,,Fann frið í mömmuhjartanu"

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri segir að fyr­ir­renn­ari sinn í starfi hafi með yfir­lýs­ingu á vef emb­ætt­is­ins árið 2018 gert lítið úr þján­ingum mæðgna sem kært höfðu lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­of­beldi gegn dótt­ur­inni árið 2011 en málið var fellt niður ári síðar. Sigríður Björk bað þær nýlega afsök­unar fyrir hönd emb­ætt­is­ins og móð­irin seg­ist loks hafa fundið „frið í mömmu­hjart­anu“.

,,Fann frið í mömmuhjartanu"
Mægður Halldóra Magný og Helga Elín sem kærðu lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­of­beldi segj­ast hafa barist við kerfið í rúm tíu ár. Sú bar­átta hafi engu skilað fyrr en svör bár­ust nýlega frá rík­is­lög­reglu­stjóra sem einnig bað þær afsök­unar fyrir hönd emb­ætt­is­ins.

Mæðgurnar Halldóra Magný Baldurs Sig­urð­ar­dóttir og Helga Elín Her­leifs­dóttir fóru á fund Sigríðar Bjarkar rík­is­lög­reglu­stjóra í sept­em­ber síð­ast­liðnum þar sem Sigríður Björk bað þær afsök­unar á fram­göngu emb­ætt­is­ins árið 2018 en þá var Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri. 

Forsaga máls­ins er sú að haustið 2011 barst lög­reglu beiðni frá fjöl­skyldu­sviði Mos­fells­bæjar um rann­sókn vegna gruns um að brotið hefði verið á Helgu Elínu en hún hafði brotnað saman í skól­anum og síðan trúað kenn­ara sínum fyrir því að í sum­ar­bú­stað nokkrum árum fyrr hefði maður „gert eitt­hvað við hana sem hún átti mjög erfitt með að segja frá“, eins og segir í nið­ur­stöðu rík­is­sak­sókn­ara. Halldóra Magný segir í sam­tali við Stundina að kenn­ar­inn hafi gert sér og barna­vernd­ar­yf­ir­völdum við­vart. Sjálf lagði hafi hún nokkrum dögum síðar lagt fram kæru á hendur lög­reglu­mann­inum fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn Helgu Elínu, dóttur sinni, í sum­ar­bú­stað þegar stúlkan var 10 ára …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Matthildur Kristmannsdóttir skrifaði
    Blessuð sé minning Hellen Lindu Drake, baráttukonu og rithöfundar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár