Flugeldurinn til Bankasýslustjóra var vinagjöf en vínið fyrir alla

Starfs­menn Banka­sýsl­unnar fóru tví­vegis út að borða í boði fyr­ir­tækja sem höfðu fjár­hags­legan hag af sölu stofn­un­ar­innar á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka. Til við­bótar fengu starfs­menn gef­ins vín­flöskur og smá­rétti en flug­eldur sem stofn­un­inni barst á gaml­árs­dag er sögð hafa verið vina­gjöf til for­stjór­ans.

Flugeldurinn til Bankasýslustjóra var vinagjöf en vínið fyrir alla
Undir lok dags Jón Gunnar, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, fékk flug­eld­inn send­ann á skrif­stof­una á milli klukkan 16 og 17 á gaml­árs­dag. Hann tók hann með sér, enda var um gjöf frá vini hans að ræða.

Starfs­fólk Banka­sýslu rík­is­ins fóru tví­vegis út að borða í boði fyr­ir­tækja sem komu að útboði á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka. Í minn­is­blaði sem Banka­sýslan hefur skilað fjár­laga­nefnd og birt á vefnum sínum vegna þessa kemur fram að kvöld­verð­ar­boðin hafi verið til að fagna frumút­boði á hlutum í Íslands­banka, sem lauk í júní árið 2021. Sömu aðilar sáu um lokað útboð á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í bank­anum í mars síð­ast­liðnum. 

Fyrst var farið með fyr­ir­tækja­ráð­gjöf og verð­bréfa­miðlun Íslands­banka út að borða 24. sept­em­ber árið 2021 þar sem mál­tíðin kost­aði 34 þús­und krónur per ein­stak­ling. Rúmum tveimur mán­uðum síðar, 30. nóv­em­ber, fóru starfs­menn­irnir aftur út að borða með ein­stak­lingum sem allir höfðu fjár­hags­legan hag af söl­unni; það er full­trúum þriggja umsjón­ar­að­ila, tveggja fjár­mála­ráð­gjafa og þriggja lög­fræði­legra ráð­gjafa. Kostn­að­ur­inn, 48 þús­und krónur á hvern ein­stak­ling, var greiddur af umsjón­að­ilum útboðs­ins; Citibank, Íslands­banka og JP Morgan. 

Stundin hefur síð­ustu mán­uði óskað upp­lýs­inga frá Banka­sýsl­unni um gjafir í tengslum við útboð bank­ans, síð­ast fyrir ell­efu dögum, þann 29. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þeim fyr­ir­spurnum hefur ekki verið svarað eða vísað til þess að minn­is­blað væri í vinnslu um málið fyrir fjár­laga­nefnd. Nefndið hafði óskað eftir minn­is­blaði í kjöl­far þess að for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar fóru á opinn fund nefnd­ar­innar þar sem for­stjór­inn var spurður út í gjafir og máls­verði. 

„Við fengum ein­hverjar vín­flöskur og flug­eld, konfekt­kassa, en svo eigum við nátt­úru­lega hádeg­is­verði og kvöld­verði með ráð­gjöfum og svo fram­vegis, en það er ekk­ert annað,“ sagði Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, á fund­inum. 

„Frá vini for­stjóra, sem starfar hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki Flug­eldur. Kostn­aður var um 2.500 kr. Þetta hefur verið stað­fest sem vina­gjöf af við­kom­andi ein­stak­lingi.“
úr minn­is­blaði Banka­sýslu rík­is­ins til fjár­laga­nefndar Alþingis

Til við­bótar við áður­nefnda kvöld­verði kemur fram í minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar til fjár­laga­nefndar að starfs­fólk hafi fengið vín, konfekt og kok­teila­sett að gjöf. Áður hefur komið fram að einn flug­eldur hafi borist á skrif­stofu stofn­un­ar­innar. „Ég fékk flug­eld­inn hingað á skrif­stof­una í Banka­sýsl­una (á milli kl. 16 og 17) á gaml­árs­dag, þar sem ég var að vinna. Þetta var miðl­ungs rak­etta,“ sagði banka­sýslu­stjóri í skrif­legu svari til Stund­ar­innar um það í maí. 

Í minn­is­blað­inu nú segir að þetta hafi hins­vegar verið gjöf frá vini Jóns Gunnars og ætluð honum. „Frá vini for­stjóra, sem starfar hjá fjár­mála­fyr­ir­tæki Flug­eldur. Kostn­aður var um 2.500 kr. Þetta hefur verið stað­fest sem vina­gjöf af við­kom­andi ein­stak­lingi,“ segir í minn­is­blað­inu.

Aðrar gjafir sem taldar eru upp í minn­is­blað­inu eru:

  • Frá ACRO verð­bréfum: Vín­flaska. Kostn­aður var um 4.000 kr.
  • Frá Íslenskum verð­bréfum: Tvær vín­flöskur. Samtals kostn­aður var um 8.000 kr.
  • Frá Lands­bank­anum: Konfekt­kassi. Kostn­aður var 4.067 kr.
  • Frá lög­manns­stof­unni BBA/Fjeldco: Kok­teila­sett. Kostn­aður við hverja jóla­gjöf var um 20 þús­und kr.
  • Frá verð­bréf­miðlun og fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Íslands­banka: Stöðluð jóla­gjöf bank­ans til stærri við­skipta­vina þess­ara deilda. Ein létt­víns­flaska og smá­réttir. Kostn­aður við hverja jóla­gjöf var um 14 þús­und kr.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thorsteinn Thorvardarson skrifaði
    Viðbjóður, en flokkurinn bara styrkist og Kata litla brosir út ú eitt.
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Þau eru ekki af baki dottin í spillinguni.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Auðvitað eru þetta mútur ?
    Allt í boði sjálfstæðisflokksins .
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu