Hátíð hirðarinnar, Svartfugl og ólátabelgirnir í Ólafi Kram

Hér má sjá sam­an­tekt Heim­ild­ar­innar á áhuga­verðum menn­ing­ar­við­burðum sem framundan eru. Tón­leikar, leik­sýn­ingar og svo marg­vís­legir við­burðir Barna­menn­ing­ar­há­tíðar eru á meðal þess sem er á döf­inni þessa vik­una.

Hátíð hirðarinnar, Svartfugl og ólátabelgirnir í Ólafi Kram

Svartþröstur

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? Frum­sýn­ing 21. apríl kl. 20
Miðaverð? 7.200 kr.

Svart­þröstur eftir David Harrower fjallar um mið­aldra skrif­stofu­mann sem fær heim­sókn frá ungri konu. Núna eru bæði vissu­lega orðin full­orðin, en þegar hann var á hennar aldri – um 27 ára, var hann í sam­bandi við tólf ára stelpu – sem nú stendur fyrir framan hann, orðin full­orðin kona, og er komin til að gera upp for­tíð barns­ins sem hún var. En for­tíðin mark­aði þau og þótt bæði hafi unnið ein­hverja sjálfs­vinnu og mað­ur­inn afplánað fang­els­is­dóm eiga þau enn margt óupp­gert. Málið ruglar þau líka enn í rím­inu – hin full­orðna kona áttar sig á að þetta var mis­notkun, en um leið býr enn í henni tólf ára stelpan sem var ást­fangin af þessum kval­ara sínum.

David Harrower er eitt fremsta leik­skáld Skota síð­ustu ára­tug­ina, en það er Vignir Rafn Val­þórs­son sem þýddi verkið og leik­stýrir því og þau Ást­hildur Úa Sig­urð­ar­dóttir og Valur Freyr Ein­ars­son fara með aðal­hlut­verkin. Verkið var kvik­myndað fyrir nokkrum árum undir titl­inum Una, með þeim Rooney Mara og Ben Mendelsohn í aðal­hlut­verkum. Margir Íslend­ingar kann­ast svo vel við leik­stjóra mynd­ar­innar, Benedict Andrews, sem leik­stýrt hefur fjölda verka hér á landi og nú síð­ast Ellen B og Ex í Þjóð­leik­hús­inu.


Jón Ólafs – afmælistónleikar

Hvar? Eldborg, Hörpu
Hvenær? 22. apríl kl. 20
Miðaverð? 5.990–12.990 kr.

Jón Ólafsson varð nýlega sex­tugur og heldur upp á stóraf­mælið með tón­leikum í Hörpu, þar sem fjöldi tón­list­ar­manna sam­fagnar honum á sviði Eld­borgar.  Þar má nefna Nýdönsk, Pál Óskar, Valdimar, Möggu Stínu, Hildi Völu, KK og Possi­billies.

Þeir sem hafa fylgst með íslenskri tón­list und­an­farna ára­tugi þekkja Jón vita­skuld úr hljóm­sveitum á borð við Nýdönsk, Bítla­vina­fé­lagið og Sálina hans Jóns míns, fyrir utan sól­ó­feril og fjöl­breyttan feril í fjöl­miðlum og sem upp­töku­stjóri og hjálp­ar­kokkur ótal tón­list­ar­manna.

„Það fór auð­vitað margt í gegnum haus­inn á manni þegar þessir tón­leikar voru komnir á dag­skrána. Hverjir eiga að spila?  Hverjir eiga að syngja?  Hvaða lög skal velja?“ segir Jón um und­ir­bún­ing­inn.

Sam­verka­menn­irnir eru svo blanda af gömlum kunn­ingjum og nýjum sam­starfs­mönnum.

„Hljóð­færa­leik­ar­arnir eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið traustir sam­starfs­menn um ára­bil og geta bæði spilað og raddað eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn.  Hvað varðar söngv­ar­ana ákvað ég að fá að mestu leyti inn fólk sem hefur ekki sungið lög eftir mig áður, svona til að gæða þau nýju lífi í stað þess að fara bara í nostal­g­í­una. Svo syng ég eitt­hvað sjálfur því þetta er nú auð­vitað hinn full­komna sjálfs­há­tíð!“

Viku síðar verða svo aðeins minni og lág­stemmd­ari afmæl­is­tón­leikar á Græna hatt­inum, þar sem Daníel Ágúst verður sér­stakur gestur, en þeir tón­leikar fara fram laug­ar­dag­inn 29. apríl.


Barnamenningarhátíð 

Hvar? Víða um höf­uð­borg­ar­svæðið
Hvenær? Er þegar hafin og stendur yfir fram yfir 23. apríl.
Miðaverð? Ókeypis.

Barna­menn­ing­ar­há­tíð í Reykavík er haldin í apríl ár hvert, en í kjöl­farið hafa ófá sveit­ar­fé­lög fylgt í kjöl­farið að eigin frum­kvæði og nú er sömu­leiðis barna­menn­ing­ar­há­tíð í Garðabæ og í Kópavogi um svipað leyti og úti á landi er útlit fyrir slíkar hátíðir seinna á árinu.

Leið­ar­ljós hátíð­ar­innar í Reykja­vík eru gæði, marg­breyti­leiki, jafn­ræði og gott aðgengi að menn­ingu barna, með börnum og fyrir börn. Vett­vangur hátíð­ar­innar er borgin öll og fara fjöl­breyttir við­burðir fram í grunn­skólum, leik­skólum, frí­stunda­mið­stöðvum, menn­ing­ar­stofn­unum, lista­skólum og víðar. Barna­menn­ing­ar­há­tíðin rúmar allar list­greinar fyrir börn og fjöl­skyldur þeirra og frítt er inn á alla við­burði.

Meg­in­þema hátíð­ar­innar í ár er friður, en það voru þær Vigdís Haf­liða­dóttir og Ragn­hildur Veig­ars­dóttir úr hljóm­sveit­inni Flott sem sömdu lag hátíð­ar­innar í sam­starfi við börn í 4. bekkjum í Reykja­vík, sem veltu fyrir sér spurn­ingum um frið, allt frá innri friði hvers og eins til heims­friðar.


Ólafur Kram / útgáfutónleikar – EKKI TREYSTA FISKUNUM

Hvar? Húrra
Hvenær? 22. apríl kl. 19.30
Miðaverð? 1500 kr. (eða það sem veskið leyfir)

Óláta­belgirnir í Ólafi Kram unnu Mús­íktil­raunir fyrir tveimur árum og munu nú slá til helj­ar­innar tón­list­ar­veislu á Húrra til að fagna útgáfu fyrstu breið­skífu sinnar, EKKI TREYSTA FISKUNUM. 

Þeim til halds og trausts verður frýni­legt föru­neyti af lista­mönnum sem eiga það öll sam­eig­in­legt að Ólafur Kram elskar allt sem þau gera, enda treysta þau heldur ekki fisk­unum. Því er mælt með að fólk reimi á sig dans­skóna og helli tvö­földum í augn­tóft­ina, að sögn Kram­verja, sem mæta ásamt þeim Kusk & Óvita, Rakel og Sucks to be You, Nigel.

Fyrir þá sem lesa nöfn bara í hefð­bund­inni röð er svo rétt að geta þess að Ólafur Kram aft­urá­bak er Mark Ruffalo, sá ljúfi eðal­leik­ari og græni risi, sér­legur vernd­ari sveit­ar­innar. En hvers vegna er ekki hægt að treysta þessum fiskum?

„Stefnan með tón­leik­unum er að vekja athygli á til­lögu þeirra til Alþingis er kemur að fiskum á okkar guðsvol­aða skeri,“ segir trommar­inn Sævar Andri.

„Það sem Ólafur Kram biður okkar ást­kæru lands­menn um er að leyfa hug­anum aðeins að reika og rissa upp mynd af þess­ari para­dís: Heimur þar sem börn okkar geta ráfað um göt­urnar án nokk­urs ótta við það að á hverju götu­horni gæti leynst mar­hnútur í ljós­blárri skyrtu með það mark­mið að selja þeim draum­inn um frjálsan markað. Kobbi Kló þyrfti ekki að lifa í ótta við að 12 ára vand­ræða­gemsi upp­nefni hann þorsk­haus og hann þurfi þar með ekki að greiða tugi þús­unda fyrir sál­fræði­tíma, sem ríkið hefur ekki tök á að nið­ur­greiða vegna stuðn­ings við sjáv­ar­út­gerð­ar­fé­lög lands­ins. Þetta og svo margt fleira gæti orðið okkar veru­leiki ef við tökum ekki af skarið og dæmum þessa drýsla sjáv­ar­ins í útlegð,“ segir trymb­ill­inn og ítrekar að lokum enn og aftur: „Ekki treysta fisk­unum!“


26 Lukas Graham – The Pink Tour

Hvar? Silf­ur­berg, Harpa
Hvenær? 26. apríl kl. 20.00
Miðaverð? 10.990 kr. 

Danska sveitin Lukas Graham verður með stór­tón­leika í Hörpu í næstu viku. Sveitin ávann sér ágætis frægð með heima­til­búnum Youtube-mynd­böndum við lög á borð við Drunk in the Morning, en skaust svo ræki­lega upp á stjörnu­him­in­inn árið 2016 með lag­inu 7 Years, sem sló ræki­lega í gegn. Nú er þeirra þriðja plata, Pink, nýkomin út og hefur gengið prýði­lega til þessa og fyrsti smell­ur­inn þar er lagið I Wish You Were Here, þar sem Khalid er sveit­inni til halds og trausts. Platan heitir að vísu ekki form­lega Pink, en hún er svo áber­andi bleik að hún er aldrei kölluð neitt annað.

For­sprakki sveit­ar­innar ber sama for­nafn, hann Lukas Forchhammer, sem syngur og spilar á ótal hljóð­færi, en var áður barna­stjarna í dönsku sjón­varpi. Rétt er svo að taka fram að þetta eru stand­andi tón­leikar.


Hátíð hirðarinnar: Afmælistónleikar Prins Póló / AUKATÓNLEIKAR

Hvar? Gamla bíó
Hvenær? 26.-27. apríl kl. 20.00
Miðaverð? 5.990-7.990 kr.

Hátíð hirð­ar­innar blæs til tón­leika í til­efni af afmæli Prins Póló. Fyrri tón­leik­arnir fara fram þann 26. apríl, en þar sem mið­arnir voru fljótir að rjúka út er sömu­leiðis blásið til aukatón­leika dag­inn eftir, 27. apríl. Eins og gengur kom­ast ekki allir lista­menn­irnir bæði kvöldin, en Hirðin er stór og á seinni tón­leik­ana bæt­ast við þau Mugison, Lay Low, Sigríður Thorlacius og Ómar Guð­jóns­son, en það er leik­hóp­ur­inn Krið­pleir sem sér um að kynna.

Allur ágóði af tón­leik­unum rennur í nýstofn­aðan minn­ing­ar­sjóð Svavars Péturs Eysteins­sonar, sem einnig var þekktur sem Prins Póló, og útdeilt verður úr sjóðnum árlega til skap­andi fólks með góðar hug­myndir. Tón­list­ar­fólkið sem fram kemur tengd­ist Prins­inum góða með einum eða öðrum hætti; sveitir sem hann var í og tón­list­ar­fólk sem hann starf­aði með eða vakti aðdáun hans, en auk áður­nefndra munum við geta hlustað á Benna Hemm Hemm, Borko BSÍ, Dr. Gunna, FM Belfast, Jónas Sig­urðs­son, Moses Hightower, Múldýrið, Múm, Músíkvat, Skakkamanage og Valdimar.

En hver er þessi hirð? „Þetta kall­aði Svavar alla sem hafa unnið með prins­inum eða sótt tón­leika eða verið í hljóm­sveit með honum, þeir voru hirðin. Enda gera prinsar ekk­ert einir,“ segir Berglind Häsler, ekkja Svavars, og bætir við: „Við sem vorum náin honum höfum alltaf upp­lifað okkur sem hluta af hirð­inni.“

Það er hins vegar ekki langt síðan Prinsinn féll frá, var ekk­ert erfitt að gera þetta svona skömmu eftir and­látið? „Hug­myndin kom upp um ára­mótin og þá hugs­aði ég, án þess að segja það upp­hátt við neinn, er þetta ekki aðeins of snemmt?“ segir Berglind, en henni sner­ist svo fljótt hugur.

„Því ég fann bara í und­ir­bún­ingnum fyrir jarð­ar­för­ina hvað það var heilandi að vera hluti af þess­ari heild. Það er svo gaman þegar við komum saman og rifjum upp. Þetta er mjög heilandi ferli, að halda minn­ing­unni á lofti, við erum að halda áfram að hafa gaman. Svo koma oft til­finn­inga­rík augna­blik inn á milli og maður tár­ast og kemst við og það er bara allt í lagi. Það er bara hluti af ferl­inu. Það er bara rosa­lega gott að finna sam­taka­mátt­inn í hirð­inni, það hjálpar.“

Berglind tekur fram að allir þurfi að taka sitt sorg­ar­ferli á sínum hraða og á sinn hátt, en mælir þó fyrst og fremst með einu. „Ég mæli með að maður hangi sem mest með vinum sínum eftir svona. Sem og auð­vitað fjöl­skyldu.“ Svo bætir hún við að lokum: „Ég hef séð hljóm­sveit­irnar margar að æfa og taka cover-lög og þetta eru svo geggjuð bönd og ég held þetta verði algjör­lega ógleym­an­legt kvöld. Þannig að við erum mjög spennt.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á döfinni

Á döfinni: Uppistand, mysingur og örverudans
Á döfinni

Á döf­inni: Uppi­stand, mys­ingur og örveru­dans

Uppi­stand­ari með lausa auga­steina þvælist um landið, frönsk þjóð­laga­söng­kona á Gauknum, pólskar fjöl­skyldur lenda í drama á danskri eyju, tón­list­ar­menn slá upp tón­leikum í mjólk­ur­porti og svo er dansað innan um efna­hvörf sem hafa verið stækkuð með nýj­ustu tækni svo manns­augað greini þau. Þetta er meðal þess sem er á döf­inni í menn­ing­ar­lífi land­ans síð­ustu tvær vik­urnar í ágúst.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár