Olíufyrirtæki sækja í sig veðrið á loftslagsráðstefnum

Aldrei hafa fleiri full­trúar olíu­fyr­ir­tækja sótt lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna en nú. Vild­ar­kjör á flug, drykkir í flöskum frá risa­fyr­ir­tækj­unum Coca Cola og Nestlé, sem skilja einna mest eftir sig af plast­mengun, var selt á ráð­stefn­unni. Mörgu virð­ist ábóta­vant á ráð­stefnu sem ætti að vera til fyr­ir­myndar í umhverf­is­málum segir vís­inda­fólk.

Olíufyrirtæki sækja í sig veðrið á loftslagsráðstefnum
Á ráð­stefn­una í Egypta­landi mættu fleiri full­trúar frá olíu­fyr­ir­tækjum en nokkru sinni áður á COP ráð­stefnur. Engin sendi­nefnd þeirra landa sem voru á ráð­stefn­unni var fjöl­menn­ari en hóp­ur­inn frá olíu­fyr­ir­tækj­unum ef frá eru taldir full­trúar Egypta sem héldu ráð­stefn­una.

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna í Sharm el-Sheikh í Egypta­landi gekk undir heit­inu COP 27 enda var hún sú tuttug­asta og sjö­unda í röð ráð­stefna Lofts­lags­samn­ings­ins. Á ráð­stefn­unni í París 2015 komust þjóðir heims að sam­komu­lagi um lofts­lags­mál sem sagt var marka tíma­mót í alþjóða­sam­starfi í lofts­lags­málum. Sjö árum og nokkrum lofts­lags­ráð­stefnum síðar er ljóst að enn eiga þjóðir heims langt í land með að ná þeim yfir­lýstu mark­miðum sínum að halda hlýnun jarðar vel undir tveimur gráðum á Celsíus. 

Ráð­stefnan í Sharm el-Sheikh stóð í tvær vikur og lauk á sunnu­dag, degi síðar en áætlað hafði verið því að erf­ið­lega gekk að ná end­an­legu sam­komu­lagi um aðgerðir til að takast á við hlýnun jarðar af manna­völdum. Full­trúar Evr­ópu­ríkja lýstu svo nokkrir yfir óánægju með að ekki hafi tek­ist að semja um að draga enn frekar úr losun.

Þjóð­ar­leið­togar og ýmis félaga­sam­tök hafa þó fagnað sam­komu­lagi um stofnun sér­staks bóta­sjóðs til styrktar …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Lena Magnúsdóttir skrifaði
    Þetta er rosalegt. Vonandi ná olíufurstarnir ekki aftur að drepa rafmagnsbílinn.
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ætli orðið hræsni eigi ekki best við.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár