Máltaka

Þetta ljóðasafn Natöshu S. er afrek, svo þroskað sem það er í orðfæri og hugsun á lærðu máli fjarlægum orðstofni skáldsins.

Natasha S.
Natasha S. Höfundur bók­ar­innar Máltaka á stríðs­tímum.
Bók

Máltaka á stríðs­tímum

Höfundur Natasha S.
Una – útgáfuhús
Gefðu umsögn

Una – útgáfuhús gefur út ljóðakver Natöshu S., Máltöku á stríðs­tímum, sem skáldið hlaut verðlaun fyrir á dögunum – Bókmennta­verðlaun Tómasar Guðmunds­sonar. Er það hennar fyrsta ljóðabók, ort á íslensku en hún hefur dvalið hér um árabil og sinnt ritstörfum. Er viðurkenningin sannarlega verð­skulduð. Ljóðin vinnur rússneska skáld­konan fyrir íslenska lesendur og tekur sér um leið sæti á skálda­bekk ljóða­þjóðarinnar. Mér varð hugsað til Nordahl Grieg sem dvaldi hér um tíð stríðs­árin og fórst yfir Berlín í desember 1943. Hér orti hann Friheten og hér var hún gefin út fyrst. Enn loga stríðs­eldar í Evrópu. Fleiri erlend skáld koma í hugann sem hafa dvalið hér lengur og skemur, en engin dæmi þekki ég um skáld sem hefur brotist inn í málheim skáld­skaparins á íslensku.

Máltöku er skipt í undir­kafla: að tala, að skrifa, að hlusta, að skilja og er sá síðasti sex auðar síður. Öll ljóðin leiða að þeirri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár