Kúrs í skapandi skrifum

Í hverju bóka­blaði munu þrír rit­höf­und­ar gefa ráð í skap­andi skrif­um. Les­end­ur geta klippt út ráð­in í hverju blaði – já, eða prent­að þau út af vefn­um – og safn­að þeim, ef þá lang­ar að skrifa.

Hermann Stefánsson

Þér berst kosta­boð frá vafa­samri ferða­skrif­stofu: Að steypa þér fram af bjargi. Þú hugsar ekki málið til enda. Skrif fela í sér tvenns konar áhættu: fjár­hags­lega og and­lega. Í frjálsu falli er hættan aðeins ein. Þó má taka koll­hnís í loft­inu, pósa, snúa sér mjúk­lega í hringi. Leyfðu þér ljóð­rænu og mýkt, syntu. Baðaðu út öngum eins og fugl, settu upp gam­an­leik. Það er feg­urð að falla án afláts og vonar en plokka þó í óslít­andi streng á milli háska og húmors. Rósemdin yfir þér bætir enn á óhugnað þeirra sem upp á horfa. En mundu: Taktu með þér fall­hlíf.

Birna Anna Björnsdóttir

Rútínan er vinur þinn. Helst að snerta á verk­inu dag­lega, hvað sem það þýðir fyrir þig, hálf­tími, klukku­tími, fleiri klukku­tímar. Daglegt inn­lit heldur verk­inu lif­andi innra með þér alla hina klukku­tíma dags­ins og í skrifum ger­ist svo ótrú­lega mikið í und­ir­með­vit­und­inni. Muna svo að setj­ast við þótt þú sért ekki endi­lega í stuði, því hlut­irnir ger­ast um leið og þú byrjar. Texti getur af sér texta. Hug­myndir fæð­ast í ferl­inu.

Þórarinn Leifsson

Besta ráðið sem ég get gefið er að fara eitt­hvert í burtu og slökkva á öllum sam­fé­lags­miðlum og símum. Þetta getur verið Lands­bóka­safnið, sum­ar­bú­staður í kjós eða Airbnb á Spáni. En fólk er mis­jafnt, sumum hentar betur að sitja á fjöl­mennum kaffi­húsum og skima yfir sal­inn meðan þeir hug­leiða næstu setn­ingu. Loks er mik­il­vægt að skrifa um eitt­hvað sem maður þekkir úr eigin lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár