Fréttaritari í jólabókaflóðinu

Bóka­blaðið fékk Kamillu Einars­dóttur, rithöfund og bókavörð á Þjóðar­bókhlöðunni, til að gerast sérlegur frétta­ritari í jóla­bókaflóðinu og fara á stúfana. Hún skrifar um hinar og þessar bækur sem verða á vegi hennar og slúðrar um bókapartí og höfunda.

Þegar Kamilla hitti rithöfundinn heimsfræga, hann David Walliams, sem gerði einnig garðinn frægan í Little Britain.
Þegar Kamilla hitti rit­höf­und­inn heims­fræga, hann David Walliams, sem gerði einnig garð­inn frægan í Little Britain.

Það er greini­lega mjög geðhreinsandi að spá í morð, blóðsút­hellingar og annað ógeð. Mér fannst það alveg augljóst á glæpasagna­hátíðinni Iceland Noir í síðustu viku. Öll sem ég hitti þar voru svo hlý og notaleg. Það er langt síðan ég hef verið knúsuð jafn mikið og þessa daga sem hátíðin var í gangi.

Berna­dine Evaristo

Þetta er reyndar orðið miklu stærri hátíð en bara glæpasagna­hátíð. Bernadine Evaristo, sem skrifaði Stúlka, kona, annað, mætti til dæmis í ár. Líka breski barnabóka­höfundurinn David Walliams og hann fyllti Smáralind og fleiri staði af bóka­þyrstum börnum sem biðu sum í meira en tvær klukku­stundir til að fá hjá honum áritun. Það finnst mér fallegt.

Ég mætti upp í höfuð­stöðvar Arion banka til að hlusta á hann. Ég hef aldrei áður farið á bókmennta­viðburð í banka. Þau ætti að halda fleiri svona. Það voru svo þægileg …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár