Leið til að komast að því hver þú ert

Fyrstu daga ársins gátu borgar­búar varla farið leiðar sinnar án þess að rekast á verk eftir Sigurð Ámundason, sem notaði teikninguna upphaf­lega sem leið til að flýja en ákvað síðar að taka sjónar­horn samtímans á verk gömlu meistaranna.

Listaverk Sigurðurðar Ámunda­sonar voru um gjörvalla borg í upphafi árs 2023. Fyrstu þrjá daga ársins voru verk hans á stóru auglýsinga­skiltunum sem augu vegfarenda leita gjarnan til, viljandi eða ekki, í bílnum á rauðu ljósi. Billboard og Y gallerí standa saman að því að birta myndlist á auglýsinga­skiltum, annað árið í röð. Þar fær myndlistar­maður tækifæri til að sýna seríu af myndlistar­verkum allan sólar­hringinn fyrstu þrjá daga ársins, á 450 led skjáum, við götur og í strætóskýlum, á víð og dreif um höfuð­borgar­svæðið.

Mikilvægi þess að njóta

Í leit sinni að kjarnanum, af hverju fólk tekur sér mynd­listina sem starfs­vettvang, vill Hillbilly ávallt fræðast um æsku fólks og uppeldi. „Heima ólst ég upp með alls konar íslenska myndlistar­menn upp á vegg,“ segir Sigurður og Hilbilly vonar að hann meini verk þeirra. En samt, af hverju myndlist? spyr Hillbilly. „Í myndlist geturðu gert hvað sem þú vilt,“ segir Sigurður. …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

MenningHús & Hillbilly

Suður­land­st­ví­ær­ingur: tala, borða og kanna þanþol

Hópur myndlistar­fólks, hönnuða, arkitekta og tónlistar- og fræða­fólks starfar – borðar og spjallar – saman undir formerkjum Suður­land­st­ví­ær­ingsins. Tvíær­ingurinn (South Iceland Biennale) er lifandi, marg­þjóðlegur, þver­faglegur vettvangur lista, menningar og náttúru. Síðan í sumar hefur hópurinn þróað alls kyns list­viðburði í uppsveitum Suður­lands en fyrst og fremst búið til rými til að eiga frjótt samtal, innan hópsins og út fyrir endimörk tvíær­ingsins.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár