„Ótímabært“ að fjalla um áætlaðan heildarkostnað höfuðstöðvanna

Stjórn­endur Lands­bank­ans vilja ekki gefa upp hver sé áætl­aður heild­ar­kostn­aður við bygg­ingu nýju höf­uð­stöðv­anna í miðbæ Reykja­víkur. Það er þó ljóst að hann verður meiri en 11,8 millj­arðar, líkt og ráð var fyrir gert árið 2019.

„Ótímabært“ að fjalla um áætlaðan heildarkostnað höfuðstöðvanna
Nátt­úru­legt Hönnuðir nýrra höf­uð­stöðva Lands­bank­ans, C.F. Møller og Arkþing Nordic, sóttu inn­blástur í fjöl­breyti­leika íslensks kletta­lands­lags með sínum gjótum og gjám, láréttum lögum og lóð­réttum. Hundruð tonna af stuðla­bergi klæða bygg­ing­una. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stjórn­endur Lands­bank­ans vilja ekki gefa upp hver sé nú áætl­aður heild­ar­kostn­aður við bygg­ingu nýju höf­uð­stöðv­anna í miðbæ Reykja­víkur. Það er þó ljóst að hann verður meiri en 11,8 millj­arðar, líkt og ráð var fyrir gert árið 2019.

„Við teljum ótíma­bært að fjalla um áætl­aðan heild­ar­kostnað, þar sem enn á eftir að semja um til­tekin atriði sem geta haft áhrif til hækk­unar eða lækk­unar,“ segir Rúnar Pálmason, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bank­ans, um hvað nýjar höf­uð­stöðvar rík­is­bank­ans í mið­borg­inni muni kosta. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bank­inn telur umfjöllun um kostn­að­inn ótíma­bæra. Nákvæm­lega sömu svör feng­ust við fyr­ir­spurn Kjarnans í fyrra.

Síðast feng­ust kostn­að­ar­á­ætl­anir upp gefnar í árs­lok 2019 eða fyrir vel yfir þremur árum. Þá var gert ráð fyrir að kostn­að­ur­inn yrði 11,8 millj­arðar króna, án verð­bóta. „Frá því þessi áætlun var gerð hefur bygg­ing­ar­vísi­tala hækkað um 24,5 pró­sent,“ útskýrir Rúnar í skrif­legu svari sínu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. „Þá …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár