Mynd: TORWAISTUDIO

Þau selja okkur jólin

Banka­reikn­ingar margra stórra leik­enda í íslensku við­skipta­lífi munu gildna um kom­andi jól við mat­ar­inn­kaup Íslend­inga. Sé mjög hefð­bund­inn jóla­matur á borðum er nær ómögu­legt að kom­ast hjá því að versla við ákveðin fyr­ir­tæki á borð við KS, MS, Ölgerð­ina og Gæða­bakstur auk Emmess­íss eða Kjöríss.

Um jól svigna borð lands­manna undan kræs­ingum ýmiss konar. Árum saman hefur algeng­asti jóla­matur hér á landi verið ham­borg­ar­hryggur en sam­kvæmt könn­unum mörg ár aftur í tím­ann borðar um helm­ingur lands­manna hann á aðfanga­dags­kvöld. Jóla­mál­tíðin er fyrir mörgum ekki síður heilög en messan er fyrir öðrum.

Flest hafa lík­lega heyrt stað­hæf­ing­una „jólin eru hátíð barn­anna“ og ærið mörg líka heyrt stað­hæf­ing­una „jólin eru hátíð kaup­manna“. Þeirri stað­hæf­ingu fylgir gjarnan nei­kvæður tónn. Full­veld­is­árið skrif­aði blaða­maður Þjóð­vilj­ans, í tölu­blaði sem gefið var út á aðfanga­dag: „Þegar ég var barn heyrði ég oft talað um að jólin væru hátíð barn­anna og það ætti að gleðja börnin á jól­unum. Þetta mun að nokkru leyti vera svo enn. Þó virð­ist mér hafa orðið á þessu tölu­verðar breyt­ingar. Jólin eru nú miklu fremur hátíð kaup­manna og fram­leið­enda, þau eru eins konar mark­aðs­há­tíð.“

En hvaða fólk er það sem …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár