Litlar lindir, möguleg æxlun og vont fólk

List­alisti 5. - 28. apríl í boði Hús&Hill­billy

Litlar lindir, möguleg æxlun og vont fólk

Flís, einkasýning

03.04 – 07.05.23
Gunn­fríðar Gryfja, Ásmund­ar­salur

Flís er sam­starfs­verk­efni leir­lista­konu og hönn­uðar. Saman rann­saka þau menn­ingu stað­bund­innar mynstur­gerðar ásamt notk­unar mögu­leik­unum sem fel­ast í litaflóru leir­teg­unda hér­lendis. Frá sitt­hvoru sjón­ar­horn­inu vinna þau saman að því að upp­götva leir­inn og lit­ina út frá graf­ískum og hand­gerðum áherslum. Vinnu­stofan stendur yfir í mánuð fram að hátíð­inni sjálfri. 

Vinnu­stofan opn­aði 3. apríl og stendur fram að- og á Hönn­un­ar­Mars sem fer fram dag­ana 3. - 7. maí. Opn­un­ar­tímar á www.asmundarsalur.is


Litlar lindir, myndlistarsýning

22.04. – 19.05.23
Lista­salur Mos­fells­bæjar, Þver­holti 2, 270 Mos­fellsbæ

Mynd­list­ar­kon­urnar Berglind Erna Tryggva­dóttir og Geir­þrúður Ein­ars­dóttir leggja saman krafta sína í sýn­ing­unni Litlar lindir þar sem þær rann­saka Mos­fellsbæ og nærum­hverfi í gegnum minn­ingar, sögu og bæj­ar­lands­lag. 

Sýningin er opin alla virka daga frá 9 til 18 og laug­ar­daga milli 12 og 16.


MA útskriftarsýning í sýningargerð 

22.04. - 30.04.
Arn­ar­hlíð 1, Reykja­vík 102

Í Lunga­mjúkum skuggum kannar Sunna Dags­dóttir leiðir til sið­ferði­legrar sýn­inga­gerðar, m.a. með því að velja verk sem styðja við sjálf­bærni, og gaum­gæfa sam­band mann­vera og ann­arra lif­andi vera. 

Hún segir m.a. um sýn­ing­una.: „Á útskrift­ar­sýn­ingu minni hef ég lagt áherslu á að vinna með lista­mönnum sem sýna umhverf­is­vit­und í verkum sínum og vekja spurn­ingar um eðli hlut­ar­ins, efnis og efn­is­kenndar.”  

Lunga­mjúkir skuggar er útskrift­ar­verk­efni Sunnu til meistara­gráðu í sýn­inga­gerð frá Lista­há­skóla Íslands. Hún hefur lokið BA gráðu í list­fræði og þýsku frá Háskóla Íslands (2021).  

Sunna lítur á sýn­inga­gerð sína sem frá­sagn­ar­að­ferð, og notar sýn­ing­una sem hug­mynda- og þekk­ing­ar­skap­andi miðil sem byggir á sýn­inga­fræðum og öðrum tengdum fræðum, við­fangs­efnum og frá­sagn­ar­leiðum.  

Sunna hefur sýn­inga­stýrt einka- og hóp­sýn­ingum á Íslandi og er með­limur í stjórn nem­endagall­er­ís­ins Rýmd.  

Opnun: 22. apríl kl. 16-18. Opið fim/fös 16.00 – 18.00 og lau/sun 13:00 – 15:00


Þegar ljósið deyr, myndlistarsýning 

09.03. - 03.05.2023
NORR11

Eva Schram birtir okkur ljós­myndir af íslenskri nátt­úru og fjalla­móð­unni sem gerir fjöllin fjar­læg og fram­andi, líkt og him­inn og jörð renni saman í eina óræða heild. Verkin hafa þró­ast á ferðum hennar um öræfi Íslands og dvöl í afskekktum sveitum.

Mán - fös 11:00 - 18:00 og lau 12:00 - 17:00


Sjalaseiður –umbreyting úr texta í textíl

06.04 – 06.05.23
Lista­safn Ísa­fjarðar, Safna­húsið Eyr­ar­túni

Sjala­seiður – umbreyt­ing úr texta í textíl er sýn­ing Berg­rósar Kjart­ans­dóttur út frá bók hennar Sjala­seiður. Sjala­seiður er óður til íslensku ull­ar­innar, íslenskrar nátt­úru og nor­rænu goða­fræð­innar. Öll sjölin í bók­inni eru prjónuð úr íslenskri ull en eru jafn­framt sýnd í annarri útgáfu hvað band og liti snertir. Í bók­inni eru sögur, ljóð og upp­skriftir af sjölum. Hvert og eitt sjal ber nafn og sögu þess forna fyr­ir­bæris sem kveikti hug­mynd­ina að sjöl­unum. Segja má að hvert sjal sé eins og ljóð sem segir gamla sögu og nýja ásamt því að hlýja eig­and­anum, vernda hann og gleðja skyn­færi hans. Aðgangur ókeypis

Opn­un­ar­tímar: mán – fös 12:00 – 18:00, lau 13:00 – 16:00


allt er nálægt  myndlistarsýning

15.04. – 31.05.23
Hverf­is­gall­erí, Hverf­is­gata 4

Laug­ar­dag­inn 15. apríl kl. 16:00 opnar Kristinn E. Hrafns­son sýn­ing­una allt er nálægt í Hverf­is­gall­eríi. Þar verða skúlp­t­úrar á gólfum og lág­myndir á veggjum. Velkomin.

Sýningin er opin til 31.05.2023. Opið þriðju­daga til föstu­daga frá 13:00 – 17:00 og laug­ar­daga frá 14:00 – 17:00.


Leysingar 2023

07.04. - 09.04.23
Alþýðu­húsið á Siglu­firði

Þátt­tak­endur eru: Anna Líndal, Egill Logi Jónasson, Kristín Anna Val­týs­dóttir, Karólína Rós Ólafs­dóttir, Haust, Sigurður Þórir Ámunda­son, Venus Volcanism. 


Yfirborð/Surface og Tvöfaldur dessert

25.03.-20.04.23
Gallery Port, Lauga­vegur 32

Lista­fólkið Halldór Sturlu­son og Berglind Erna Tryggva­dóttir eru með tvær aðskildar sýn­ingar í Gallery Port. Halldór sýnir lita­stúd­íur sínar úr mis­litum pappír sem rað­ast upp á ólíkan hátt í þétt­press­aða bunka, minna á jarð­lög eða marglaga ævi­skeið. Berglind Erna sækir í hvers­dags­leik­ann í teikn­ingum sínum af því sem alltaf innan sjón­s­viðs­ins og seil­ingar. Mynd­irnar gætu staðið í Orðabók hvers­dags­ins því allir munu kann­ast við eitt­hvað úr sínum.

Opið þriðju­dag til laug­ar­dags milli 12-17


Alltaf að - myndlistarsýning

08.04.-30.04.23
Gallerí Úthverfa, Ísafirði

Sigrún Hlín Sig­urð­ar­dóttir opnar sýn­ing­una Alltaf að í Gallerí Úthverfu/Outvert art space, Ísafirði. Þar verða sýnd ný textíl­verk, þar sem meðal ann­ars er sótt í brunn þjóð­sagna og fjallað um leti og dyggðir, gull og gráma.


Við erum vont fólk. Ég er vondur maður.

13.04 – 29.04.23 
Port­folio gall­ery - Hverf­is­gata 71, 101 Reykja­vík 

Egill Logi Jónasson opnar sýn­ingu 13. apríl kl 17:00 – 19:00. Lýsing Athafna- og lista­mað­ur­inn Egill Logi Jónasson sýnir mál­verk í Port­folio gall­ery. Hann veltir fyrir sér hvar hann og aðrir eru stað­settir á skala sið­ferð­is­kenndar. Þar til annað kemur í ljós þá erum við öll grunuð um gæsku. Lokar 29. apríl. Opið fim - sun  14:00 – 18:00.


Loungæ

15.04. – 29.04.23
Högg­mynda­garð­ur­inn

Á sýn­ing­unni Loungæ velta þau Hlökk Þrast­ar­dóttir og Sindri Leifsson fyrir sér hug­tak­inu „lounge“ sem setu­stofum, sér í lagi á hót­elum eða á skrif­stofum en einnig í merk­ing­unni að slæp­ast um eða hanga. Þau sækja inn­blástur í hug­mynda­heim­stein­ald­ar­innar og berja honum upp við nútím­ann og þann veru­leika sem við lifum við í dag. Slag­hljóm­inn beisl­uðu þau í skúlp­t­úra úr leir, timbri, stáli og gulum paprikum og verða verkin virkjuð í gegnum gjörn­inga og þátt­töku gesta. Opnun fer fram 15. apríl kl. 17:00 – 19:00 og stendur sýn­ingin til 29. apríl. Lokahóf aug­lýst síðar.


Fyrirbærafræði

30.03 – 30.04
Fyr­ir­bæri (Phen­omenon) Ægisgötu 7

Brynjar Helgason opnar mynd­list­ar­sýn­ingu í Fyr­ir­bæri. Ágrip úr sýn­ing­ar­skrá: ,,…Í eigin heimi sem aftur á móti gerir ráð fyrir osmósu við ein­hvern full­kom­lega ókunn­ugan sem með hug­veru­leika sínum myndi ljá upp­lifun­inni væ(n)gi í tengslum við sögu og sam­fé­lag, sér­tæk sum þau kunna að vera… Þetta felur á end­anum í sér visst nota­gildi veg­ferð­ar­innar sem mæli­kvarði á fag­ur­fræði­legt gildi afstætt öllum mögu­legum hlutum og hlut­eig­andi gjörðum vorum.“

Sýningin er opin til 30. Apríl. Opið laug­ar­daga & sunnu­daga frá 18:00 - 20:00 og/eða 12:00 - 14:00 (eftir sam­komu­lagi). www.phenomenon.systems.


Möguleg æxlun / Possible Oddkin

22.04. - 30.04.23
Nor­ræna­húsið - Gróð­ur­hús

Brák Jóns­dóttir hefur breytt gróð­ur­húsi Nor­ræna­húss­ins í til­rauna­stofu þar sem hún rann­sakar mögu­lega heima og fram­tíðir. Á sýn­ing­unni Tilraun til sam­lífs er hefð­bundnum hug­myndum um tengsl, mökun og skyld­leika ögrað og mörkin á milli huga, lík­ama og umhverfis könnuð.  Sýn­ing­ar­stjóri er Odda Júlía Snorra­dóttir. Opið alla daga á milli 10 - 17.


HELGA SIF GUÐMUNDSDÓTTIR

ENDURKAST / REFLECTION
01.04 - 27.04

Á setu­stof­unni opnar sýn­ing Helgu Sifjar Guð­munds­dóttur, End­ur­kast. Helga Sif Guð­munds­dóttir útskrif­að­ist með BA-gráðu í mynd­list frá LHÍ vorið 2005 og lauk MFA-gráðu frá Konstfack lista­aka­dem­í­unni í Stokk­hólmi vorið 2009. Verk Helgu Sifjar eru inn­blásin af rann­sókn hennar á eðli óhefð­bund­inna efna og form­rænum eig­in­leikum þeirra. Á sýn­ingu hennar í Ásmund­ar­sal sýnir hún nýja seríu af lág­myndum og skúlp­túr sem fær stað á Gunn­fríð­ar­stöpli.


YELENA ARAKELOW

BEÐIÐ EFTIR DANSI / WAITING FOR A DANCE
01.04 - 27.04

Beðið eftir dansi er hljóð­verk eftir dans­höf­und­inn Yelenu Arakelow.  Hljóð­verkið bíður áhorf­endum upp á að finna nánd­ina sem fylgir því að bíða. Hvað upp­lifir þú í bið­stöðu? Getum við upp­lifað sam­eig­in­lega löngun til breyt­inga, ef við bíðum saman?

Að finna tím­ann líða með end­ur­tekn­ingum og tóma­rúmi eykur mögu­lega eft­ir­vænt­ing­una á að eitt­hvað ger­ist? eða verður tíma­upp­lifunin óskýr­ari í bið­stöðu? 

Yelena Arakelow  (f. 1993 í Zürich, Sviss) er upp­renn­andi dans­höf­undur búsett í Reykja­vík. Verk hennar hafa verið flutt og sýnd í Gallery Reykja­nes­bær (2021), Reykja­vik Dance Festival (2022), Ung Nordic Music Festival Iceland (2022), Plöntutið (2021), Tanzhaus Zürich (2020), Nuuk Nordic Kult­ur­festi­val (2021) og International Dance Festival Latvia (2020).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Listalistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár