Bíó Tvíó snýr aftur

Hlað­varpið um íslenskar kvik­myndir hefur aftur göngu sína á Stund­inni með aðstoð Kvik­mynda­safns Íslands. Viku­legir auka­þættir um íslenskar heim­ild­ar­myndir, stutt­myndir og sjón­varps­þætti verða einnig í boði.

Bíó Tvíó snýr aftur
Bíó Tvíó Þau Andrea og Steindór eru komin langt með að horfa á hverja ein­ustu kvik­mynd Íslands­sög­unnar, nú síð­ast Ölmu frá 2021.

Bíó Tvíó, hlað­varpið um íslenskar kvik­myndir, hefur aftur göngu sína með viku­legum þáttum hér á Stund­inni. Stjórn­endur hafa sett sér það mark­mið að fjalla um hverja ein­ustu kvik­mynd Íslands­sög­unnar og eru langt komin áleiðis nú þegar þáttur númer 218 er kom­inn í loftið.

Nýjasti þátt­ur­inn fjallar um kvik­mynd­ina Ölmu sem kom út árið 2021 í leik­stjórn Krist­ínar Jóhann­es­dóttur. Stjórn­endur Bíó Tvíó eru Andrea Björk Andr­és­dóttir og Steindór Grétar Jónsson sem hafa séð um þætt­ina síðan þeir hófu göngu sína árið 2016.

Andrea Björk Andr­és­dóttirHlað­varpið Bíó Tvíó fjallar um sjald­gæfa sci-fi frumraun Óskars Jón­as­sonar í auka­þætti.

„Við héldum upp­haf­lega að þetta yrðu um 200 myndir sem við gætum klárað með viku­legum þáttum á nokkrum árum, en svo eru alltaf að koma út nýjar íslenskar kvik­myndir,“ segir Andrea Björk. „Svo eru sumar myndir óað­gengi­legar, bæði gamlar og jafn­vel nýjar. Við erum mjög þakk­lát Kvik­mynda­safni Íslands fyrir að hjálpa okkur að nálg­ast sumar af þeim sem er erfitt að finna ann­ars staðar.“

Til við­bótar þátt­unum vef Stund­ar­innar munu stjórn­endur bjóða viku­lega auka­þætti, Bónus Tvíó, sem hægt er að nálg­ast á Patreon síðu stjórn­enda. „Við ætlum að fjalla um íslenskar heim­ild­ar­myndir, stutt­myndir og sjón­varps­efni, alls konar skemmti­legt sem hlust­endur þátt­anna hafa kallað eftir,“ segir Andrea. „Fyrsti þátt­ur­inn fjallar um frumraun Óskars Jón­as­sonar leik­stjóra, til­rauna­kennda sci-fi stutt­mynd sem heitir Oxsmá plánetan og var gerð af pönka­billy-lista­hópnum Oxsmá árið 1983.“

Þætti Bíó Tvíó má nálg­ast hér á Stund­inni og í öllum helstu hlað­varpsveitum og auka­þætt­ina Bónus Tvíó má finna á Patreon.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár