Nemandi gefur prófessor einkunn

Það er sér­stök spenna í þess­ari bók sem gerir hana göldrótta, spenna á milli ensku og pólsku skáld­anna, þótt þau séu öll löngu dauð, enda pólskir kirkju­garðar „fullir af nýdauðum skáldum“.

Nemandi gefur prófessor einkunn
Bók

Brim­hólar

Höfundur Guðni Elísson
Lesstofan
Gefðu umsögn

Fyrsti háskólakúrs rúm­lega tví­tugs gutta í bók­mennta­fræði undir lok síð­ustu aldar. Ég er nýkom­inn að norðan þegar pró­fess­or­inn tekur á móti okkur. Yngsti pró­fess­or­inn í deild­inni, mögu­lega undra­barn. Sumir kalla hann hinn íslenska Byron lávarð, ég var ekki nógu vel les­inn í enskum bók­menntum til að skynja sann­leiks­gildi þess, ég kynnt­ist Byron betur síðar.

En þá hefði mig ekki dreymt um að Guðni þessi Elísson myndi skrifa fal­lega litla bók um pólska stelpu á Vest­fjörðum ald­ar­fjórð­ungi síðar. Ég hafði hins vegar búist við bók um strák sem vissi allt um bók­mennta­sögu fyrri alda á Bret­landseyjum. En Guðni gerði bæði í sömu bók, lít­illi bók sem heitir Brim­hólar.

Þegar ég lærði mín fræði þá deildum við Guðni Elísson stundum sömu fag­ur­fræði, stundum ekki. Eins og gengur. Við höfum alltof sjaldan talað almenni­lega saman eftir þessi ár sem hann fræddi mig og gaf mér ein­kunnir fyrir mis­gáfu­legar rit­gerðir – en þegar við …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár