Ástarsorg getur verið dauðans alvara

Ást­ar­sorg getur verið áfall sem hefur áhrif á sjálft hjartað, melt­ing­una, ónæm­is­kerfið og heil­ann. Ásamt þessu getur fólk glímt við svefn­vanda­mál og breyt­ingar á mat­ar­lyst og upp­lifað krefj­andi til­finn­ingar eins og afneitun, kvíða og dep­urð. Tíma­bundið geta sjálf­skaða­hugs­anir og sjálfs­vígs­hugs­anir leitað á fólk.

Ástarsorg getur verið dauðans alvara

Sólrún Ósk Lár­us­dóttir sál­fræð­ingur segir að þegar fólk verður ást­fangið mynd­ast mikið flæði af alls konar horm­ónum og boð­efnum. „Við erum kannski ekki alveg með réttu ráði til að byrja með. Heilinn fram­leiðir mikið af dópamíni sem fram­kallar vellíðan en hann fram­leiðir líka streitu­hormón, þannig að sumir geta jafn­vel ekki borðað eða sofið og hugsa stans­laust um við­kom­andi. Það er losun á oxýtósíni, ást­ar­horm­ón­inu, sem teng­ist líka tengsla­myndun for­eldra og barna og veitir okkur ánægju og öryggi. Þetta eykst eftir því sem líður á sam­bandið. Á sama tíma dregur úr nei­kvæðum til­finn­ingum. Ást­fangið fólk verður líka minna gagn­rýnið á þann sem ástin bein­ist að; það eru tauga­fræði­legar skýr­ingar á því að ástin sé blind eins og sagt er.“

Heilinn þarf hvíldSólrún er sál­fræð­ingur og hefur skoðað marg­vís­leg áhrif ást­ar­sorgar á heilsu fólks. Hún segir mik­il­vægt að leyfa heil­anum að hvíl­ast eftir slík áföll.

Svo er ást­ar­sorg …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Tilfinningar eru stórlega vanmetnar. Sumir ná að fela þær á meðan þeir sem flíka þeim eru dæmdir. Auðvitað er þetta ekki bara svart og hvítt. Fólk er misjafnt eins og gengur og gerist. Sumir njóta þess að gefa og aðrir njóta þess að fá. Ég þekki fólk sem á ákaflega erfitt með að þiggja. Mitt mat er að það ætti að leggja ofuráherslu á tilfinningakennslu í leik og grunnskóla. Láta nemendur finna fyrir þeim og ekki síður gera þeim grein fyrir því að aðrir hafa sömu tilfinningar. þær búa í okkur öllum, svo eru það viðhorfin til þeirra, þau börn sæm læra það heima hjá sér að allt er þeirra en ekki hinna, munu eiga í mestu vandræðum og verða fyrir meiri áföllum á fullorðinsaldri. Nei, ég er ekki sálfræðimenntuð, ég er hokin af reynslu lífsins.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár