Telur að traust erlendra stjórnvalda glatist ef upplýst sé um fjölda neyðarvegabréfa

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að utan­rík­is­ráðu­neytið þurfi ekki að upp­lýsa um hversu mörg neyð­ar­vega­bréf hafi verið útgefin á grund­velli nýrrar reglu­gerðar sem und­ir­rituð var í fyrra. Það tók nefnd­ina 252 daga að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu. Fullyrt hefur verið að reglu­gerð­inni hafi verið breytt eftir að Ragnar Kjart­ans­son leit­aði til Katrínar Jak­obs­dóttur um aðstoð fyrir Pussy Riot.

Telur að traust erlendra stjórnvalda glatist ef upplýst sé um fjölda neyðarvegabréfa
Ráðherra Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra fékk heim­ild til að gefa út sér­stöku vega­bréfin við und­ir­ritun reglu­gerðar sem tók gildi í apríl í fyrra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur stað­fest að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi mátt neita að upp­lýsa Heim­ild­ina um hversu mörg neyð­ar­vega­bréf hafi verið gefin út á grund­velli reglu­gerðar sem utan­rík­is­ráð­herra und­ir­rit­aði í apríl í fyrra. Greint hefur verið frá því að reglu­gerðin hafi verið sett eftir að lista­mað­ur­inn Ragnar Kjart­ans­son, sem hefur verið í fram­boði fyrir Vinstri græna, óskaði eftir aðstoð frá rík­is­stjórn­inni fyrir hina rúss­nesku Mariu Alyok­hina, aðgerð­­ar­sinna og liðs­­konu rús­s­­nesku pön­k­rokksveit­ar­innar Pussy Riot svo hún gæti flúið Rússland. 

Utan­rík­is­ráðu­neytið vís­aði til þess í umsögn til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar að ef upp­lýs­ing­arnar kæmust á vit­orð erlendra stjórn­valda, sér í lagi stjórn­valda í heima­landi þess erlenda ein­stak­lings sem fær útgefið íslenskt vega­bréf af sér­stökum ástæðum, gæti það haft skað­leg áhrif á tengsl Íslands við önnur ríki, sem myndi raska þeim almanna­hags­munum sem eru vernd­ar­and­lag 10. greinar upp­lýs­inga­laga. Þá gæti afhend­ing upp­lýs­ing­anna einnig haft áhrif á til­trú og trú­verð­ug­leika íslenskra vega­bréfa. Í úrskurði nefnd­ar­innar er greint frá því að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi komið á fram­færi við­bót­ar­skýr­ingum á fundi með úrskurð­ar­nefnd­inni til fyll­ingar fram­an­greindum sjón­ar­miðum. Ekki er til­greint í úrskurð­inum hvaða við­bót­ar­skýr­ingar þar sé um að ræða. 

Í nið­ur­stöðu sinni segir úrskurð­ar­nefndin að hún telji ótví­rætt að gögnin sem óskað var eftir falli undir ákvæði 2. tölu­liðar 10. greinar upp­lýs­inga­laga. Sá liður veitir heim­ild til að tak­marka aðgang almenn­ings að gögnum þegar mik­il­vægir almanna­hags­munir krefj­ist og 2. tölu­liður heim­ilar slíka tak­mörkun þegar gögnin hafa að geyma upp­lýs­ingar um sam­skipti við önnur ríki eða fjöl­þjóða­stofn­an­ir. Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar segir að hún fall­ist á „það mat ráðu­neyt­is­ins að ef gögnin yrðu afhent kynni það að leiða til þess að traust erlendra stjórn­valda á íslenskum stjórn­völdum glat­að­ist og þannig raska mik­il­vægum almanna­hags­munum sem ákvæð­inu er ætlað að vernda.“ 

Þar er ekki greint efn­is­lega frá því með hvaða hætti nefndin telur það traust geta glat­ast.

Neyðarvegabréf við „sérstakar aðstæður“

Umrædd reglu­gerð var und­ir­rituð 26. apríl síð­ast­lið­inn. Í henni felst að Þór­­­dís Kol­brún Reyk­­­fjörð Gylfa­dóttir utan­­­­­rík­­­is­ráð­herra má nú óska þess að Útlend­inga­­­stofnun gefi út vega­bréf til útlend­ings „ef sér­­­stakar ástæður eru fyrir hend­i“. 

Í reglu­­gerð­inni er sér­­­stak­­­lega tekið fram að hægt sé að láta útlend­ing fá slíkt neyð­­­ar­­­vega­bréf jafn­­­vel þótt hann sé ekki lög­­­­­lega búsettur hér­­­­­lend­­­is. Ut­an­­­rík­­­is­ráð­herra má nú líka fela send­i­­­skrif­­­stofum Íslands og kjör­ræð­is­­­mönnum að gefa út neyð­­­ar­­­vega­bréf til útlend­ings til allt að eins mán­að­­­ar.

Kjarn­inn, sem hefur nú runnið inn í Heim­ild­ina, óskaði í maí í fyrra eftir upp­­­lýs­ingum um hversu mörg vega­bréf hefðu verið gefin út á þeim tæpa mán­uði sem lið­inn var síðan að reglu­­­gerðin tók gildi og hvenær þau voru útgef­in. Ekki var óskað eftir upp­lýs­ingum um hverjir hefðu fengið úthlutað slíkum vega­bréfum.

Ráðu­­­neytið neit­aði að svara þeirri fyr­ir­­­spurn með vísum í 9. og 10. grein upp­­lýs­inga­laga. Kjarninn/Heim­ildin taldi að hvorug greinin ætti við um þá upp­­lýs­inga­beiðni sem send var, enda snýst hún um óper­­són­u­­grein­an­­lega töl­fræði.

Flúði RússlandMaria Alyok­hina, með­limur Pussy Riot, flúði heima­land sitt Rússland eftir að hafa verið úrskurðuð í vist í fanga­búðum. Áður hafði hún verið inn og út úr fang­elsum fyrir að hafa mót­mælt stjórn­ar­fari Pútíns.

For­­dæmi er fyrir því að utan­­­­­rík­­­is­ráðu­­­neytið veiti per­­­són­u­­­grein­an­­­legar upp­­­lýs­ingar um ein­stak­l­inga sem hafa fengið sér­­­­­stök vega­bréf. Það gerð­ist haustið 2005 þegar Mörður Árna­­­son, þáver­andi þing­­­maður Sam­­­fylk­ing­­­ar­inn­­­ar, spurði Geir H. Haarde, þáver­andi utan­­­­­rík­­­is­ráð­herra, um þá ein­stak­l­inga sem höfðu ann­­­ars vegar diplómat­ísk vega­bréf og hins vegar svokölluð þjón­ust­u­­­vega­bréf. Geir birti lista með nöfnum allra þeirra ein­stak­l­inga í svari við skrif­­legri fyr­ir­­spurn Marðar á Alþing­i. 

Kjarn­inn/Heim­ildin kærði ákvörðun utan­rík­is­ráðu­neytið um að svara ekki fyr­ir­spurn hans til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. Kæran var tekin til með­ferðar 23. maí í fyrra. Nið­ur­staða lá fyrir í gær, eða 252 dögum síðar. Sam­kvæmt lögum á nefndin að birta úrskurð í málum að jafn­aði innan 150 daga frá því að kæra er mót­tek­in. 

Hlutverk Ragnars Kjartanssonar

Þann 11. maí í fyrra birt­ist umfjöllun í New York Times um að lista­mað­ur­inn Ragn­ar Kjart­ans­son, sem var fram­­bjóð­andi Vinstri grænna í síð­­­ustu kosn­­ing­um og hefur leikið í kosn­inga­aug­lýs­ingum fyrir flokk­inn ásamt því að styðja Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á opin­berum vett­vangi, hefði aðstoðað Alyok­hina á flótta sínum frá Rús­s­landi. Í umfjöll­un­inni kom fram að Ragnar hefði fengið ónefnt Evr­­ópu­land til að gefa út ferða­skil­­ríki sem veitti Alyok­hina sömu stöðu og íbúar Evr­­ópu­­sam­­bands­ins. Ferða­skil­­ríkj­unum var smyglað inn til Hvíta-Rús­s­lands svo hún gæti notað þau til að kom­­ast þaðan og yfir til Lit­há­ens.

Alyok­hina not­aði í kjöl­farið þessi nýju ferða­skil­­ríki til að Pussy Riot gæti haldið tón­­leika­­ferð í Evr­­ópu. 

Stundin, sem nú er hluti af Heim­ild­inni, greindi frá því þann 9. des­em­ber í fyrra að Alyok­hina hefði fengið útgefið sér­stakt vega­bréf á Íslandi á grund­velli áður­nefndar reglu­gerðar. Í umfjöll­un­inni sagði að fjöl­mið­ill­inn hefði heim­ildir fyrir því að Ragnar hefði leitað til Katrínar Jak­obs­dóttur um aðstoð við að tryggja Alyok­hina íslenskt vega­bréf og það hafi leitt til þess að reglu­gerðin var sett.

Ragnar vildi hvorki játa því né neita í sam­tali við Stund­ina/Heim­ild­ina hvort Katrín hefði verið á meðal þeirra sem hann hafi þurft að sann­færa til að hægt væri að gefa út sér­stakt vega­bréfa fyrir Alyok­hina. For­sæt­is­ráðu­neytið neit­aði að tjá sig um mál­efni ein­stak­linga í svari til Stund­ar­innar/Heim­ild­ar­innar en þar sagði að for­sæt­is­ráð­herra sam­gleðj­ist „bæði Mariu Alyok­hina og félögum hennar í Pussy Riot að þau hafi tæki­færi til þess að nýta sér list­rænt og póli­tískt tján­ing­ar­frelsi sitt.“

Utan­rík­is­ráðu­neytið neit­aði líka að tjá sig efn­is­lega um mál­ið þegar Stundin/Heim­ildin leit­aði eftir því.

Hægt er að lesa úrskurð nefnd­ar­innar í heild sinni hér.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár