Smellpassar

Sófa­kartaflan heldur áfram rýna í Net­flix, nú er það sam­suða nokk­urra raun­veru­leika­þátta í þátta­röð sem veitir ágætis frí frá ham­fara­hlýnun og erf­iðum fréttum. „Í raun og veru virka þeir eins og kvíða­lyf, því eftir heila þátta­röð af þessu rugli þá er heimsendir eða öllu heldur enda­lok mann­kyns­ins ekki svo skelfi­leg til­hugsun.“

Smellpassar

Ó, vor mikli glápguð. Vér þökkum yður fyrir þær óeig­in­gjörnu gjafir sem þér færið oss. Nú hljóp á snærið því allir verstu, og þar af leið­andi mínir upp­á­halds­þættir, hafa endað saman í stórum svörtum plast­poka. Úr pok­anum lekur svo dýr­indis rusla­safi sem heitir hinu við­eig­andi nafni: Perfect Match. Í glæsi­hýsi á sól­ríkum ströndum Panama hafa tíu ein­stak­lingar hóp­ast saman í leit að ást. Flest ef ekki öll eru afar spengi­leg á vest­rænan mæli­kvarða, en það virð­ist því miður ekki nægja til að finna maka, því enn eru þau ein­hleyp og það má víst alls ekki. Öll eiga þau það sam­eig­in­legt að hafa keppt í öðrum raun­veru­leika­þáttum.

Eft­ir­læt­iskepp­and­inn minn er sírenan Francesca Farrago. Samkvæmt flestum í hús­inu er hún girni­leg­asti ein­stak­ling­ur­inn og fólk fellur fyrir henni í hrönnum eins og per­sónur í goð­sögn. Minn eft­ir­læt­iskar­l­maður er hvat­vísi nautna­segg­ur­inn Shayne. Hann gerði sér lítið fyrir og dreif upp að alt­ar­inu í þriðju seríu af Love is Blind en var hafnað af til­von­andi eig­in­konu sinni, Natalie. Net­verjar fögn­uðu ákaft því hann var eins konar fána­beri rauðu flagg­anna og þótti og þykir lík­lega ekki enn vera gott manns­efni. Shayne lætur inter­net­mót­lætið greini­lega ekki á sig fá og er mættur, skæl­bros­andi í maga­bol. Ótrúlegt en satt er hann ekki eina mann­eskjan í maga­bol því kanadíska ljúf­mennið Dom (úr Squidgame-legu raun­veru­leika­þátt­unum The Mole) er líka í hálfum bol og undir lokin er hann kom­inn í bringu­bol. Ég ímynda mér að þeir hafi báðir hugsað: Það er glæpur gegn mann­kyn­inu að fela sig á bak við heilan bol ef maður er með tálg­aða maga­vöðva eins og Adonis.

Markmið kepp­enda í Perfect Match er að para sig við aðra þátt­tak­endur og reyna að finna maka sem smellpassar. Þátta­stjórn­and­inn Nick Lachey er reynslu­mik­ill í raun­veru­leika­sjón­varpi og er honum fagnað eins og Nelson Mandela í hvert sinn sem hann birt­ist. Nick leggur þrautir fyrir pörin og gefur föð­ur­leg ráð því þau líta á hann sem lang­tíma­sam­bands gúrú því hann er jú giftur. Parið sem vinnur þraut dags­ins fær svo að fara upp í her­bergi sem lítur út eins rann­sókn­ar­stofa í klám­mynd. Þar velja þau nýja ein­hleyp­inga í heim­sókn sem skekkir kynja­hlut­fallið og hleypir öllu í bál og brand. Það er áhuga­vert að horfa á hóp af ungu fólki, sem er alið upp í harð­neskju­legum heimi nýfrjáls­hyggj­unnar og stefnu­móta­for­rita, reyna að finna ást­ina. Mig grunar að þau haldi að það sé hægt að eign­ast ást og leiðin til þess sé að fara á lík­ams­rækt­ar­stöð, raka af sér öll lík­ams­hár, blása upp rétta lík­ams­parta með mis-kemískum leiðum og fara út í lífið og máta fólk eins og buxur. Þætt­irnir eru þrátt fyrir allt ágætis frí frá ham­fara­hlýnun og erf­iðum fréttum. Í raun og veru virka þeir eins og kvíða­lyf, því eftir heila þátta­röð af þessu rugli þá er heimsendir eða öllu heldur enda­lok mann­kyns­ins ekki svo skelfi­leg til­hugsun og ef til vill væri bara ágætt að hér yxi aftur skógur og fuglar him­ins fengju að flögra um án þess að við værum að flokka þá og telja, skjóta og éta.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sófakartaflan

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár