáeinir gest­anna eru reyndar stundum nokkuð umdeildir í augum sumra. Hver er að ger­ast?

9.  Hversu margir eru Norðmenn nokkurn veg­inn? Eru þeir 1,5 milljón — 3,5 millj­ónir — 5,5 millj­ónir — 7,5 millj­ónir — eða 9,5 millj­ónir?

10.  Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Noregs?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Alex­ander Rybak.

2.  Bjarn­arey.

3.  Liv Ullmann.

4.  Munch.

5.  Grieg.

6.  Knut Hamsun, Björn­sterne Björns­son og Sigrid Undset.

7.  Ísfólkið.

8.  Afhend­ing frið­ar­verð­launa Nóbels.

9.  Norðmenn eru um 5,5 millj­ónir.

10.  Jonas Gahr Støre. Þið ráðið hversu nákvæmt þið teljið nafnið þurfa að vera!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Mette-Marit krón­prinsessa Norð­manna.

Á neðri mynd­inni er sjálfur Sogn­fjörður.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár