„Þögn íslenskra stjórnvalda áberandi“

Í lok októ­ber fór fram umræða á Alþingi um rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namib­íu­mál­inu og orð­spori Íslands þar sem stór orð féllu. Frum­mæl­and­inn, Þór­hildur Sunnar Ævars­dóttir, taldi að fá þyrfti svör við því hvort dráttur á rann­sókn máls­ins á Íslandi væri eðli­legur, hvort yfir­völd á Íslandi tækju málið alvar­lega og hvort rann­sókn­ar­stofn­anir á Íslandi væru nægi­lega vel fjár­magn­aðar.

„Þögn íslenskra stjórnvalda áberandi“
Hart deilt á rík­is­stjórn­ina og Sjálf­stæð­is­flokk­inn Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar deildu hart á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og rík­is­stjórn­ina út af rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins hér á landi og eins fyrir þjónkun við útgerð­ar­fé­lagið vegna skæru­liða­deild­ar­innar svoköll­uðu. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, þing­konu Pírata, var mikið niðri fyrir þegar hún hóf sér­staka umræðu um rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu og orð­spor Íslands á Alþingi í lok októ­ber. Hún spurði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra: „Ég spyr því hæstv. ráð­herra: Er hann sam­mála því að óhóf­legur dráttur á rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins sé vand­ræða­legur fyrir Ísland á alþjóða­vett­vangi? Líta íslensk stjórn­völd málið nógu alvar­legum augum?“

Ástæða þess að Þór­hildur Sunna hóf þessa umræðu var sú að þrjú ár eru liðin frá því að Sam­herj­a­málið í Namibíu var fyrst opin­berað í fjöl­miðlum og enn hafa ekki komið fram ákærur í því. Þá taldi Þór­hildur Sunna að það væri áhyggju­efni að vegna Sam­herj­a­máls­ins þá hefði Ísland færst niður í 17. sæti á lista Transparency International yfir minnst spilltu lönd í heimi og stæði hinum Norð­ur­lönd­unum að baki: „Það er þar …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin í 1001 nótt

Kaupa fólk utan fjölskyldunnar út í milljarða viðskiptum
ÚttektSamherjaskjölin í 1001 nótt

Kaupa fólk utan fjöl­skyld­unnar út í millj­arða við­skiptum

Sam­herj­a­fjöl­skyldan hefur á und­an­förnum mán­uðum keypt eign­ar­hluti minni hlut­hafa í útgerð­inni og á að heita má tíunda hvern fisk í land­helg­inni. Börn Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar fara nú nær ein með eign­ar­hluti í félag­inu fyrir utan litla hluti þeirra tveggja. Millj­arða við­skipti hafa svo átt sér stað á milli fjöl­skyldu­fyr­ir­tækj­anna í flóknu neti útgerð­ar­innar.
Samherji sagður hafa boðið milljarða króna til að ljúka málum í Namibíu
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Samherji sagður hafa boðið millj­arða króna til að ljúka málum í Namibíu

Samherji hefur boðið að gefa eftir yfir 2 millj­arða króna sem hald­lagðar voru í Namibíu, sem skaða­bætur til namibíska rík­is­ins í skiptum fyrir mála­lyktir. Namibísk yfir­völd tóku heldur fálega í til­boðið sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Lögmaður Wikborg Rein, sem starfar fyrir Samherja, stað­festir við­ræður en segir til­boðið ein­göngu hluta af einka­rétt­ar­legri deilu Samherja við yfir­völd, því sé ekki um að ræða við­ur­kenn­ingu á sekt í saka­máli.
Rannsókn Samherjamálsins lokið í Namibíu og réttarhöld hefjast brátt
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins lokið í Namibíu og rétt­ar­höld hefj­ast brátt

Werner Menges, blaða­maður The Namibian í Namibíu, segir að yfir­völd í Namibíu hafi lokið rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins. Tekist er á um meint van­hæfi dóm­ar­ans í mál­inu, Kobus Muller, vegna ummæla sem hann hefur látið falla um málið. Hann segir afar ólík­legt að réttað verði yfir starfs­mönnum Samherja eða fyr­ir­tækjum útgerð­ar­innar í Namibíu þar sem Ísland fram­selji ekki Íslend­inga til Namibíu.
Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Bandaríkjunum
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Banda­ríkj­unum

Sænski blaða­mað­ur­inn Sven Bergman, sem fjallað hefur um fjölda mútu­mála sænskra fyr­ir­tækja erlendis, segir að illa hafi gengið að sækja stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna til saka í Svíþjóð fyrir brotin. Alvar­leg­ustu afleið­ing­arnar hafi verið þegar banda­rísk yfir­völd tóku málin til rann­sóknar og sekt­uðu félögin um svim­andi upp­hæðir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár