Gaf 2.000 milljarða króna til góðgerðamála eftir skilnað við ríkasta mann í heimi – og er rétt að byrja

MacKenzie Scott var gift Jeff Bezos, stofn­anda Amazon, í 25 ár. Við skilnað þeirra árið 2019 hét hún því að gefa að minnsta kosti helm­ing auð­æfa sinna til góð­gerða­mála. Hún er á góðri leið með að takast ætl­un­ar­verkið og hefur nú opnað vef­síðu þar sem fylgj­ast má með hvert fjár­mun­irnir renna.

Gaf 2.000 milljarða króna til góðgerðamála eftir skilnað við ríkasta mann í heimi – og er rétt að byrja
Mann­vin­ur­inn MacKenzie Scott fékk fjögur pró­sent hlut í Amazon við skilnað hennar við Jeff Bezos, þá rík­asta mann heims, sem og 38 millj­arða Banda­ríkja­dala og hefur hún heitið því að gefa að minnsta kosti helm­ing­inn til góð­gerða­mála. Mynd: AFP

Mann­vin­ur­inn og rit­höf­und­ur­inn MacKenzie Scott hefur gefið yfir 14 millj­arða Banda­ríkja­dala til meira en 1.600 góð­gerða­sam­taka og félaga sem rekin eru án hagn­að­ar­sjón­ar­miða. Það eru rúm­lega tvö þús­und millj­arðar króna. 2.005.920.000.000 krónur nánar til­tekið. 

Scott var gift Jeff Bezos, stofn­anda og fyrrum for­stjóra Amazon í ald­ar­fjórð­ung. Þau skildu árið 2019 eftir að upp komst um fram­hjá­hald hans og fjöl­miðla­kon­unnar Lauren Sánches, sem var gift vini Bezos. 

Scott kom að stofnun Amazon árið 1994. Þegar þau skildu var Bezos rík­asti maður í heimi og átti yfir 16 pró­sent hlut í Amazon. Scott fékk fjögur pró­sent hlut í Amazon við skiln­að­inn sem og 38 millj­arða Banda­ríkja­dala og hefur hún heitið því að gefa að minnsta kosti helm­ing­inn til góð­gerða­mála. Samkvæmt úttekt Forbes hefur eng­inn millj­arða­mær­ingur losað sig jafn hratt við auð­æfi sín og Scott. 

Hún er nú á góðri leið að ná því. Auðæfi Scott eru í dag metin á 30,5 millj­arða Banda­ríkja­dala og var hún í 30. sæti yfir rík­ustu ein­stak­linga heims á síð­asta ári. Í des­em­ber opn­aði Scott heima­síðu, Yield Giving, þar sem finna má yfir­lit yfir sam­tök og félög sem hún veitir fjár­magn. Áður hafði hún nýtt sér The Giving Pledge, her­ferð Warren Buffett og Bill Gates sem hafa vermt efstu sæti list­ans yfir rík­ustu menn heims árum saman.

Á heima­síðu The Giving Pledge geta millj­arða­mær­ingar ráð­stafað fjár­munum sínum til ýmissa góð­gerða­mála. Fjöl­margir millj­arða­mær­ingar tóku her­ferð­inni fagn­andi og skráðu sig til þátt­töku. Jeff Bezos var ekki á meðal þeirra en hann sagði í sam­tali við frétta­mann CNN í nóv­em­ber að hann ætli að gefa meiri­hluta auð­æfa sinna til að kljást við afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga, auk þess sem hann vill styðja við þau sem geta „sam­einað mann­kyn á tímum mik­illar félags­legrar og póli­tískrar sundr­ungar“.

Auð­jöfrarJeff Bezos og MacKenzie Scott voru gift í ald­ar­fjórð­ung. Þau eru bæði á lista yfir rík­asta fólk í heimi. Þau hafa bæði heitið því að gefa meiri­hlut auð­æfa sinna til góð­gerða­mála.

Árið 2018 varð Bezos rík­asti maður sög­unnar þegar hann varð sá fyrsti á lista Forbes með eignir upp á meira en 100 millj­arða Banda­ríkja­dala. Bezos er næst­rík­asti maður heims sem stendur, á eftir Elon Musk, stofn­anda og eig­anda Tesla, og eru eignir hans metnar á 171 millj­arð Banda­ríkja­dala. 

Hægt að auka virði með því að láta af stjórn

Með stofnun eigin sam­taka og heima­síðu vill Scott veita meiri inn­sýn inn í ferlið og gera það gagn­sætt. Nú getur því hver sem er nálg­ast upp­lýs­ingar um hvernig hún hyggst ráð­stafa auð­æfum sínum til góð­gerða­mála. Nafn sam­tak­anna, Yield Giving, þýðir ein­fald­lega „að gefa af sér“. 

Sam­tök­unum er lýst með eft­ir­far­andi hætti á heima­síð­unni: „Stofnað af MacKenzie Scott til að útdeila fjár­hags­legum auði sem er afrakstur vinnu fjölda fólks.“ Þar segir einnig að nafnið sé til komið þar sem Scott er þeirrar trúar að með því að láta af stjórn sé hægt að auka virði ein­hvers. 

Engir skil­málar fylgja fjár­magn­inu sem Scott gefur og hefur henni verið hrósað fyrir þá nálgun. Meðal þeirra sem hafa fengið styrk frá Scott eru sam­tök sem ein­blína á menntun, alþjóð­leg sam­tök sem eru rekin án hagn­að­ar­sjón­ar­miða, sam­tök sem berj­ast fyrir rétt­indum hinsegin fólks, geð­heil­brigð­is­sam­tök og sam­tök sem aðstoða flótta­fólk. Framlög til hverra sam­taka eru frá nokkur hund­ruð þús­und Banda­ríkja­dölum til tug­millj­óna. 

Miðstöð um áhrifa­ríka mann­gæsku (e. Center for Effective Philant­hropy) eru sam­tök sem eru rekin án hagn­að­ar­sjón­ar­miða sem sér­hæfa sig í að fram­lög til góð­gerða­mála skili sér með sem áhrifa­ríkustum hætti. Mið­stöðin rann­sak­aði aðferða­fræði Scott við veit­ingu styrkj­anna. Þó Scott hafi verið lof­sömuð að mestu fyrir fram­lag sitt hefur hún verið gagn­rýnd fyrir að veita mis háar upp­hæðir. Helsta nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var hins vegar að áhrif styrkja sem Scott veitti á 12 mán­aða tíma­bili, sum­arið 2020 til sum­ars­ins 2021, „hafa verið gíf­ur­lega og ákaf­lega jákvæð“. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurborg Matthíasdóttir skrifaði
    Þyrftir að leiðrétta fyrirsögnina sem gefur í skyn að hann hafi átt peningana en ekki þau saman. Þau voru ríkasta fólk í heimi. Í fyrirsögninni felst því miður kvenfyrirlitning.
    1
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      Ef þau hafa gert eignaskiptasamning við brúðkaupið hafa þau ekki átt eignirnar saman.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár