Samherji sagður hafa boðið milljarða króna til að ljúka málum í Namibíu

Samherji hefur boðið að gefa eftir yfir 2 millj­arða króna sem hald­lagðar voru í Namibíu, sem skaða­bætur til namibíska rík­is­ins í skiptum fyrir mála­lyktir. Namibísk yfir­völd tóku heldur fálega í til­boðið sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Lögmaður Wikborg Rein, sem starfar fyrir Samherja, stað­festir við­ræður en segir til­boðið ein­göngu hluta af einka­rétt­ar­legri deilu Samherja við yfir­völd, því sé ekki um að ræða við­ur­kenn­ingu á sekt í saka­máli.

Samherji sagður hafa boðið milljarða króna til að ljúka málum í Namibíu
Sam­herjar á góðri stundu Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, og nán­asti sam­verka­maður hans til ára­tuga, Aðal­steinn Helgason, fram­vkæmda­stjóri Samherja í Namibíu ofl, ásamt sam­verka­mönnum sínum frænd­unum James og Tamson Hatuikulipi, á fundi sem hald­inn var með mik­illi leynd á búgarði sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu árið 2012. Þeir tveir síð­ast­nefndu hafa setið í varð­haldi í næstum þrjú ár og bíða þess að mæta fyrir dóm, þar sem kraf­ist verður allt að 25 ára fang­elsis yfir þeim, fyrir að hafa þegið mútu­greiðslur af Samherja í skiptum fyrir verð­mætan kvóta í Namibíu.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar höfðu lög­menn norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein sam­band við rík­is­sak­sókn­ara­emb­ættið í Namibíu fyrir um það bil ári síðan þar sem óskað var eftir við­ræðum um ein­hvers konar sam­komu­lag um mála­lyktir.

Eftir því sem næst verður kom­ist fól til­boð Samherja í sér að félagið gæfi eftir eignir fyr­ir­tækja sinna í Namibíu, gegn því að fallið yrði frá frek­ari mála­ferlum á hendur fyr­ir­tæk­inu. Rík­is­sak­sókn­ara­emb­ættið mun sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar ekki hafa talið til­boðið þess eðlis að tæki því að ræða það frekar, enda hafi það falið í sér eft­ir­gjöf fjár­muna, sem í raun eru þegar í vörslu namibíska rík­is­ins. Það er að segja sölu­and­virði tog­ar­ans Heinaste, sem namibísk yfir­völd kyrr­settu og geymt er á banka­reikn­ingi í Namibíu.

„Eins og í öllum slíkum málum hafa farið fram við­ræður um mögu­legar sættir.“
Geir Sviggum, lög­maður Samherja hjá Wikborg Rein

Staðfestir viðræður um sættir

Geir Sviggum, lög­maður Samherja hjá Wikborg Rein, stað­festi í sam­tali …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Efsta myndin er af Þorsteini og Björgólfi en ekki Namibíugenginu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórnvalda áberandi“
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórn­valda áber­andi“

Í lok októ­ber fór fram umræða á Alþingi um rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namib­íu­mál­inu og orð­spori Íslands þar sem stór orð féllu. Frum­mæl­and­inn, Þór­hildur Sunnar Ævars­dóttir, taldi að fá þyrfti svör við því hvort dráttur á rann­sókn máls­ins á Íslandi væri eðli­legur, hvort yfir­völd á Íslandi tækju málið alvar­lega og hvort rann­sókn­ar­stofn­anir á Íslandi væru nægi­lega vel fjár­magn­aðar.
Kaupa fólk utan fjölskyldunnar út í milljarða viðskiptum
ÚttektSamherjaskjölin í 1001 nótt

Kaupa fólk utan fjöl­skyld­unnar út í millj­arða við­skiptum

Sam­herj­a­fjöl­skyldan hefur á und­an­förnum mán­uðum keypt eign­ar­hluti minni hlut­hafa í útgerð­inni og á að heita má tíunda hvern fisk í land­helg­inni. Börn Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar fara nú nær ein með eign­ar­hluti í félag­inu fyrir utan litla hluti þeirra tveggja. Millj­arða við­skipti hafa svo átt sér stað á milli fjöl­skyldu­fyr­ir­tækj­anna í flóknu neti útgerð­ar­innar.
Rannsókn Samherjamálsins lokið í Namibíu og réttarhöld hefjast brátt
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins lokið í Namibíu og rétt­ar­höld hefj­ast brátt

Werner Menges, blaða­maður The Namibian í Namibíu, segir að yfir­völd í Namibíu hafi lokið rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins. Tekist er á um meint van­hæfi dóm­ar­ans í mál­inu, Kobus Muller, vegna ummæla sem hann hefur látið falla um málið. Hann segir afar ólík­legt að réttað verði yfir starfs­mönnum Samherja eða fyr­ir­tækjum útgerð­ar­innar í Namibíu þar sem Ísland fram­selji ekki Íslend­inga til Namibíu.
Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Bandaríkjunum
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Banda­ríkj­unum

Sænski blaða­mað­ur­inn Sven Bergman, sem fjallað hefur um fjölda mútu­mála sænskra fyr­ir­tækja erlendis, segir að illa hafi gengið að sækja stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna til saka í Svíþjóð fyrir brotin. Alvar­leg­ustu afleið­ing­arnar hafi verið þegar banda­rísk yfir­völd tóku málin til rann­sóknar og sekt­uðu félögin um svim­andi upp­hæðir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár