Kína verðlaunar Ísland fyrir að sleppa ferðatakmörkunum

Ein af ástæðum þess að kínverska ríkið hefur ákveðið að heimila aftur sölu á hópferðum kínverskra ferða­manna til Íslands er að engar ferða­takmarkanir vegna Covid eru í gildi gegn Kínverjum hér á landi. Ísland er eitt af 40 löndum í heiminum sem ákvörðun kínverska ríkisins gildir um. Kína er ánægt með að Ísland hafi ekki fylgt Evrópu­sambandinu eftir og innleitt ferða­takmarkanir hér á landi.

Ísland fær klapp á bakið
Ísland fær klapp á bakið Ísland fær klapp á bakið frá Kín­verjum fyrir að taka ekki upp harð­ari ferða­tak­mark­anir gagn­vart kín­verskum ferða­mönnum. He Rulong er sendi­herra Kína á Íslandi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ein af ástæðum þess að kínverska ríkið hefur ákveðið að heimila aftur sölu á pakka­ferðum fyrir kínverskra ferðamenn til Íslands í kjölfar Covid-faraldursins er að utan­ríkis­ráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, gaf það út í byrjun ársins að engar sérstakar ferða­takmarkanir yrðu settar á Kínverja sem koma hingað til lands. Þetta kemur fram í svari frá  kínverska sendi­ráðinu á Íslandi við spurningum Heimildarinnar.

Ísland er eitt af 40 löndum sem er á lista Kína yfir lönd sem byrja má að selja pakka­ferðir til aftur eftir bann við slíkum ferðum út af Covid-faraldrinum, líkt og kínverska sendi­ráðið greindi frá í síðustu viku í tilkynningu til fjölmiðla. Frétta­stofa RÚV fjallaði þá meðal annars um ákvörðunina í kvöld­fréttum sínum. 

„Í upp­hafi þessa árs til­greindi íslenski utan­rík­is­ráð­herr­ann að engar auka ferða­tak­mark­anir yrðu settar á ferða­menn frá Kína til að kom­ast inn til Íslands“
Úr svari kín­verska sendi­ráðs­ins

Í svari kínverska sendi­ráðsins til Heimildarinnar segir um þetta: „Í upphafi þessa árs tilgreindi íslenski utan­ríkis­ráðherrann að engar auka ferða­takmarkanir yrðu settar á ferðamenn frá Kína til að komast inn til Íslands. Þessi niður­staða byggði á vísinda­legum rann­sóknum.  Íslenskir sérfræðingar í lýðheilsumalum og embætti ferðamála­stjóra studdu þessa niður­stöðu. Þetta er ástæðan fyrir því af hverju Ísland á vel skilið að vera á listanum.“

Jöfn og mikil fjölgun í tíu ár

Í svari kínverska sendi­ráðsins kemur fram fram hversu mikil fækkun hefur verið á komu kínverskra ferða­manna hingað til lands vegna Covid á síðustu árum. Í fyrra komu eingöngu rúmlega 26 þúsund ferðamenn fra Kína hingað til lands á meðan þeir voru 114 þúsund árið 2019.

Koma kínverskra ferða­manna hafði aukist jafnt og þétt á hverju ári frá 2010 þegar einungis rúmlega 5 þúsund ferðamenn frá landinu komu hingað til lands en Covid setti svo strik í reikninginn. Til marks um þetta má benda á að í fyrra komu jafn margir ferðamenn frá Kína hingað til lands og árið 2014.

Koma fleiri ferða­manna frá Kína hingað til lands getur því skipt máli fyrir þjóðar­búið og íslensk ferða­þjónustu­fyrirtæki.  Árið 2019 var Kína í fjórða sæti yfir þau lönd sem áttu flesta ferðamenn sem komu hingað til lands. 

Kína var ósátt við ferðatakmarkanir Evrópusambandsins

Ákvörðun Kína er tekið í kjölfarið á því að Evrópu­sambandið ákvað að setja takmarkanir á möguleika kínverskra ferða­manna til að ferðast til landa þess í upphafi ársins. Þetta var gert vegna Covid-faraldursins þar í landi og byggði ákvörðunin á tilmælum frá leiðtoga­ráði Evrópu­sambandsins. Ísland ákvað hins vegar að setja engar slíkar ferða­takmarkanir hér á landi. Meðal þess sem Evrópu­sambandið ákvað að gera var að skikka kínverska ferðamenn til að taka Covid-próf áður en þeir heimsækja ríkin. Banda­ríkin, Indland og Bretland voru meðal annarra ríkja sem einnig tóku upp hertari ferða­takmarkanir gagnvart Kínverjum í upphafi ársins. 

Út frá svari sendiráðs Kína er ljóst að þessi ákvörðun Íslands, að setja engar ferða­takmarkanir á Kínverja, spilaði stórt hlutverk í þeirri ákvörðun kínverska ríkisins að leyfa aftur hópferðir kínverskra ferða­manna til Íslands. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kína og Ísland

FréttirKína og Ísland

Áhyggjur Norðmanna af njósnum Kína og spegil­myndin Ísland

Yfirvöld öryggis­mála í Noregi hafa áhyggjur af mögulegri misnotkun yfirvalda í Kína á samskipta­miðlinum TikTok. Inger Haugland hjá norsku öryggis­lögreglunni PST varar Norðmenn við að nota miðilinn. Ísland er eftir­bátur hinna Norður­landanna í varnar- og netöryggis­málum og er ekki með sams konar viðbúnað og þau gagnvart mögulegum njósnum erlendra ríkja eins og Kína og Rússlands.
FréttirKína og Ísland

Katrín: Starfsemi kínversku rannsóknar­miðstöðvarinnar aldrei farið fyrir þjóðar­öryggisráð

Málefni norðurljósa­rannsóknar­miðstöðvar Kínversku heimskauta­stofnunarinnar í Þing­eyjarsýslu hafa aldrei farið fyrir þjóðar­öryggisráð Íslands. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir að eftirlit með rannsóknar­miðstöðinni sé hendi ráðherra háskóla­mála. NATO hefur meðal annars haft áhyggjur af rannsóknar­miðstöðinni.
FréttirKína og Ísland

Þingmaður spyr Katrínu um eftirlit með kínversku rannsóknar­miðstöðinni

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, hefur spurt Katrínu Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra spurninga um kínversku rannsóknar­miðstöðina á Kárhóli í Þing­eyjarsýslu. NATO og nágranna­ríki Íslands hafa lýst yfir áhyggjum af starfsemi rannsóknar­miðstöðvarinnar vegna mögulegra áhrifa á þjóðar­öryggi. Íslensk stjórn­völd hafa haft litla yfirsýn yfir starfsemi rannsóknar­miðstöðvarinnar.
FréttirKína og Ísland

Önnur ríki hafa áhyggjur af norðurljósa­miðstöð Kína á Íslandi

Sérfræðingar í þjóðar­öryggis­málum fjalla um norðurljósa­rannsóknar­miðstöð Kína á Kárhóli í ritgerð. Einn af höfundunum, Gregory Falco, segir að stað­setning rannsóknar­miðstöðvarinnar á Íslandi sé of mikil tilviljun í hans huga. NATO og önnur ríki á norður­hveli jarðar hafa áhyggjur af því að Kína stundi eftirlit og njósnir á Íslandi í gegnum miðstöðina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár