Jens Garðar blæs til sóknar fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði

Jens Garðar Helgason, aðstoð­ar­for­stjóri Ice Fish Farm, segir að lax­eld­is­fyr­ir­tækið Ice Fish Farm ætli að auka upp­lýs­inga­gjöf og fræðslu um sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði. 75 pró­sent íbua í Múla­þingi er á móti því að lax­eldi í sjó hefj­ist i Seyð­is­firði. Jens Garðar er sann­færður um að við­horf íbúa muni breyt­ast þegar réttar upp­lýs­ingar liggja fyrir.

Jens Garðar blæs til sóknar fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði

„Ég lít á það þannig að nú er það í okkar höndum að upp­lýsa íbú­ana ennþá betur. Hluti af þessu er að það hefur skort á upp­lýs­inga­gjöf frá okkur í umræð­unni varð­andi ýmis álita­mál. Þetta er til dæmis um Farice-streng­inn, ofan­flóð, umhverf­is­mál og sigl­inga­leiðir,“ segir Jens Garðar Helgason, aðstoð­ar­for­stjóri Ice Fish Farm, aðspurður um hvað lax­eld­is­fyr­ir­tækið ætli að gera til að reyna að breyta við­horfum íbúa í Múla­þingi á Aust­ur­landi til fyr­ir­hug­aðs lax­eldis í Seyð­is­firði. Um er að ræða allt að 10 þús­und tonna lax­eldi í firð­inum.

Samkvæmt nýlegri við­horfskönnun eru 74 pró­sent íbúa í Múla­þingi  á móti lax­eldi Ice Fish Farm í sjó­kvíum í Seyð­is­firði. Greint var frá nið­ur­stöð­unni á vef­síðu sveit­ar­fé­lags­ins Múla­þings í febr­úar.

„Ég tek þetta ekki létt­vægt og lít á þetta sem ákveðin áfell­is­dóm yfir mínum störfum fyrir hönd félags­ins og mun standa mig mun betur í því á kom­andi mán­uðum.“
Jens Garðar Helgason,
aðstoð­ar­for­stjóri …
Kjósa
-7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • M
    magnus.tm skrifaði
    Í kynningarplaggi Jens Garðars segir : "Eldissvæðið við Selstaðavík fer lítilega inn
    fyrir helgunarsvæði strengsins" þ.a fullyrðingar hans eru rangar. Mynd hans í plagginu af Sörlastaðavík sýnir líka að þar er hann inni í hvíta ljósgeiranum. Jens Garðar á skilyrðislaust að fara eftir vilja 75% íbúa og hætta sjálfur við sjókvíaeldi í Seyðisfirði, eins og hann lýsti sjálfur yfir á opinberum fundi á Seyðisfirði í fyrra. Það er alltaf gott að standa við sín orð.
    4
  • Siggi Rey skrifaði
    Skora á íbúa Seyðisfjarðar að koma í veg fyrir þetta ódæði sem þetta fyrirtæki hyggst koma á laggirnar í fallega firðinum ykkar sem hreinlega eyðileggist ef af þessu verður!
    5
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Það er með ólikindum ef vilji 74% íbúanna verði hunsaður og 19% fái að ráða.
    Það er sérstaklega ánægjulegt að íbúarnir taka svona skynsamlega afstöðu. Það er því miður ekki alls staðar.
    Laxeldi í sjó er gífurlega mengandi og hættulegt stofni villtra laxa á Íslandi. Stofn villtra laxa er talinn vera um 50.000 laxar. Í einu tilviki á Vestfjörðum sluppu út 82.000 eldislaxar og er ljóst að þeir munu hafa mjög slæm áhrif á villta stofninn.
    Auk þess vinnur laxeldi í Seyðisfirði gegn þeirri ímynd sem Seyðisfjörður hefur og vill halda í sem eftirsóttur ferðamannastaður.
    Bæjarfulltrúar sem hunsa með þessum hætti vilja bæjarbúa ættu að segja af sér.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár