„Nú fæ ég annan séns“ - Elísabet Jökuls fagnar nýju ári með nýju nýra

Eftir ára­langa þraut­ar­göngu Elísa­betar Jök­uls­dóttur um heil­brigð­is­kerfið, sem kost­aði hana nærri lífið, gekkst hún undir nýrna­ígræðslu á þrett­ánd­anum. Aðgerðin gekk vel og nýrað, sem ku fyrsta flokks, starfar vel. Elísabet er þakk­lát og sæl með aðgerð­ina. Unnur, systir hennar, les fyrir hana milli lækna­heim­sókna.

„Nú fæ ég annan séns“ - Elísabet Jökuls fagnar nýju ári með nýju nýra
Stefnu­mót við nýrað Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir gekkst á dög­unum undir nýrna­ígræðslu í Gauta­borg. Unnur Þóra Jök­uls­dóttir, systir hennar, stökk til með stuttum fyr­ir­vara og fylgdi Elísa­betu utan.

„Það var bara allt í einu hringt og mér boðið nýra, með tveggja tíma fyr­ir­vara,“ segir Elísabet Jök­uls­dóttir skáld í sím­tali frá Gauta­borg, hvar hún var nýbúin að gang­ast undir vel heppn­aða nýrna­ígræðslu.

Eins og fram kom í við­tali Stund­ar­innar við Elísa­betu síð­ast­liðið vor, glímdi hún við alvar­lega nýrna­bilun þar sem virkni þeirra var orðin rétt um 15% af því sem æski­legt er. Því hafði verið ljóst um nokk­urt skeið að Elísabet þyrfti lífs­nauð­syn­lega að gang­ast undir líf­færa­ígræðslu. Afleið­ingar nýrna­bil­un­ar­innar voru marg­vís­legar á líf Elísa­betar, sem glímdi auk þrek­leysis og síþreytu við ítrekuð veik­indi sem fylgja skertri nýrna­starf­semi.

Degi eftir aðgerðElísabet seg­ist varla trúa því hversu vel allt hafi gengið og að nýrað sé strax farið að starfa, svo stuttu eftir ígræðsl­una, segja lækn­arnir sjald­gæft en gott.

Elísabet fékk svo skyndi­lega sím­tal þann 5. jan­úar síð­ast­lið­inn og hafði tvo tíma …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár