,,Fann frið í mömmuhjartanu"

Sigríður Björk Guðjóns­dóttir ríkis­lögreglu­stjóri segir að fyrirrennari sinn í starfi hafi með yfir­lýsingu á vef embættisins árið 2018 gert lítið úr þjáningum mæðgna sem kært höfðu lögreglu­mann fyrir kynferðis­ofbeldi gegn dótturinni árið 2011 en málið var fellt niður ári síðar. Sigríður Björk bað þær nýlega afsökunar fyrir hönd embættisins og móðirin segist loks hafa fundið „frið í mömmu­hjartanu“.

Mægður
Mægður Halldóra Magný og Helga Elín sem kærðu lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­of­beldi segj­ast hafa barist við kerfið í rúm tíu ár. Sú bar­átta hafi engu skilað fyrr en svör bár­ust nýlega frá rík­is­lög­reglu­stjóra sem einnig bað þær afsök­unar fyrir hönd emb­ætt­is­ins.

Mæðgurnar Halldóra Magný Baldurs Sigurðar­dóttir og Helga Elín Herleifs­dóttir fóru á fund Sigríðar Bjarkar ríkis­lögreglu­stjóra í september síðastliðnum þar sem Sigríður Björk bað þær afsökunar á framgöngu embættisins árið 2018 en þá var Haraldur Johannessen ríkis­lögreglu­stjóri. 

Forsaga málsins er sú að haustið 2011 barst lögreglu beiðni frá fjölskyldu­sviði Mosfells­bæjar um rannsókn vegna gruns um að brotið hefði verið á Helgu Elínu en hún hafði brotnað saman í skólanum og síðan trúað kennara sínum fyrir því að í sumar­bústað nokkrum árum fyrr hefði maður „gert eitthvað við hana sem hún átti mjög erfitt með að segja frá“, eins og segir í niður­stöðu ríkis­saksóknara. Halldóra Magný segir í samtali við Stundina að kennarinn hafi gert sér og barna­verndar­yfirvöldum viðvart. Sjálf lagði hafi hún nokkrum dögum síðar lagt fram kæru á hendur lögreglu­manninum fyrir að brjóta kynferðis­lega gegn Helgu Elínu, dóttur sinni, í sumar­bústað þegar stúlkan var 10 ára …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Matthildur Kristmannsdóttir skrifaði
    Blessuð sé minning Hellen Lindu Drake, baráttukonu og rithöfundar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár