Meirihluti íbúa telur stórfyrirtækið reyna að kaupa sér velvild með fjárstyrkjum

Þýska sem­ents­fyr­ir­tækið ver pen­ingum í styrk­veit­ingar í Ölfusi til að reyna að auka vel­vild íbúa í sinn garð í aðdrag­anda bygg­ingar möl­un­ar­verk­smiðju í Þor­láks­höfn. Þetta er mat meiri­hluta íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu, sam­kvæmt könnun sem Maskína gerði fyrir Heim­ild­ina. Tals­maður Heidel­bergs, Þor­steinn Víglunds­son. hefur lýst and­stæðri skoðun í við­tölum um styrk­ina og sagt að það sé af og frá að þetta vaki fyrir þýska fyr­ir­tæk­inu.

Meirihluti íbúa telur stórfyrirtækið reyna að kaupa sér velvild með fjárstyrkjum
Meiri­hlut­inn ósam­mála Þor­steini og Heidel­berg Meiri­hluti íbúa í Ölfusi telur að þýska sem­ents­fyr­ir­tækið Heidel­berg reyni að kaupa sér vel­vild íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu með fjár­styrkjum til félaga­sam­taka og líknkar­fé­laga. Þor­steinn Víglunds­son, tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi, hefur sagt að þetta sé af og frá mark­mið félags­ins.

Meiri­hluti íbúa í Ölfusi telur að þýska sem­ents­fyr­ir­tækið Heidel­berg sé að reyna að kaupa sér vel­vild íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu með því að veita félaga­sam­tökum þar fjár­styrki. Þetta er nið­ur­staðan úr könnun sem Maskína vann fyrir Heim­ild­ina. Heidel­berg veitti 3,5 millj­óna króna styrki til slíkra félaga í Ölfusi fyrir jól, meðal ann­ars til björg­un­ar­sveit­ar­innar Mann­bjargar.  Heim­ildin fjall­aði um styrk­ina nú í jan­úar. 

Heidel­berg ætlar að byggja verk­smiðju í Þor­láks­höfn sem á að mala móberg til útflutn­ings. Móbergs­muln­ing­inn á svo að nota í sem­ents­gerð.  Bygging verk­smiðj­unnar er umdeild í Þor­láks­höfn og Ölfusi og sýnir við­horfskönnun Maskínu til dæmis að rúm­lega tvö­falt fleiri íbúar eru á móti verk­smiðj­unni en eru fylgj­andi henni. Áður en af bygg­ingu verk­smiðj­unnar verður ákveðin mun fara fram íbúa­kosn­ing um hana. Heidel­berg þarf því á end­anum að stóla á stuðn­ing íbúa Ölfuss ef verk­smiðjan á að verða byggð. 

„Mér dettur ekki í hug að styrkir okkar til sam­fé­lags­legra verk­efna í Þor­láks­höfn breyti nokkru um það hvort fólk vilji hafa þessa verk­smiðju þarna eða ekki.“
Þor­steinn Víglunds­son,
tals­maður Heidel­berg á Íslandi

Meirihluti bæjarbúa ósammála Þorsteini

Þor­steinn Víglunds­son, tals­maður Heidel­bergs á Íslandi og fyrr­ver­andi ráð­herra, steig fram í kjöl­far frétta­flutn­ings Heim­ild­ar­innar um styrk­ina og sagði að það væri af og frá að fyr­ir­tækið væri að reyna að kaupa sér vel­vild með styrkj­unum. „Fyr­ir­tækið hafnar alfarið grófum aðdrótt­unum um nokk­urs konar mútu­starf­semi eða óeðli­leg sam­skipti í því skyni að kaupa sér vel­vild eða fyr­ir­greiðslu.“

Miðað við svör íbúa í Ölfusi um styrk­veit­ingar Heidel­bergs í könnun Maskínu telur meiri­hluti þeirra hins vegar að þýska fyr­ir­tækið sé að reyna að kaupa sér vel­vild íbúa með styrkj­unum. 52,5 pró­sent þeirra sem svör­uðu voru fremur eða mjög sam­mála því að Heidel­berg væri að reyna að kaupa sér vel­vild íbúa í Ölfusi á meðan 24,3 pró­sent voru mjög eða fremur ósam­mála því að sem­ents­fyr­ir­tækið væri að reyna að kaupa sér vel­vild íbú­anna. 

Þor­steinn segir í við­tali við Heim­ild­ina í dag að honum þyki sú túlkun „súr að Heidel­berg sé að reyna að kaupa sér stuðn­ing íbúa: „Bara svo það sé skýrt, og það var þetta sem mér mis­bauð í ykkar frétta­flutn­ingi, að það að líta á sam­fé­lags­lega styrki sem til­raun til að bera fé á fólk og hafa áhrif á umræð­una í sam­fé­lag­inu finnst mér algjör­lega fjar­stæðu­kennt. Mér dettur ekki í hug að styrkir okkar til sam­fé­lags­legra verk­efna í Þor­láks­höfn breyti nokkru um það hvort fólk vilji hafa þessa verk­smiðju þarna eða ekki.“

Miðað við svör íbúa Ölfuss í könnun Maskínu er meiri­hluti þeirra ósam­mála þess­ari túlkun Þor­steins og Heidel­bergs á til­gangi fjár­styrkj­anna.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sævar Helgason skrifaði
    Ibúar Hafnarfjarðar höfnuðu, meira en tvöföldun stækkunnar Ísal , fyrir einum og hálfum áratug-í íbúakosningu . Fólki hugnaðist ekki svoleiðis risaverksmiðja inni í bænum. Þó átti og á ÍSAL mikla velvild í bænum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðarmenn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.
Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Stóriðja og land­eldi takast á í eitr­uðu andrums­lofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.
Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár