Greiðslubyrði af óverðtryggðum lánum hefur tvöfaldast á tveimur árum

Greiðslu­byrði af óverð­tryggðu 50 milljón króna láni á breyti­legum vöxtum nálg­ast nú 400 þús­und krónur á mán­uði. Um fjórð­ungur allra lána eru óverð­tryggð og fastir óverð­tryggðir vextir þús­unda heim­ila losna í ár.

Greiðslubyrði af óverðtryggðum lánum hefur tvöfaldast á tveimur árum
Húsnæði Íbúða­verð hækk­aði gríð­ar­lega á síð­ustu árum, og lán­taka jókst mikið sam­hliða. Afborg­anir þeirra lána hafa hækkað mikið. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Vaxta­gjalda­hækk­an­irnar leggj­ast þyngst á þau heim­ili sem eru með óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum. Samkvæmt útreikn­ingum sem settir eru fram í mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS), sem birt verður í dag, munu lægstu óverð­tryggðu vextir bank­anna verða á bil­inu 9 til 9,34 pró­sent ef þeir hækka í sama takti og Seðla­bank­inn hækk­aði stýri­vexti. 

Gangi það eftir munu mán­að­ar­leg greiðsla af 40 millj­óna króna óverð­tryggðu láni á breyti­legum vöxtum verða 304.800 krónur á mán­uði að með­al­tali hjá þeim sem taka lán hjá við­skipta­bönk­unum þremur. Greiðsla af slíku láni hefur þá hækkað um 153.900 krónur, eða rúm­lega tvö­fald­ast, frá því í apríl 2021, þegar stýri­vextir voru 0,75 pró­sent og íbúða­lána­vextir lægri en nokkru sinni fyrr. Stýri­vextir eru nú 7,5 pró­sent, og hafa verið hækk­aðir tólf sinnum í röð. Það hefur verið gert til að reyna að ná tökum á verð­bólgu, sem mælist 10,2 pró­sent og hefur ekki verið meiri í 14 ár.

Greiðsla af 50 milljón króna óverð­tryggðu láni á breyti­legum vöxtum verður 381.250 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Hún hefur þá hækkað um 192.625 krónur frá því í apríl 2021, og sömu­leiðis rúm­lega tvö­fald­ast.

Þeir sem ráða ekki við þessa greiðslu­byrði hafa þann kost að taka frekar verð­tryggð lán. Þá þarf að sætta sig við að verð­bætur vegna verð­bólgu legg­ist ofan á höf­uð­stól láns­ins. Greiðsla af slíkum 50 milljón króna lánum til 25 ára hafa ein­ungis hækkað um tæp­lega níu þús­und krónur á mán­uði síðan í apríl 2021.

Um 30 prósent eiga heimili sitt skuldlaust

Um fjórð­ungur allra íbúða­lána eru óverð­tryggð á breyti­legum vöxtum. Auk þess er stór hluti heim­ila með fasta óverð­tryggða vexti til þriggja eða fimm ára, með lán upp á 707 millj­arða króna. Af þeim stabba eru lán upp á næstum 600 millj­arða króna, sem hafa verið á föstum vöxtum, að losna á næstu þremur árum. Þar af rennur bindi­tími lána upp á 74 millj­arða króna út á þessu ári. Þar er um að ræða lán 4.451 heim­ila.

Samkvæmt nýjasta riti Fjár­mála­stöð­ug­leika, sem Seðla­banki Íslands gefur út, voru um tólf pró­sent heim­ila lands­ins með greiðslu­byrði yfir 260.000 krónum í jan­úar. Um 30 pró­sent heim­ila á Íslandi skuld­uðu lítið í hús­næði sínu og voru með greiðslu­byrði undir 100 þús­und krónum á mán­uði. Þá eiga um 30 pró­sent heim­ila lands­ins hús­næði sitt skuld­laust. 

Síðan í jan­úar hafa stýri­vextir verið hækk­aðir tví­vegis, sam­tals um 1,75 pró­sentu­stig, Því má búast við að fjölgað hafi í þeim hópi sem greiðir yfir 260 þús­und krónur mán­að­ar­lega fyrir hús­næði. 

Kaupmáttur dróst saman þrjá ársfjórðunga í röð

Samkvæmt nýlega birtum tölum Hagstofu Íslands dróst kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna íslenskra heim­ila saman á síð­asta ári um 1,7 pró­sent. Það er í fyrsta sinn síðan 2012 sem hann dregst saman innan árs, en þá var sam­drátt­ur­inn mun minni eða 0,3 pró­sent. Það þarf að leita aftur til árs­ins 2010 til að finna meiri sam­drátt í kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna heim­ila en var í fyrra. Það ár var hann heil 12,1 pró­sent. 

Alls hefur kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna nú dreg­ist saman þrjá árs­fjórð­unga í röð. Það hefur ekki gerst á Íslandi síðan um í lok árs 2012 og byrjun árs 2013. 

Ráð­stöf­un­ar­tekjur eru þeir pen­ingar sem standa eftir þegar búið er að draga skatta og önnur gjöld frá launum við­kom­andi og kaup­máttur þeirra lýsir því hvað hver getur keypt fyrir þær tekj­ur. Þegar kaup­mátt­ur­inn dregst saman þá getur við­kom­andi keypt minna fyrir krón­urnar sem hann hefur til ráð­stöf­unar í hverjum mán­uð­i. 

Fimm ára áætlun kynnt í vikunni

Rík­is­stjórnin mun kynna fimm ára fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í þess­ari viku. Upp­haf­lega átti að kynna hana í dag en því var frestað að minnsta kosti til morg­uns, þriðju­dags. Ráðamenn greindu frá því um helg­ina að í áætl­un­inni verði bæði að finna aðhald í rekstri hins opin­bera og aukna tekju­öflun, sem á manna­máli þýðir skatta­hækkun. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar verður meðal ann­ars lögð á tíma­bundin hækkun á skatta fyr­ir­tækja sem skilað hafa góðum hagn­aði und­an­farið. Auk þess er stefnt að því að útfærsla á nýjum umferð­ar­gjöldum verði að finna í áætl­un­inni. 

Þegar fjár­lög voru afgreidd seint á síð­asta ári var reiknað með 120 millj­arða króna halla, sem var umtals­vert meiri halli en gert hafði verið ráð fyrir í fjár­laga­frum­varp­inu þegar það var lagt fram í sept­em­ber 2022. Þá var hall­inn áætl­aður 89 millj­arðar króna.

Í nýlega birtu áhættu­mati vegna fram­kvæmdar fjár­laga yfir­stand­andi árs boð­aði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að gjöld vegna vaxta­kostn­aðar verði 27 millj­örðum krónum hærri en gert var ráð fyrir og að kostn­aður við ýmsa rík­is­að­ila muni kosta 12,2 millj­örðum krónum meira en áætlað var. Því liggur fyrir að gjalda­hlið rík­is­fjár­mála hefur verið að vaxa. Auknar tekjur munu hins vegar leiða til þess, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar, að hall­inn verði mun minni en áður var áætlað.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár