Drög að Íslandsbankaskýrslunni komin til fjármálaráðuneytisins

Rík­is­end­ur­skoðun hefur sent drög að skýrslu um einka­væð­ingu Íslands­banka til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis, Banka­sýslu rík­is­ins og stjórn stofn­un­ar­innar til umsagnar. Skýrslan átti að vera til­búin í sumar en hefur dreg­ist trekk í trekk.

Drög að Íslandsbankaskýrslunni komin til fjármálaráðuneytisins
Til sölu Restin af hlutum rík­is­ins í Íslands­banka er til sölu á þessu ári, miðað við frum­varp fjár­mála­ráð­herra til fjár­laga. Mynd: Heiða Helgadóttir

Rík­is­end­ur­skoðun hefur sent fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, Banka­sýslu rík­is­ins og stjórn hennar drög að skýrslu sinni um einka­væð­ingu Íslands­banka. Nú hafa þessir aðilar tæki­færi til 19. októ­ber að skila umsögn um skýrsl­una, sem ber heitið „Sala á hlut rík­is­ins í Íslands­banka 22. mars 2022“. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Rík­is­end­ur­skoðun þar sem stofn­unin áréttar sér­stak­lega að trún­aður gildir um drögin að skýrsl­unni, sem telj­ast vinnu­skjal í skiln­ingi laga um rík­is­end­ur­skoð­anda og end­ur­skoðun rík­is­reikn­inga. „Um skýrslu­drögin verður því ekki fjallað efn­is­lega í umsagn­ar­ferl­inu, hvorki af hálfu Rík­is­end­ur­skoð­unar né umsagn­ar­að­ila,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Beðið hefur verið eftir þess­ari skýrslu í nokkurn tíma en Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra bað Rík­is­end­ur­skoðun um rann­sókn á sölu 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem fram fór í mars á þessu ári. Skýrslan átti að vera til­búin í júní síð­ast­liðnum en henni hefur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Nú tekur Bjarni spillti Ben. fram stóra strokleðrið.

    "Auðvitað má ég selja pabba hlut í ríkisbanka, spyrjið bara pabba gamla." :-)

    "Ég bara vissi ekki að pabbi gamli hefði áhuga á því að kaupa hlut í bankanum" :-)
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu