Sjálfstæðisflokkurinn hagnaðist um 227 milljónir á kosningaári

Fjármál Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru algjör­lega sér á báti í íslensku stjórn­mála­lífi, en á kosn­inga­ár­inu 2021 hagn­að­ist flokk­ur­inn um rúmar 227 millj­ónir króna á meðan allir aðrir flokkar töp­uðu fé, flestir tug­millj­ónum, vegna þess kostn­aðar sem fylgdi því að koma skila­boðum á fram­færi við kjós­endur í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga.

Sjálfstæðisflokkurinn hagnaðist um 227 milljónir á kosningaári
Valhöll Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn seldi bygg­ing­ar­rétt á nýjum reitum við Háa­leit­is­braut 1 fyrir 340 millj­ónir króna árið 2021. Mynd: Jónas Unnarsson

Hagnaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins skýrð­ist þó ekki af því að flokk­ur­inn fengi ríku­legri fram­lög frá hinu opin­bera í krafti þing­styrks og meiri fram­lög frá bæði ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum en aðrir stjórn­mála­flokkar, sem allt er þó rétt, heldur leikur fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni flokks­ins á lóð­inni við Valhöll þar lyk­il­rullu.

Í árs­reikn­ingi flokks­ins fyrir árið 2021 kemur fram að flokk­ur­inn hafi fengið rúmar 340 millj­ónir greiddar fyrir sölu bygg­ing­ar­rétt­ar­ins, en þær upp­lýs­ingar hafði flokk­ur­inn ekki gefið upp áður. Valhöll stendur við Háa­leit­is­braut 1 og þar er nú unnið að því að reisa ann­ars vegar fimm hæða skrif­stofu­bygg­ingu og álíka hátt fjöl­býl­is­hús með 47 íbúðum.

Ef horft er fram­hjá tekj­unum af sölu bygg­ing­ar­rétt­ar­ins hefði tap flokks­ins á árinu 2021 verið meira en allra ann­arra flokka, eða rúmar 110 millj­ónir króna.

Ríkisendurskoðun ekki búin að blessa ársreikning Pírata

Árs­reikn­ingar allra stjórn­mála­sam­taka sem eiga sæti á Alþingi, nema Pírata, eru orðnir aðgengi­legir á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar, en í til­kynn­ingu sem Rík­is­end­ur­skoðun birti í gær sagði að búið væri að birta þá reikn­inga sem borist hefðu og upp­fylltu skil­yrði laga um starf­semi stjórn­mála­sam­taka og leið­bein­ingar Rík­is­end­ur­skoðunar um reikn­ings­hald stjórn­mála­sam­taka.

Samkvæmt svari sem Heim­ildin fékk frá rík­is­end­ur­skoð­anda barst árs­reikn­ingur Pírata innan skila­frests, en skila átti árs­reikn­ing­unum fyrir 1. nóv­em­ber.

Rík­is­end­ur­skoð­andiGuð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi sagði Heim­ild­inni að allir flokkar hefðu skilað á réttum tíma, eða svona hér um bil. Mið­flokk­ur­inn skil­aði sínum reikn­ingi að kvöld­lagi 1. nóv­em­ber.

„Gerðar hafa verið athuga­semdir við reikn­ing­inn og stjórn­mála­sam­tökin fengið frest til að bæta úr ann­mörk­unum. Sá frestur er ekki lið­inn. Ekki er unnt að veita nán­ari upp­lýs­ingar um málið á meðan það er í vinnslu,“ sagði stofn­unin í skrif­legu svari til Heim­ild­ar­innar.

Það virð­ist því sem eitt­hvað í árs­reikn­ingi Pírata standi í rík­is­end­ur­skoð­anda, en árs­reikn­ingur flokks­ins er aðgengi­legur á vef Pírata, dag­settur 8. sept­em­ber.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semdir við árs­reikn­ing flokks­ins. Árs­reikn­ing­ur­inn fyrir árið 2020 skil­aði sér seint til stofn­un­ar­innar, auk þess sem Píratar hafa gert ágrein­ing við Rík­is­end­ur­skoðun um hvernig skuli tekju­færa fram­lög til flokks­ins úr rík­is­sjóði.

Framsókn var skuldugasta stjórnmálaaflið í lok árs 2021

Heim­ildin tók saman lyk­il­tölur úr rekstri flokk­anna árið 2021. Sérstaða Sjálf­stæð­is­flokks­ins er mikil hvert sem litið er. Tekjur flokks­ins námu í heild 708 millj­ónum árið 2021, eigið féð nam rúmum 1,24 millj­örðum í lok árs­ins og skuld­irnar námu alls 465 millj­ónum króna.

Tekjur Vinstri grænna voru næst mestar eða 160 millj­ónir króna, en Sam­fylk­ingin og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn voru með litlu lægri tekjur. Tap allra flokka á rekstr­ar­ár­inu, nema Sjálf­stæð­is­flokks og Sós­í­alista­flokks, nam á bil­inu 27 til 60 millj­óna króna.

Mestu fé tap­aði Flokkur fólks­ins, eða rétt rúmum 60 millj­ónum króna. Flokk­ur­inn hafði þó náð að safna rík­is­fram­lögum síð­asta kjör­tíma­bils saman í digran kosn­inga­sjóð og átti 33 millj­óna króna eigið fé og var svo gott sem skuld­laus undir lok árs 2021

Hið sama verður ekki sagt um suma aðra flokka. Eigið fé Við­reisnar var nei­kvætt um 34 millj­ónir við árs­lok og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var með nei­kvætt eigið fé upp á 26 millj­ónir króna og skuld­aði alls 238 millj­ónir, þegar allt er saman talið.

Fram­sókn­ar­menn geta þó huggað sig við það að flokk­ur­inn stórjók fylgi sitt í kosn­ing­unum og þar með fram­lögin sem flokk­ur­inn fær árlega úr rík­is­sjóði.

Aðrir flokkar voru með jákvætt eigið fé.

Sósíalistar sóttu 11,5 milljónir til einstaklinga

Sós­í­alista­flokk­ur­inn bauð fram til Alþingis í öllum kjör­dæmum. Heild­ar­tekjur flokks­ins árið 2021 námu 18,2 millj­ónum króna og stærstur hluti þess fjár kom frá ein­stak­lingum, alls 11,5 millj­ónir króna.

Það þýðir að Sós­í­alista­flokk­ur­inn sótti meiri fram­lög til ein­stak­linga fyrir síð­ustu kosn­ingar en allir hinir flokk­arnir sem ekki eru hluti af fjór­flokknum svo­kall­aða.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bar af í fram­lögum frá ein­stak­lingum, en flokk­ur­inn fékk 47,9 millj­óna fram­lög frá ein­stak­lingum árið 2021, Framsókn 17,2 millj­ónir og Sam­fylk­ingin 14,1 milljón.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk einnig hæst fram­lög frá lög­að­ilum, 32 millj­ónir króna, en Framsókn fékk 19,9 millj­ónir, Viðreisn 10,7 millj­ónir, Vinstri græn 8 millj­ónir og Mið­flokk­ur­inn 5,8 millj­ónir. Þrír flokkar, Píratar, Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokkur.

Framlögin lækka en eru samt enn miklu hærri en fyrir nokkrum árum

Framlög til stjórn­mála­flokka voru hækkuð veru­lega undir lok árs 2017, er til­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­sent var sam­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­lögum. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka áttu að vera 286 millj­­­­­­ónir króna árið 2018, sam­kvæmt áætl­unum, en urðu 648 millj­­­­­­ónir króna á því ári.

Allir flokkar nema Píratar og Flokkur fólks­ins studdu þessa til­lögu, sem ætlað var að leysa stjórn­mála­flokk­ana úr fjár­hags­legri spenni­treyju í kjöl­far þess að kosið var til Alþingis tvö ár í röð, 2016 og 2017.

Fram­lögin til flokk­anna voru svo hækkuð enn frekar og á síð­asta ári deild­ust 728,2 millj­ónir á milli þeirra níu flokka sem fengu nægj­an­legt fylgi, eða 2,5 pró­sent atkvæða, í kosn­ing­unum árið 2021.

Áætlanir stjórn­­­valda gerðu ráð fyrir því að þessi upp­hæð héld­ist óbreytt út árið 2024, en ákveðið var lækka upp­hæð­ina ögn sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi árs, eða um 36 millj­ónir á ári. Sú ráð­stöfun var einn liður í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar til að draga úr þenslu.

Flokk­arnir munu því skipta á milli sín 692 millj­ónum króna af almannafé á þessu ári, og ættu flestir ekki að vera á flæðiskeri staddir þrátt fyrir þessa lækkun.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár