Segir svarta skýrslu gagnlega „til þess að gera hlutina öðruvísi“

For­sæt­is­ráð­herra segir að taka eigi skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um stöðu fisk­eldis á Íslandi með auð­mýkt. „Sam­ein­umst um það að gera betur í þessum málum.“ Hún var spurð á Alþingi í dag hvort hún væri stolt af því að „einn helsti vaxt­ar­sproti íslensks efna­hags­lífs“ skyldi búa við óboð­legt og slæ­legt eft­ir­lit og að stjórn­sýslan væri í molum.

Segir svarta skýrslu gagnlega „til þess að gera hlutina öðruvísi“
Svört skýrsla For­sæt­is­ráð­herra segir að nota verði nýja skýrslu rík­is­end­ur­skoð­anda til að læra af henni. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að skýrsla rík­is­end­ur­skoð­anda um sjó­kvía­eldi, laga­fram­kvæmd, stjórn­sýslu og eft­ir­lit verði gríð­ar­lega mik­il­vægt og gagn­legt plagg inn í stefnu­mót­un­ar­vinn­una sem stendur yfir á sviði fisk­eldis. Nið­ur­stöð­urnar sýni þann lær­dóm að þegar atvinnu­greinar byggj­ast upp með miklum hraða – eins og fisk­eldið hafi gert – þá sitji oft reglu­verkið og stjórn­sýslan eftir og þró­ist ekki með sama hraða og atvinnu­grein­arnar sjálfar. „Það er lær­dómur sem við höfum auð­vitað getað dregið af ýmsum greinum.“

Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar vakti athygli á mál­inu og sagði meðal ann­ars að það þyrfti að vera skýr rammi í kringum atvinnu­grein sem biði upp á mikil tæki­færi en þyrfti einnig að gera mjög skýrar kröfur til.

Stjórnsýsla og eftirlit með sjókvíaeldi veikburða og brotakennd

Heim­ildin greindi frá helstu nið­ur­stöðum skýrslu rík­is­end­ur­skoð­anda um sjó­kvía­eldi, laga­fram­kvæmd, stjórn­sýslu og eft­ir­lit sem birt­ist í morgun. 

Þar meðal ann­ars fram að stjórn­sýsla og eft­ir­lit með sjó­kvía­eldi hafi reynst veik­burða og brota­kennd og vart í stakk búin til að takast á við aukin umsvif grein­ar­innar á síð­ustu árum. 

Þar kemur enn fremur fram að breyt­ingum á lögum um fisk­eldi sem var ætlað að stuðla að vexti og við­gangi grein­ar­innar í sátt við bæði sam­fé­lag og umhverfi hafi ekki verið fylgt eftir með því að styrkja stjórn­sýslu og eft­ir­lit þeirra stofn­ana sem mæðir mest á. 

Rík­is­end­ur­skoð­andi leggur fram 23 ábend­ingar um úrbætur. Þær snúa meðal ann­ars að ákvörðun og útboði eld­is­svæða, burð­ar­þols­mati þar sem skýra þarf fram­kvæmd, end­ur­skoðun leyf­is­veit­inga sjó­kvía­eldis, aukið sam­starf stofn­ana í aðdrag­anda leyf­is­veit­ingar, sam­ræmi við end­ur­skipun og breyt­ingar á rekstrar- og starfs­leyfum, mót­væg­is­að­gerðir og vöktun vegna stroks og að tryggja verði mark­vissa beit­ingu þving­unar­úr­ræða, sekta og nið­ur­fell­ingu rekstr­ar­leyfa. 

Skýrslan áfellisdómur um framkvæmdarvaldið

Þor­gerður Katrín hóf mál sitt á því að segja að skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar um stöðu fisk­eldis í land­inu væri svört. „Hún er áfell­is­dómur um fram­kvæmd­ar­valdið og allt utan­um­haldið utan um þessa ann­ars mik­il­vægu atvinnu­grein,“ sagði hún og vitn­aði í skýrsl­una: „Sam­þjöppun eign­ar­halds, stefnu­laus upp­bygg­ing og rekstur sjó­kvía á svæðum sem vinna gegn því að auð­lindin skili hámarks­á­vinn­ingi fyrir rík­is­sjóð hefur fest sig í sessi án mik­illar umræðu eða atbeina stjórn­valda. Verð­mætum í formi eld­is­svæða og lífmassa hefur verið úthlutað til lengri tíma án end­ur­gjalds.“

Hún spurði hvort rík­is­stjórnin hefði eftir sex ára setu raun­veru­lega ekki meiri metnað fyrir hönd þeirrar ört vax­andi og stækk­andi og mik­il­vægu atvinnu­greinar sem fisk­eldið væri. „En það má líka spyrja hvort það gildi einu hvaðan útflutn­ings­tekj­urnar koma, þótt það sé á kostnað umhverfis, þótt það sé á kostnað nátt­úr­unnar, góðrar stjórn­sýslu og heil­brigðrar atvinnu­upp­bygg­ingar og hvað þá í sátt við sam­fé­lagið.

Rík­is­stjórnin hefur, eins og ég segi, haft sex ár til að koma þess­ari mik­il­vægu atvinnu­grein inn í ramma sem við gætum öll verið stolt af og líka lært svo­lítið af því sem gerð­ist í kringum sjáv­ar­út­veg­inn. Ef rík­is­stjórnin tekur þessa skýrslu ekki alvar­lega – það kæmi mér reyndar á óvart að hún gerði það miðað við for­sög­una. Rík­is­stjórnin verður að taka þessa skýrslu alvar­lega, ann­ars verður næsta þátta­röð, Verbúðin 2, ein­fald­lega um fisk­eldið,“ sagði hún. 

Svört skýrslaÞor­gerður Katrín var myrk í máli þegar hún tal­aði um skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar

Þor­gerður Katrín spurði Katrínu hvort hún væri stolt af því að einn helsti vaxt­ar­sproti íslensks efna­hags­lífs skyldi búa við óboð­legt og slæ­legt eft­ir­lit, eins og kæmi fram í skýrslu rík­is­end­ur­skoð­anda, og að stjórn­sýslan væri í molum. „Er það boð­legt að nátt­úran sé sett til hliðar? Er það boð­legt að eðli­legt gjald fyrir tíma­bundið leyfi hefur ekki verið greitt fyrir auð­lind­ina? Ég vænti þess að for­sæt­is­ráð­herra svari mjög skýrt og gefi út skýr skila­boð til atvinnu­grein­ar­innar en líka til sam­fé­lags­ins alls,“ sagði hún. 

Ánægð með að matvælaráðherra hefði farið af stað í þessa vegferð

Katrín þakk­aði Þorgerði Katrínu fyrir að vekja máls á skýrsl­unni. Hún benti á að ekki hefði komið fram í máli þing­manns­ins að Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefði óskað eftir úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á þessum mála­flokki, óskað eftir því að slík stjórn­sýslu­út­tekt næði yfir alla stjórn­sýslu mála­flokks­ins, allt frá und­ir­bún­ingi lög­gjafar og setn­ingu afleiddra reglna til eft­ir­lits með starf­semi fyr­ir­tækja í grein­inni. Fram hefði komið hjá Svandísi að henni hefði fund­ist mik­il­vægt að fá einmitt Rík­is­end­ur­skoðun, stofnun sem nyti trausts, til að fram­kvæma þessa úttekt til að tryggja að Alþingi fengi í raun og veru tæki­færi sam­hliða fram­kvæmd­ar­vald­inu til að fara yfir stöð­una. Á meðan beðið var eftir þess­ari stjórn­sýslu­út­tekt hefði verið dregið úr útgáfu nýrra leyfa.

„Ég vil segja það að ég er gríð­ar­lega ánægð með það að hæst­virtur mat­væla­ráð­herra hafi farið af stað í þessa veg­ferð því það skiptir svo sann­ar­lega máli með til­tölu­lega nýja atvinnu­grein að við fáum þetta heild­ar­yf­ir­lit. Þó að skýrslan sé svört þá getur hún einmitt þess vegna verið gagn­leg fyrir okkur til þess að gera hlut­ina öðru­vísi. 

Ég sé ekki betur, þó að ég hafi ekki setið fund­inn í morgun, að þetta verði gríð­ar­lega mik­il­vægt og gagn­legt plagg inn í stefnu­mót­un­ar­vinn­una sem stendur yfir á sviði fisk­eldis og sýnir okkur auð­vitað þann lær­dóm að þegar atvinnu­greinar byggj­ast upp með miklum hraða, eins og fisk­eldið hefur gert, þá situr oft reglu­verkið og stjórn­sýslan eftir, þró­ast ekki með sama hraða og atvinnu­grein­arnar sjálfar. Það er lær­dómur sem við höfum auð­vitað getað dregið af ýmsum greinum,“ sagði hún. 

Ráð­herr­ann vildi að skila­boðin væru skýr. „Þessi skýrsla er ekki ein­hver enda­lok máls. Hún er und­ir­staðan fyrir frek­ari vinnu og nú reynir á að það verði einmitt brugð­ist við með skyn­sam­legum hætti til allrar fram­tíðar.“

Hvetur ríkisstjórnina til að taka orð ráðherra alvarlega

Þor­gerður Katrín steig aftur í pontu og tal­aði um að það sem skipti máli væri að Íslend­ingar byggju þess­ari ört vax­andi atvinnu­grein skýran ramma sem tæki til­lit til byggð­anna, til atvinnu­grein­ar­innar en líka til nátt­úru, til umhverfis og að stjórn­sýslan væri sterk og gegnsæ. 

„Ég ótt­að­ist það auð­vitað áður en ég heyrði svar for­sæt­is­ráð­herra að – ég þakka fyrir að þessi rík­is­stjórn var til dæmis ekki þegar við vorum að móta lög­gjöf um raf­ork­una. Gjöldin af raf­orkunni renna til sam­fé­lags­ins. Þar eru tíma­bundnir samn­ingar. Það má segja að ef við­horf þess­arar rík­is­stjórnar hefðu mótað reglu­verkið í kringum raf­ork­una, sem skýr rammi er sem betur fer um, þá værum við örugg­lega að tala um það að íslensk raf­orka væri kannski undir Norsk hydro í dag. Það þarf að vera strax skýrt hvernig ramma við ætlum að móta í kringum atvinnu­grein sem býður upp á mikil tæki­færi en þarf líka að gera mjög skýrar kröfur til. Þar komum við einmitt að prinsippum í póli­tík, um auð­linda­gjöld sem þessi rík­is­stjórn hefur ekki viljað taka. 

Og hver voru skila­boð þess­arar rík­is­stjórnar á þessu ári? Þau voru að lækka gjöldin á fisk­eldi í land­inu. Það eru einu skila­boðin sem hafa komið frá rík­is­stjórn­inni,“ sagði hún en hún vildi hvetja rík­is­stjórn­ina til að taka þá þessi orð ráð­herra alvar­lega og taka skýrsl­una til sín og vinna úr henni. „Það eru miklir hags­munir fólgnir, bæði fyrir fisk­eld­is­fyr­ir­tækin, lands­byggð­ina en ekki síst almenn­ing og sam­fé­lagið allt.“

 Svigrúm til úrbóta

Katrín svar­aði aftur og sagði að mat­væla­ráð­herra hefði talað alger­lega skýrt. „Hún vill einmitt að þessi atvinnu­grein bygg­ist upp á sjálf­bærum grunni. Hún hefur talað alger­lega skýrt um það að ástæðan fyrir því að hún biður um þessar úttektir er að hún vill gagn­sæja og opna umræðu þannig að þessi atvinnu­grein sé ekki bara út frá for­sendum efna­hags heldur líka sam­fé­lags og umhverf­is­ins. En það eru auð­vitað ýmsar athuga­semdir gerðar í þess­ari skýrslu og það geta fleiri tekið þær til sín en hæst­virt rík­is­stjórn,“ sagði ráð­herr­ann. 

Hún sagði í fram­hald­inu að Þor­gerður Katrín hefði nú verði „sá ráð­herra sem skip­aði einmitt starfs­hóp með hags­muna­að­ilum sem Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semd við“. 

„Eigum við ekki að nálg­ast þetta verk­efni af auð­mýkt og taka höndum saman? Ég held að við getum öll verið sam­mála um að það er svig­rúm til úrbóta, svo sann­ar­lega. Ég er alveg hand­viss um að hæst­virtur mat­væla­ráð­herra tekur þetta alvar­lega og mun vinna úr þessu og ég von­ast til þess að um það geti verið þverpóli­tísk sátt hérna í þing­inu því að ég held að það skipti máli að við séum með­vituð um að þessi lög­gjöf, sem var end­ur­nýjuð á síð­asta kjör­tíma­bili, hafði áður verið í gildi frá árinu 2008, þannig að við erum ansi mörg hér sem höfum setið á þingi á þeim tíma. Tökum þessu með auð­mýkt og sam­ein­umst um það að gera betur í þessum málum,“ sagði hún. 

Þor­gerður Katrín kom síðar í ræðu­stól Alþingis og gerði athuga­semdir við orð ráð­herr­ans og benti á að hún hefði ekki verið ráð­herra þegar fyrr­nefndur starfs­hóp­ur­inn var skip­aður. Katrín brást við og baðst afsök­unar á orðum sínum, Þor­gerður Katrín hefði í reynd ekki verði ráð­herra á þeim tíma í lok árs 2016. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    " Þær snúa meðal annars að ákvörðun og útboði eldissvæða"
    Þau fyrirtæki sem eru fyrir hrifsa til sín öll ný leyfi, aðrir komast ekki að. Það er afsakað með að allt þurfi að vera á einni hendi til að koma í veg fyrir smit osfv.
    1
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Við verðum öll að læra af þessu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár