Lögreglan segist ekki hafa farið fram á að myndatökur yrðu stöðvaðar

Enginn vill kann­ast við að hafa tekið ákvörðun um að hindra störf blaða­manna Rík­is­út­varps­ins við Kefla­vík­ur­flug­völl þegar fimmtán umsækj­endur um alþjóð­lega vernd voru fluttir úr landi af lög­reglu. Starfs­menn Isavia segja boðin hafa komið frá lög­reglu, sem kann­ast ekki við það.

Lögreglan segist ekki hafa farið fram á að myndatökur yrðu stöðvaðar
Á leið­inni Eitt af því sem sér­stak­lega hefur sætt gagn­rýni við aðgerðir lög­regl­unnar er með­höndlun lög­reglu­manna á fötl­uðum manni. Þessi mynd var tekin þegar flytja átti fólkið á Kefla­vík­ur­flug­völl. Mynd: Sema Erla

„Það var aldrei ætlun aðila að hefta störf fjöl­miðla með nokkrum hætti,“ segir í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra og Isavia, sem send var fjöl­miðlum að loknum sam­eig­in­legum fundi full­trúum þess­ara aðila. „Við yfir­ferð á fram­kvæmd aðgerð­ar­innar kom hins vegar í ljós að til­mæli voru ekki nægi­lega skýr og harma báðir aðilar að svo hafi verið,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

Atvikið átti sér stað þegar lög­reglu­menn á vegum emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra fluttu fimmtán hæl­is­leit­endur úr landi að beiðni Útlend­inga­stofn­unar. Fólkið var hand­tekið, safnað saman í rútu í Hafn­ar­firði, ekið til Kefla­víkur þar sem flogið var með leiguflug­vél til Grikk­lands, þar sem það var skilið eftir. Málið hefur vakið hörð við­brögð og gagn­rýni og hefur umboðs­maður Alþingis beint erindi til bæði lög­reglu og Útlend­inga­stofn­unar vegna þessa. 

Ekki er deilt um að …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    "Ekki benda á mig, segir varðstjórinn.
    Þetta kvöld var ég að æfa lögreglukórinn......"
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Hver fyrirskipaði þessa fasistaaðgerð? Er ómögulegt að fá það á hreint?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu