Eigandi Arctic Fish segir aukna skatta minnka líkur á sjálfbærara laxeldi

For­stjóri stærsta eig­anda Arctic Fish á Ísafirði, Ivan Vindheim, segir að aukin gjald­taka á lax­eld­is­iðn­að­inn komi í veg fyrir þróun á sjálf­bær­ari lausnum en sjóa­kvía­eldi. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins sem hann stýrir, MOWI, sem er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki og einn stærsti hags­muna­að­ili í lax­eldi á Íslandi, jókst um 64 pró­sent í fyrra og nam nærri 40 millj­örðum.

Eigandi Arctic Fish segir aukna skatta minnka líkur á sjálfbærara laxeldi
Minni pen­ingar í sjálf­bæra þróun For­stjóri Mowi, Ivan Vindheim, segir að óheppi­legt sé að hækka skatta lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna í Noregi því þá eigi þau minni pen­inga eftir til að fjár­festa fyrir og gera lax­eldi sjálf­bær­ara en það er í dag.

For­stjóri norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Mowi, sem eign­að­ist meiri­hluta í Arctic Fish á Ísafirði í fyrra, segir að auk­inn skatt­lagn­ing á þessa iðn­grein dragi úr mögu­leik­unum á sjálf­bær­ara lax­eldi til fram­tíðar. Aukin skatt­lagn­ing norsku rík­is­stjórn­ar­innar á lax­eld­is­iðn­að­inn hefur verið harð­lega gagn­rýnd af norsku lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum síð­ast­liðna mán­uði.

„Við munum að sjálf­sögðu gera meira til að verða sjálf­bær­ari, en til þess að geta gert þetta þá þurfum við pen­inga til að geta fjár­fest“
Ivan Vindheim,
for­stjóri Mowi

For­stjór­inn, Ivan Vindheim, segir að með auk­inni skatt­lagn­ingu á grein­ina þá verði ekki til pen­ingar til að gera sjó­kvía­eldi á laxi sjálf­bær­ara. „Við munum að sjálf­sögðu gera meira til að verða sjálf­bær­ari, en til þess að geta gert það þá þurfum við pen­inga til að geta fjár­fest [...] Með þess­ari til­lögu þá verður ekki neinn meiri pen­ingur til,“ sagði hann í við­tali við sjáv­ar­út­vegs­blaðið Intra­fish og ýjaði því að aukin skatt­lagn­ing kæmi í veg fyrir aukna framr­þróun í grein­inni.

Segir vandamál laxeldisins að gróðinn sé of mikill

Þessi ummæli Vind­heims vöktu nokkra athygli og sagði blaða­maður Intra­fish meðal ann­ars um þau að vanda­mál lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna væru að þau ættu ein­fald­lega of mikla pen­inga til auð­velt væri að kaupa rök­semdir þeirra. „Lax­eld­is­fyr­ir­tækin eiga við vanda­mál að stríða: Þau græða of mikla pen­inga.“ 

Íslenskt lax­eldi er að stóru leyti í eigu norskra lax­eld­is­fyr­ir­tækja en auk eign­ar­halds Mowi á Arctic Fish þá á lax­eld­is­ris­inn Salmar AS meiri­hluta í Arn­ar­laxi á Bíldudal og lax­eld­is­fyr­ir­tækið Måsøval á stóran hlut í Ice Fish Farm á Aust­fjörðum. Umræðan um skatta á lax­eldið í Noregi teng­ist því íslensku lax­eldi þar sem eign­ar­haldið liggur þar í landi að stóru leyti. 

Hagnaður þess­ara fyr­ir­tækja er ævin­týra­legur og græddi Mowi meðal ann­ars 239 millj­ónir evra í fyrra, rúma 36 millj­arða, og jókst hagn­að­ur­inn um 64 pró­sent á milli ára.  Um var að ræða fyrsta árið sem tekjur Mowi fóru yfir einn millj­arð evra.

Þá hefur Salmar greitt út meira en 30 millj­arða króna í arð á ári síð­astlin ár. 

Unnið að fjárfestingum í sjálfbærari lausnum 

Með orðum sínum um að lax­eld­is­fyr­ir­tækin séu að vinna að því að gera lax­eldi sjálf­bær­ara á Ivan Vindheim við að sam­tímis og þau reka sjó­kvíar í fjörðum landa eins og Noregs, Skotlands og Íslands þá setja þau mikla pen­inga í fjár­fest­ingar sínar í sjálf­bær­ari lausnum í lausnum í lax­eldi. Þannig eru þessi fyr­ir­tæki að nota hagn­að­inn úr sjó­kvía­eld­inu til að þróa úthaf­seldi þar sem stórum kvíum verður komið fyrir fjær fjörðum og ströndum landa. Stæstu umhverf­is­vanda­málin við sjó­kvía­eldið snú­ast um nálægð­ina við villta laxa­stofna í ám ríkja og mögu­lega erfða­blöndun við þá sem og úrgangs­mengun frá sjó­kvíum sem sest á botn fjarða þar sem haf­straumar eru ekki sterkir auk meðal ann­ars sjón­meng­unar. 

Salmar er meðal ann­ars að þróa aflandseld­is­lausnir í félagi við einn rík­asta mann Noregs, Kjell Inge Rökke. Þá hefur stjórn­ar­for­maður Arnarlax á Íslandi, Kjartan Ólafsson, einnig fjár­fest í þró­un­ar­verk­efni um aflands­seldi hér á landi. 

Samkvæmt rök­semda­færslu for­stjóra Mowi er staðan því sú að ekki sé við hæfi að skatt­leggja sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækin um of þar sem slík gjald­taka komi í veg fyrir mögu­leika þeirra til að þróa sjálf­bær­ari lausnir en sjó­kvía­eldi í fjörðum. Miðað við þessi orð, sem og fjár­fest­ingar lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna í aflandseldi, þá vita fyr­ir­tækin að sjó­kvía­eldi er ekki fisk­eldi fram­tíð­ar­innar vegna umhverf­is­á­hrifa þess. Raunar hefur fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Salmar, Atle Eide, sagt að sjó­kvía­eldi verði ekki lengur stundað, í þeirri mynd sem við þekkjum, árið 2030. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eysteinn Gunnarsson skrifaði
    Auðlindir á Íslandi fást fyrir smáaura. Hvernig væri að fréttamenn færu að alvöru að krefja ráðamenn svara hvað á að greiða fyrir auðlindir landsins, markaðsverð eða annað.
    0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Staðan sýnir svo ekki verður um villst að stjórnaskipti á Íslandi eru nauðsynleg.
    Samfylkingin þarf að taka völdin.
    2
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Það segir sig sjálft, að þessir staurblönku norðmenn geta ekkert lagt í púkkið. Sjálfstæðismenn hljóta að bæta í meðgjöfina fyrir þá.
    1
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Það er auðvelt að plata auðtrúa Íslendinga. Núverandi stjórnvöld kikna í hnjánum þegar þau standa frammi fyrir stóreignamönnum og kröfum þeirra. Þeir láta þá undan með glöðu geði.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár