Mynd: Heiða Helgadóttir

Hvenær byrjarðu að hugsa sjálfstætt?

Natasha S. er alin upp í Moskvu og mennt­aður blaða­maður. Hún kom fyrst til Íslands fyrir tíu árum síðan, dvaldi hér á landi um ára­bil og hélt því næst til Sví­þjóðar þar sem hún bjó um skeið. Hún rit­stýrði og átti verk í ljóða­safn­inu Póli­fónía af erlendum upp­runa, en ljóðin voru eftir fjórtán höf­unda af erlendum upp­runa, búsetta á Íslandi, og verkið þótti marka tíma­mót í íslenskum bók­menntum. Þegar stríðið braust út í Úkraínu byrj­aði Natasha að skrifa – á íslensku. Og hlaut bók­mennta­verð­lun Tómasar Guð­munds­sonar fyrir bók­ina Máltaka á stríðs­tímum.

Hún hefur skrifað pistla um rúss­neskt sam­fé­lag og stríðið fyrir RÚV en hún skrif­aði líka ljóða­bók sem heitir Máltaka á stríðs­tímum og hlaut nýlega Bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar.

Í síð­asta bóka­blaði Stund­ar­innar sagði bók­mennta­gagn­rýn­and­inn Páll Baldvin Bald­vins­son þessa fyrstu ljóða­bók hennar vera afrek; svo þroskað sem verkið væri í orð­færi og hugsun á lærðu máli fjar­lægu orð­stofni skálds­ins. Jafn­framt sagði hann hana brjóta blað með þessu byrj­enda­verki sínu og færa okkur frá­bært safn sem auðgi ljóð­heim þeirra sem njóta vilji góðs skáld­skapar.

Þess má geta að ljóða­bókin er fag­ur­lega hann­aður gripur, eins og umslag utan um bréf. Í raun­inni bók­verk ekki síður en ljóða­bók.

Strax og ég las grein­arnar hennar á RÚV, bein­skeyttar en þrungnar til­finn­ingu, lang­aði mig að tala við hana. Og hef færi á því nú. Hún er ljóð­skáld og ég með þá afsökun að skálda bóka­blað.

Ég las bók­ina tvisvar áður en við hitt­umst …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár