Olíubílstjórar hjá Skeljungi og Olíudreifingu leggja drög að kröfugerð

Félagar í Eflingu sem starfa við akstur olíu­flutninga­bíla hjá Skeljungi og Olíu­dreifingu hittust í gær og var á þeim fundi skipuð sameiginleg samninga­nefnd félags­manna hjá báðum fyrir­tækjum og drög lögð að kröfugerð.

Eflingarfélagar sem starfa við akstur olíuflutningabíla hjá Skeljungi og Olíudreifingu hittust á fundi í Félagsheimili Eflingar í gærkvöldi.
Efl­ing­ar­fé­lagar sem starfa við akstur olíu­flutn­inga­bíla hjá Skelj­ungi og Olíu­dreif­ingu hitt­ust á fundi í Félags­heim­ili Eflingar í gær­kvöldi. Mynd: Efling

Skipuð hefur verið sameiginleg samninga­nefnd félags­manna hjá Skeljungi og Olíu­dreifingu og drög lögð að kröfugerð en Eflingar­félagar sem starfa við akstur olíu­flutninga­bíla hjá fyrir­tækjunum hittust á fundi í félags­heimili stéttar­félagsins í gærkvöldi. Olíu­bílstjórar í Eflingu starfa undir sama sérkjarasamningi við olíu­félögin.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Eflingar í dag. 

Trúnaðar­menn Eflingar hjá fyrir­tækjunum stóðu að fundinum í samráði við skrif­stofu félagsins og höfðu áður verið haldnir vinnustaða­fundir hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig, að því er fram kemur í tilkynningunni. 

Nauðsynlegt að meta álag, ábyrgð og meðferð hættulegra efna til launa

Fram kemur að Sólveig Anna Jóns­dóttir formaður Eflingar hafi stýrt fundinum, þar sem ítarlega hafi verið rætt um stöðuna í viðræðum félagsins við SA. 

„Á fundinum kom fram eindreginn stuðningur við baráttu félagsins fyrir ásættanlegum kjara­samningum. Samninga­nefnd Eflingar krafðist hækkunar á launa­flokkum bæði flutninga- og rútu­bílstjóra í seinasta tilboði sínu til SA.

Jafnframt var mikil umræða á fundinum um nauðsyn þess að meta álag, ábyrgð og meðferð hættulegra efna til launa. Olíu­bílstjórar og aðrir sem aka með hættuleg efni þurfa svokölluð ADR-réttindi, en þau er ekki metin til launa í kjara­samningum sem stendur,“ segir í tilkynningu Eflingar. 

Þá segir jafnframt að til fundarins hafi fulltrúum úr samninga­nefnd Eflingar og bílstjórum hjá Samskip einnig verið boðið. Bílstjórar og hafnar­verkamenn hjá Samskip hafi þegar myndað sína eigin samninga­nefnd og sett fram kröfugerð.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Það er feikna ánægjulegt/mikilvægt að sjá og heyra SAMSTÖÐU Eflingar-félaga í öllum atvinnugreinum, enda ómissandi fólk fyrir samfélagið okkar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaradeila Eflingar og SA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár