Þrjár dansmyndir frá síðustu öld

Litlu síðra getur verið að liggja graf­kyrr og horfa á kvik­mynd sem snýst um dans en að dansa sjálfur. Sér í lagi á það við um þessar þrjár.

Dans getur bæði verið íþrótt og list, lík­ams­rækt eða aðeins skemmtun. Eða bara allt í senn. Það er þó ekki aðeins með því að hreyfa sinn eigin lík­ama eða sitja í leik­hús­sal sem njóta má dans­ins. Litlu síðra getur verið að liggja graf­kyrr og horfa á eina af þeim hund­ruð dans­mynda sem fram­leiddar hafa verið í Hollywood og víðar.

Hér er listi yfir þrjár kvik­myndir sem myndu vel duga í það verk en eru lík­lega ekki þær sem þér dettur fyrst í hug.

1.

Strictly Ballroom (1992)

Fyrsta kvik­mynd ástr­alska leik­stjór­ans Baz Luhrmann, sem síðar átti eftir að slá í gegn með kvik­mynd­inni Moulin Rouge.

Dans­í­þrótta­mað­ur­inn Scott Hastings, leik­inn af Paul Mercurio, er aðal­per­sóna mynd­ar­innar, sem fjallar um bar­áttu hans fyrir frelsi á dans­gólf­inu. Sögu­sviðið er skipu­lagður heimur sam­kvæm­is­dans­í­þrótt­ar­innar í Ástralíu, þar sem hann er von­ar­stjarnan í dans­skóla for­eldra sinna. …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár