Varð fyrir hrottalegu ofbeldi gengin 17 vikur með tvíbura

Barns­faðir Magda­lenu Valde­mars­dóttur réðst inn til hennar, sló hana og tók kverka­taki þegar hún var barns­haf­andi. Árásin og áreiti af hálfu manns­ins ollu Magda­lenu áfallastreitu, kvíða og þung­lyndi sem hafði það í för með sér að hún sá sig knúna til að láta börnin frá sér í var­an­legt fóstur.

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi gengin 17 vikur með tvíbura
Óttaðist um börnin sín Magda­lena var svo illa haldin af fæð­ing­ar­þung­lyndi að hún ótt­að­ist að hún myndi vinna börn­unum sínum skaða.

Áfallastreita, kvíði og þung­lyndi sem Magda­lena Valde­mars­dóttir glímdi við eftir að barns­faðir hennar réðst að henni með ofbeldi þegar hún var þunguð ollu því að Magda­lena fann sig knúna til að láta börn sín frá sér og í var­an­legt fóstur. Árásin og áfram­hald­andi áreiti manns­ins voru stór þáttur í því fæð­ing­ar­þung­lyndi sem hellt­ist yfir Magda­lenu við fæð­ingu tví­bura hennar sem end­aði með því að hún gat ekki meir og gerði sér grein fyrir að hún gæti ekki sinnt börn­unum.  

Magda­lena kynnt­ist mann­inum fyrir um sex árum. Í byrjun var sam­bandið mjög gott. „Ég man að ég stóð ein­hvern tíma í eld­hús­inu og hugs­aði: Er hægt að vera svona ham­ingju­söm? Er þetta ekki bara í bíó­myndum?“ segir Magda­lena í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur á Stund­inni.

Þó sam­bandið hafi sem fyrr segir byrjað vel fór þó að halla til verri vegar þegar frá leið. Magdlena lýsir því að sjúk­leg afbrýði­semi manns­ins hafi haft veru­lega nei­kvæð áhrif eftir því sem á sam­bandið leið. Það hafi vissu­lega verið góðir tímar en líka vondir. „Það komu dagar þar sem hann tók köst og garg­aði á mig fyrir að tala við aðra gaura. Ég man eftir nótt þar sem hann vakti mig tvisvar, af því hann skroll­aði yfir sím­ann minn og hélt því fram að ég hefði ætlað að sofa hjá gaur.“ Þau sam­skipti voru hins vegar eldri en sam­band Magda­lenu og manns­ins og hann því ekki í nokkrum rétti til að bregð­ast illa við þeim.

Sleit sambandinu vegna óeðlilegs áhuga mannsins á kynlífi

Magda­lena varð þunguð á meðan á sam­band­inu stóð. Hún lýsir því að þegar það hafi orðið ljóst hafi mað­ur­inn skyndi­lega fengið mjög mik­inn og auk­inn áhuga á kyn­lífi, svo mikið að það var óheil­brigt. Í raun hafi ekk­ert annað kom­ist að í sam­band­inu, öll sam­töl hafi leitt til tals hans um kyn­líf. Á með­göng­unni hafði Magda­lena hins vegar mjög tak­mark­aðan áhuga á kyn­lífi. Af þessum sökum, meðal ann­arra, tók hún ákvörðun um að slíta sam­band­inu. Þá var hún gengin um átta vikur með tví­burana.

Magda­lena lýsir því að eftir sam­bands­slitin hafi hún setið undir gríð­ar­legu áreiti frá mann­inum, hann hafi hringt linnu­lítið og sent ótal skila­boð í gegnum sam­fé­lags­miðla. Svo mikið varð áreitið að hún neydd­ist til að blokka mann­inn á öllum umræddum stöðum. Maðurinn beitti þá vinum og kunn­ingjum fyrir sig til að hafa sam­band við Magda­lenu. Meðal ann­ars fékk hún sím­tal um kvöld þar sem vinur manns­ins lýsti því að hann hyggð­ist hoppa í sjó­inn ef Magda­lena hefði ekki sam­band við hann.  Við því brást hún ekki og ekk­ert varð af því að mað­ur­inn hopp­aði í sjó­inn.

Um tíu vikum eftir að Magda­lena sleit sam­band­inu réðst mað­ur­inn hins vegar á hana. „Þetta byrj­aði með því að um morg­unin fékk ég skila­boð frá vini hans um að hann væri að spyrja hvort ég væri að hitta ein­hvern annan. Ég var búinn að fá þessa spurn­ingu aftur og aftur og svarið var alltaf nei, ég er ekki að deita neinn, látið mig bara vera. En í þetta skipti sagði ég: Segðu bara við hann að ég sé að hitta ein­hvern.“

Bað lögregluna um að hjálpa sér

Skömmu síðar, klukkan hálf­tíu um morg­unin var dyra­bjöll­unni hringt heima hjá Magda­lenu. Þar var þá mað­ur­inn kom­inn. Magda­lena sagði honum að koma sér í burtu ellegar hringdi hún á lög­regl­una. Hún sneri sér síðan við til að ná í heima­sím­ann í íbúð­inni. „Þá er hann kom­inn inn. Hann tekur af mér sím­ann og grýtir honum burt. Ég fer þá inn í eld­hús og næ í sím­ann minn en hann tekur hann líka af mér. „Sjáum hvaða gaura þú ert að tala við,“ sagði hann.“

Magda­lena lýsir því að hún hafi passað sig að ögra mann­inum ekki að óþörfu, þar sem hún hafi ekki viljað lenda í lík­am­legum átökum, ekki síst þar sem hún var ólétt. Hún hafi þó sagt mann­inum að skila sér sím­anum sínum. Við það hafi hins vegar runnið á hann æði. Réðst mað­ur­inn á hana, tók hana háls­taki og hélt henni upp við vegg. „Þegar hann sleppir og ég næ and­anum segi ég við hann: Þú átt ekki þessi börn. Hann spurði: Hver á þau? Ég sagði að það skipti ekki máli. Þá lemur hann mig með opnum lófa og tekur mig aftur háls­taki. Ég næ að segja við hann að slaka á, við gætum talað saman rólega. Þá sleppir hann mér.“

„Það var allt í gler­brotum, allt út í kaffi og allt í fokki“

Á þessum tíma­punkti virð­ist mað­ur­inn hins vegar hafa áttað sig á hvað hann hefði gert. Hann brotn­aði niður og bað Magda­lenu ítrekað fyr­ir­gefn­ingar. Þá var hins vegar bankað á hurð­ina. „Það var allt í gler­brotum, allt út í kaffi og allt í fokki. Ég opna og þar er lög­reglan. Hann sagði: Ég var bara að tala við barns­móður mína, og ég stend þarna og er bara: Hjálp.“

Dæmdur til átján mánaða fangelsisvistar

Lög­reglan hafði verið kölluð til vegna hávaða úr íbúð­inni enda hafði mað­ur­inn brotið hús­gögn og gengið ber­serks­gang þar inni. Lög­reglu­mönnum var strax ljóst að eitt­hvað mikið hefði gengið á, meira en sam­tal, og komu inn í íbúð­ina til að ræða við Magda­lenu og mann­inn. Þegar lög­reglan var  svo að tygja sig út kom mað­ur­inn til Magda­lenu og spurði hana hvort hún gerði sér grein fyrir að ef hún kærði hann þá myndi hann enda í fang­elsi. Magda­lena sagði að hún gerði sér fulla grein fyrir því og gaf skýr skila­boð um að hún myndi engu að síður leggja fram kæru. Við það hugð­ist mað­ur­inn ráð­ast aftur á hana og end­aði það með því að lög­reglan hand­tók hann á staðnum og færði hann burtu í járnum.

Fyrir Hér­aðs­dómi Suð­ur­nesja ját­aði mað­ur­inn ský­laust brot sín. Var hann fund­inn sekur um hús­brot og eigna­spjöll, auk lík­ams­árás­ar­innar þar sem hann var dæmdur fyrir að hafa hrint Magda­lenu, slegið hana í tvígang og tekið hana kverka­taki, einnig í tvígang. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að hafa rofið nálg­un­ar­bann gegn Magda­lenu í sex skipti.

„Ég sagði við sjálfa mig að ef hann myndi koma aftur nálægt mér myndi ég drepa hann“

Maðurinn á baki brota­feril sem nær aftur til árs­ins 2014 og hefur hann í all­nokkur skipti verið dæmdur til fang­els­is­vistar, auk þess sem hann hefur verið dæmdur fyrir að rjúfa skil­orð. Með brotum sínum gegn Magda­lenu rauf hann einmitt skil­orð. Nið­ur­staða hér­aðs­dóms var að mað­ur­inn skyldi sæta fang­elsi í 18 mán­uði, en þar af voru 17 mán­uðir skil­orðs­bundnir.

Óttaðist að vinna börnunum mein

Magda­lena segir að eftir árás­ina hafi hún verið upp­full af reiði, svo mik­illi að hún hafi ekki verið neitt hrædd við mann­inn þrátt fyrir að hann gengi laus. Miklu fremur hafi hún haft áhyggjur af því að hún sjálf myndi ráð­ast á mann­inn. „Ég sagði við sjálfa mig að ef hann myndi koma aftur nálægt mér myndi ég drepa hann.“

Magda­lena segir að hún hafi haft ítrek­aðar hugs­anir um að vinna mann­inum skaða, svo miklar að hún hafi leitað til fag­að­ila, geð­lækna og sál­fræð­inga, til að vinna bug á þeim. Árásin og áreitið hafi haft þær afleið­ingar en líka fleiri og víð­tæk­ari afleið­ingar. „Ég er með áfallastreitu á háu stigi, kvíða­röskun á háu stigi og þung­lyndi. Ég þurfti svefn­lyf því ég fékk martraðir þar sem ég upp­lifði atburð­inn aftur.“

Magda­lena greind­ist þá með fæð­ing­ar­þung­lyndi eftir fæð­ingu tví­bu­r­anna, sem varð henni mjög erfitt, ekki síst í ljósi þess að hún glímdi þegar við þung­lyndi eftir árás­ina. Fæð­ing­ar­þung­lyndið var að sögn hennar svo svæsið að hún ótt­að­ist að vinna börnum sínum mein. Hún hafði sam­band við barna­vernd­ar­nefnd sem sömu­leiðis hafði verið til­kynnt um ástandið á Magda­lenu. „Sem var gott, því ég þurfti á hjálp að halda,“ segir hún.

Nið­ur­staðan varð sú að Magda­lena lét börnin sín frá sér í fóstur, fyrst tíma­bundið, en síðar var­an­legt fóstur. Hún hittir börnin með reglu­bundnum hætti. Hún segir aðspurð að það hafi verið rétt ákvörðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eigin konur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár