Var ekki reiðubúinn til þess að viðurkenna eigin mistök

Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son hefur tjáð sig á Instagram um umfjöllun Heim­ild­ar­innar en þar segir hann að þegar hann kom til Íslands eftir að hafa setið í gæslu­varð­haldi á Spáni hafi hann ekki verið reiðu­bú­inn til þess að horfa fylli­lega í eigin barm og við­ur­kenna eigin mis­tök fyrir sjálfum sér – hvað þá allri þjóð­inni. „Ég greindi ekki rétt frá öllum þáttum máls­ins og varð­andi aðra þætti lét ég það eftir mér að segja ekki alla sög­una. Ég sé eftir því.“

Var ekki reiðubúinn til þess að viðurkenna eigin mistök
Fannst hann til­neyddur til að tjá sig Kristján Einar seg­ist eiga enn nokkuð í land í bata­ferl­inu. „Ég var á slæmum stað og taldi mig ekki til­bú­inn til að ræða mín mál eða opna mig um mis­tök mín. Engu að síður tók ég ákvörðun, að mér fannst til­neyddur, um að gera einmitt það í þeirri von að áreitið myndi minnka.“ Mynd: Instagram

„Vegna umfjöll­unar fjöl­miðla um þann dóm sem ég hlaut í nóv­em­ber í fyrra tel ég rétt að leið­rétta og útskýra betur þau ummæli sem ég hef látið frá mér falla varð­andi það mál.“

Þetta segir Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son, eða Kleini eins og hann er stundum kall­aður, á Instagram-síðu sinni í dag. 

Kristján Einar var dæmd­ur í tæp­lega fjög­urra ára skil­orðs­bund­ið fang­elsi fyr­ir rán og til­raun til ráns í fyrra á Spáni. Hann sat í gæslu­varð­haldi í átta mán­uði og ját­aði sök á end­an­um og kom til Ís­lands. Heim­ildin greindi frá því í morgun að þær sögur sem hann sagði við heim­kom­una um brot sín og afplán­un hefðu ekki al­veg gengið upp mið­að við dóm­inn í máli hans.

Greindi ekki rétt frá öllum þáttum málsins

Kristján Einar segir í færslu sinni að þegar hann komst loks­ins aftur heim til Íslands eftir átta mán­aða dvöl í gæslu­varð­haldi á Spáni hafi hann upp­lifað gríð­ar­lega utan­að­kom­andi pressu að segja sögu sína, ekki síst frá fjöl­miðlum. 

„Ég var á slæmum stað og taldi mig ekki til­bú­inn til að ræða mín mál eða opna mig um mis­tök mín. Engu að síður tók ég ákvörðun, að mér fannst til­neyddur, um að gera einmitt það í þeirri von að áreitið myndi minnka.

Á þeim tíma var ég hins vegar ekki reiðu­bú­inn til þess að horfa fylli­lega í eigin barm og við­ur­kenna eigin mis­tök fyrir sjálfum mér – hvað þá allri þjóð­inni. Ég greindi ekki rétt frá öllum þáttum máls­ins og varð­andi aðra þætti lét ég það eftir mér að segja ekki alla sög­una. Ég sé eftir því,“ skrifar hann. 

Á nokkuð í land í bataferlinu

Kristján Einar heldur áfram: „Breysk­leiki er eitt­hvað sem allir ættu að þekkja og á þessum tíma var ég ein­fald­lega ekki nógu sterkur til þess að láta dæma mig út frá mis­tökum sem ég gerði á mínu veikasta augna­bliki.

Ég var ekki kom­inn á þann stað sem ég er núna, sem er betri staður. Engu að síður geri ég mér grein fyrir því að ég á enn nokkuð í land í mínu bata­ferli og er stað­ráð­inn í því að halda þeirri veg­ferð áfram með aðstoð minna nán­ustu,“ skrifar hann í lok færslu sinnar. 

Hægt er að lesa umfjöllun Heim­ild­ar­innar um mál Krist­jáns Einars hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    !!eigin mistök!! Þessi gaur þarf auðsjáanlega að komast á aukið pýpi ,áur en bata ferlið hefst.Gangi þer vel
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár