Mótmælir skorðum á erlendu eignarhaldi og samþjöppun kvóta í laxeldi

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax mót­mælir hug­myndum að reyna að tak­marka eign­ar­hald erlendra fyr­ir­tækja í íslensku lax­eldi. Arnarlax vill heldur ekki að skorður verði settar á sam­þjöppun kvóta­leyfa í lax­eldi. Þetta kemur fram í umsögn fyr­ir­tæk­is­ins um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Arnarlax sendi frá sér fyrir helgi.

Mótmælir skorðum á erlendu eignarhaldi og samþjöppun kvóta í laxeldi
Hefur beina fjár­hags­lega hags­muni af mál­inu Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, hefur beina fjár­hags­lega hags­muni af því að fyr­ir­tækið fái sem mestan kvóta í lax­eldi. Hann á sjálfur tveggja millj­arða króna hlut í félag­inu sem hann keypti með kúlu­láni frá stærsta hlut­haf­anum, Salmar AS.

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax mót­mælir því að skorður verði settar á erlendu eign­ar­haldi í íslensku lax­eldi og komið verði í veg fyrir sam­þjöppun í  á lax­eld­isk­vótum í grein­inni. Þetta kemur fram í umsögn frá Arn­ar­laxi, sem Kjartan Ólafsson stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins, skrifar og sendir til atvinnu­vega­nefndar Alþingis.

Einungis fimm lax­eld­is­fyr­ir­tæki með fram­leiðslu­leyfi í sjó eru starf­andi á Íslandi. Kjartan telur hins vegar, þrátt fyrir hversu fá fyr­ir­tækin eru, að tak­mark­anir á stærð þeirra muni verða sam­keppn­is­hamlandi: „Tak­mark­anir á stærð félag­anna mun því aug­ljós­lega draga úr sam­keppn­is­hæfni og tak­marka aðgang að fjár­magni í áhættu­sama upp­bygg­ingu. Ljóst er að veru­leg fjár­fest­ing er nauð­syn­leg til að byggja grein­ina frekar upp næstu ár og arður hefur aldrei verið greiddur úr fyr­ir­tækj­unum enda fyr­ir­sjá­an­leg fjár­fest­ing­ar­þörf mikil.“

Umsögnin er send inn að beiðni atvinnu­vega­nefndar Alþingis vegna þings­á­lykt­ar­til­lögu Höllu Signýjar Krist­jáns­dóttur, þing­konu Fram­sókn­ar­flokks­ins og fjög­urra ann­arra þing­manna, um að skip­aður verði starfs­hópur sem ræða eigi um breyt­ingar á lögum og reglum í lax­eldi. 

Í þinga­á­lykt­ar­til­lög­unni segir: „Alþingi ályktar að fela mat­væla­ráð­herra að skipa starfs­hóp sem hafi það að mark­miði að: Koma fram með til­lögur um hvernig tak­marka megi sam­þjöppun eign­ar­halds á lax­eld­is­leyfum. Skoða hvort tak­marka eigi eign­ar­hald erlendra aðila á lax­eld­is­leyfum. Ráðherra leggi nið­ur­stöður starfs­hóps­ins fyrir Alþingi eigi síðar en 30. sept­em­ber 2023.“

Unnið að betrum­bótum á reglu­verki lax­eldisHalla Signý Krist­jáns­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, er einn af fimm þing­mönnum sem leggur frum­varpið fram.

Stöðunni má líkja við það þegar kvótakerfinu var komið á

Stöðunni í íslensku lax­eldi í sjó­kvíum má að hluta til líkja við það þegar kvóta­kerf­inu í sjáv­ar­út­vegi var komið á hér á landi á níunda ára­tugnum.

Íslensku sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin sem stundað höfðu veiðar á fiski í sjói áður en kvóta­kerf­inu var komið á fengu úthlutað afla­heim­ildum á grund­velli veiði­reynslu fyrri ára. Þessi fyr­ir­tæki þurftu ekki að borga fyrir þennan kvóta, sem var mik­ils virði í pen­ingum eins og sagan sýndi. Eftir að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin fengu kvót­ann ókeypis á grund­velli veiði­reynslu gátu eig­end­urnir selt kvót­ann, veð­sett hann og svo fram­vegis. Þetta var hug­myndin um frjálsa fram­salið. 

Þegar litið er nær okkur í tíma fengu íslenskar útgerðir kvóta í mak­ríl með sama hætti þegar hann var kvóta­settur fyrir nokkrum árum. 

Með sams konar hætti hafa þessi örfáu íslensku lax­eld­is­fyr­ir­æki fengið úthlutað fram­leiðslu­leyfum í lax­eldi frá íslenskum yfir­völdum.

Munurinn er hins vegar sá að lax­eld­is­fyr­ir­tækin fengu kvót­ann á grund­velli þess að þau hófu umsókn­ar­ferli til þess að fá hann fyrir mörgum árum og eru þau enn að vinna í því að fá frek­ari kvóta á grund­velli umsókna sem eru til með­ferðar í kerf­inu. Þegar þessi fyr­ir­tæki fá fram­leiðslu­leyfin geta þau hins vegar fram­selt leyfin eða selt fyr­ir­tækin fyrir háar fjár­hæðir og byggir verð­mat fyr­ir­tækj­anna að lang­mestu leyti á kvót­anum sem þau fengu úthlutað frá íslenska rík­inu. 

Nú þegar hafa nokkrir ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki selt hluta­bréf í lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum íslensku með miklum hagn­aði á þessum for­sendum. Þeim mun meiri kvóta sem lax­eld­is­fyr­ir­tækin, eins og Arnarlax, fá frá íslenska rík­inu út úr þeim umsóknum sem þau eru með inni í kerf­inu þeim mun meira geta eig­endur þeirra hagn­ast.

Eitt dæmi um slíka umsókn um kvóta sem verið er að afgreiða í stjórn­kerf­inu er umsókn Ice Fish Farm á Aust­ur­landi um að fá að hefja 10 þús­und tonna lax­eldi í Seyð­is­firði. Ef Ice Fish Farm fær þennan kvóta eykst verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins um 7 til 10 millj­arða króna miðað við mark­aðs­verð­mæti á fram­leiðslu­leyfum í lax­eldi. 

„Tak­mark­anir á stærð félag­anna mun því aug­ljós­lega draga úr sam­keppn­is­hæfni og tak­marka aðgang að fjár­magni í áhættu­sama upp­bygg­ingu.“
Kjartan Ólafsson,
stjórn­ar­for­maður Arnarlax

Segir aðkomu norskra fjárfesta mikilvæga

Í umsögn­inni segir Kjartan, sem sjálfur á stóran hlut í Arn­ar­laxi sem er meira en tveggja milj­arða króna virði, að ein af rök­unum fyrir því að tak­marka ekki erlent eign­ar­hald á Arn­ar­laxi sé að þessi iðn­aður sé mjög fjár­frekur. Hann segir að fyr­ir­tækið hefði ekki orðið að að því sem það er í dag nema vegna þess norska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar AS fjár­festi í því. „Arnarlax ehf. er að fullu í eigu Icelandic Salmon AS. Síðar­nefnda félagið er skráð á markað í norsku kauphöllinni og hlut­hafar skipta hund­ruðum. Á meðal hlut­hafa er Gildi lífeyr­is­sjóður, einn stærsti lífeyr­is­sjóður lands­ins og Stefnir, sjóðastýring­ar­fyr­ir­tæki Arion banka, sem fjárfestu í félag­inu við skráningu undir lok árs 2020 auk fjölda ann­arra íslenskra fjárfesta. Stærsti hlut­haf­inn er norska félagið Salmar ASA sem er einnig skráð í kauphöll en þar að baki standa um 7- 10.000 hlut­hafar. Vert er hafa í huga að aðkoma erlendra fjárfesta að Arn­ar­laxi er ein helsta for­senda þess hve vel hefur gengið að byggja starf­sem­ina upp og hefur einnig aukið möguleika fyr­ir­tæk­is­ins á því að nálgast fjármagn á erlendum mörkuðum. Það er í raun alls óvíst að Arnarlax hefði bygg upp starf­semi með um 200 ný störf á Vestfjörðum án aðkomu erlendra fjárfesta, enda er fisk­eldi gríðar­lega fjárfrekur iðn­aður. Aðkoma reyndra erlendra fjárfesta og sam­starfs­að­ila hefur einnig skapað ómet­an­leg við­skipta­tengsl um allan heim. Þessi sjónar­mið verður að hafa í huga við afgreiðslu á þingsálykt­un­ar­tillögunni sem hér er til umræðu.“ 

Á þessum for­sendum leggst Arnarlax því gegn því að rík­is­valdið reyni ann­ars vegar að hindra sam­þjöppun kvóta­heim­ilda í grein­inni sem og hins vegar að minnka erlent eign­ar­hald í grein­inni.

Ein af nið­ur­stöð­unum hjá Arn­ar­laxi er því að leggj­ast gegn því að starfs­hóp­ur­inn, þar sem þessar hug­myndir verða ræddar, verði skip­aður. „Með vísan til fram­an­greindra sjónar­miða telur Arnarlax ehf. enga þörf á því að Alþingi feli mat­væl­aráðherra að skipa starfshóp þann sem þingsálykt­un­ar­til­lagan mælir fyrir um. Að auki er rétt að minna á að nú þegar liggur fyrir ítar­leg skýrsla starfshóps landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra frá 21. ágúst 2017 um stefnumótun í fisk­eldi, þar sem þau atriði sem þingsálykt­un­ar­til­lagan lýtur að koma til efn­is­legrar umfjöllunar auk fjölda ann­arra álita­efna sem telj­ast fisk­eldi hér á landi,“ segir í umsögn Kjartans Ólafs­sonar fyrir Arnarlax.  

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Kvótakerfið sem sett var á eftir 1980 var nauðsyn, en framsalið sem upphófst eftir 1990 með íhlutun Framsóknarráðherra, var galið, eins og sjá má í dag.
    1
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Æi, þeirra maður í ráðuneytinu var vízt rekinn með skömm og kærður. Hvað gera bændur nú? Jú senda bara inn umsagnir eins og aðrir hagsmunaaðilar þurfa að gera og vona að á þá sé hlustað sem er ekki jafn skilvirkt og hitt kerfið.
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það á ekki að leyfa starfsemi erlendra auðhringa í landinu. Sama hvað þeir fást við.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár