Myndir frá Reyðarfirði sýna stórfellt tjón og laxadauða vegna vetrarsára

Eld­is­laxar drep­ast í stórum stíl vegna vetr­ar­sára í sjó­kvíum við Ísland. Myndir frá Löxum í Reyð­ar­firði sýna kör sem eru full af dauðum löxum í lok árs 2020. Jens Garðar Helgason fram­kvæmda­stjóri Laxa segir að fyr­ir­tækið hafi lent í erf­ið­leikum vegna vetr­ar­sára árið 2020 en að unnið hafi verið að úrbótum til að koma í veg fyrir þetta. 8 til 10 kör af sár­ugum fiski voru fyllt á hverjum degi og hann var not­aður í dýra­fóður.

Myndir frá Reyðarfirði sýna stórfellt tjón og laxadauða vegna vetrarsára
Laxa­dauði vegna vetr­ar­sára Myndir og mynd­bönd af eld­is­löxum hjá Löxum fisk­eldi á Reyð­ar­firði frá árinu sýna kör full af sár­ugum fiskum. Jens Garðar Helgason er fram­kvæmda­stjóri Laxa.

Myndband og myndir sem teknar voru í þjón­ustu­skipi hjá Löxum fisk­eldi í Reyð­ar­firði um haustið og vet­ur­inn árið 2020 sýna lif­andi og dauða eld­is­laxa sem höfðu verið fjar­lægðir úr sjó­kvíum fyr­ir­tæk­is­ins í firð­inum vegna vetr­ar­sára. Á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2020 kóln­aði sjór­inn þar sem umræddar sjó­kvíar eru mjög hratt sem leiddi til þess að Laxar lentu í erf­ið­leikum með vetr­ar­sár á eld­is­löxum og þurftu starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins að fjar­lægja mik­inn fjölda fiska.

Þessi staða kom upp um haustið - fyrstu mynd­irnar eru frá 1. októ­ber - og var ástandið í kví­unum erfitt vegna þess út árið en flestar mynd­anna sem Stundin hefur undir höndum voru teknar í des­em­ber árið 2020. Um er að ræða myndir frá ein­ungis einu kvía­stæði í Reyð­ar­firði en laxar reka þar þrjú eld­is­stæði: Bjarg, Gripaldi og Sig­mund­ar­hús. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar fjar­lægðu starfs­menn 8 til 10 kör af sár­ugum og dauðum fiski á hverjum degi úr kví­unum á …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigríður Björnsdóttir skrifaði
    Eru laxarnir settir lifandi í körin og látnir deyja þar? Fyrirgefið þið en ég hélt að það þyrfti að drepa laxinn áður en hann er settur í körin. Ég er hætt að kaupa eldislax því síðasti reykti eldislax sem ég keypti var löðrandi í olíu og ediki. Var edik notað til að fela vont hráefni?
    0
  • Þórdís Ólafsdóttir skrifaði
    Skelfilegt hætta þessu strax.
    0
  • Thora Bergny skrifaði
    „Við erum með mikla vöktun og eftirlit með velferð fiskanna okkar. Það er í fyrsta forgangi hjá okkur, eins og öllum öðrum bændum, það er velferð dýranna okkar.“
    Þetta er nú meira ruglið Jens Garðar !
    0
  • Jóhanna Harðardóttir skrifaði
    Þetta fiskeldi er hreinasti viðbjóður hvernig sem á það er litið
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Vetrarsár" Skemmtilegt nýyrði. Hvað skyldi verða sagt eða gert ef búfénaður króknaði af vetrarsárum? Forstjórinn virðist telja vetrarsárin sjálfsagðan hlut, við honum sé ekkert hægt að gera.
    Búfé getur komið sér í skjól í frosthörkum, það geta fiskarnir ekki.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár