Mynd: Óskar Hallgrímsson

Fólkið á vígvellinum

Í bænum Avdiivka í nágrenni Donetsk í Úkraínu býr fólk sem gat ekki flúið þegar stríðið braust út. Fólk sem er veikt eða í slæmri félags­legri stöðu. Þar hefur Ivan sem er 24 ára gam­all Úkra­ínu­maður barist í fjórtán mán­uði, fyrst við aðskiln­að­ar­sinna og nú her­sveitir Rússa. Þrátt fyrir ungan aldur stýrir Ivan þús­und manna her­deild.

Aðeins 6 kíló­metrum frá borg­ar­mörkum Donetsk situr fram­línu­bær­inn Avdiivka, eyði­bær sem hefur verið í fremstu víg­línu síðan 2014 en eftir inn­rás Rússa í landið fyrr á þessu ári fór hann að verða fyrir stöð­ugum árásum stór­skota­liðs, sem gerði til­ver­una fyrir bæj­ar­búa ólif­andi. Fyrir 2014 voru íbúar bæj­ar­ins um 32 þús­und, nú átta árum seinna eru um það bil 200 eftir. Oftar en ekki eru það ein­stak­lingar sem hafa ekki tæki­færi á að flytj­ast vegna veik­inda, slæmrar félags­legrar stöðu og en þar eru líka nokkrir sem eru þar enn því þeir eru hlið­hollir Rússum og bíða eftir að her­sveitir Rússa nái yfir bæinn.

Bæj­ar­búar hafa lifað án raf­magns, renn­andi vatns og hita síðan árásir hófust á ný í febr­úar 2022. Mikið til, þá sér­stak­lega í byrjun stríðs­ins, þurfa íbúar að halda til í dimmum kjöll­urum án matar og vatns – fólk sem rétt hætti sér út til að ná í vistir …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár