Einni áhrifaríkustu loftslagsaðgerðinni „mjög lítill gaumur gefinn“

Heild­ar­losun á Íslandi jókst um 6 pró­sent milli áranna 1990 og 2021 og er losun frá land­notkun þar mest áber­andi. Allir vilja rækta skóg en end­ur­heimt vot­lendis fær litla athygli – fyrir utan að um vægi hennar er rif­ist – þrátt fyrir að vera aðgerð sem skila myndi miklu.

Einni áhrifaríkustu loftslagsaðgerðinni „mjög lítill gaumur gefinn“

Hvort sem litið er til los­unar á beinni ábyrgð Íslands eða heild­ar­los­unar, þar sem land­nýt­ing og stór­iðja eru með­taldar, jókst hún á milli áranna 2020 og 2021. Heild­ar­losun hefur í raun auk­ist um 6 pró­sent frá við­mið­un­ar­ár­inu 1990. Þar spilar losun frá upp­þorn­uðu vot­lendi, mólendi eins og það heitir þá, stærstan þátt, eða rúm­lega 60 pró­sentum í bók­halds­flokknum land­notkun og skóg­rækt. 

Fram­ræs­ing vot­lendis síð­ustu ára­tugi hefur aukið á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi. Votlendi hefur hingað til verið ræst fram í ýmsum til­gangi, meðal ann­ars til að búa til grösug tún eða land til ein­hvers konar rækt­unar.

En mörg þess­ara grös­ugu túna eru ekki lengur nýtt sem slík, og sum hver hafa víst aldrei verið nýtt í þeim til­gangi. Þau hafa þó mörg hver ef til vill nýst sem haga­beit fyrir hross, að minnsta kosti annað veifið.

Upp, upp með skófluna

Það þótti þjóð­þrifa­verk á árum áður að grafa skurði og …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MM
    Markus Moller skrifaði
    Það er skaði að blaðamaður hefur ekki haft samband við stjórn Votlendissjóðs og spurt hvers vegna hann liggur í dvala. Mér skilst að það strandi á því að vottunarferlar verði viðurkenndir og eins hlýtur að þurfa sérstakt leyfi til að nýta aðgerðir, sem snúa að landnotkun, á móti skuldbindingum um að draga úr losun sem telst undir beinni ábyrgð Íslands. Að þessum málum afgreiddum er augljóst að gefa allt í botn. Það hlýtur að vera hægt að fá bændur til að spila með upp á hlut í því sem sparast í heimildakaupum. Þurrmýrar eru hins vegar takmörkuð auðlind (og skógrækt sennilega líka), en með því að nýta þær má vinna tíma.
    0
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Takk fyrir frábærlega vel unna grein, Sunna Ósk. Þurfum að hvetja sveitarstjórnarfólk til að fylgja lögunum eftir, samanber: „Votlendi nýtur verndar samkvæmt náttúruverndarlögum og því má ekki raska nema að brýna nauðsyn beri til. En í dag er ekkert eftirlit með framræslu og ekki gripið til neinna viðurlaga, segir Jóhann. Eftirlitið er á höndum sveitarfélaga sem hafi lítið sinnt því hlutverki sínu. „Menn komast því í raun upp með að ræsa land fram eins og þeim hentar, oft undir því yfirskini að verið sé að hreinsa eldri skurði.”
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár