Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
Engar breyt­ingar Snorri Ein­ars­son segir að þó að sænskt móð­ur­fé­lag íslenska glas­fjróvg­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið selt þá feli það ekki í sér neinar breyt­ingar á starf­semi íslenska félags­ins. Mynd: MBL / Eggert Jóhannesson

Banda­ríska fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Kohlberg Kravis Roberts (KKR & Co) er orð­inn eig­andi eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tækis hér á landi, Livio Reykja­vík ehf., áður Art Medica. Þetta gerð­ist í sumar þegar fyr­ir­tæki í eigu KKR, Gener­alLife, keypti sænskt móð­ur­fé­lag íslenska glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins, Livio AB. KKR er með 471 millj­arðs doll­ara fjár­fest­ingar í stýr­ingu hjá sér, meðal ann­ars fjöl­mörg fyr­ir­tæki á sviði inn­viða. KKR keypti til dæmis stærsta síma­fyr­ir­tæki Dan­merkur, TDC A/S, árið 2006. 

Gener­alLife er eitt stærsta fyr­ir­tækið í Evrópu á sviði glasa­frjóvg­ana og rekur 37 klíníkur sem bjóða upp á þessa þjón­ustu. Fyr­ir­tækið er með starf­semi á Ítalíu, Spáni, Tékk­landi, Portúgal og Svíþjóð og nú bæt­ast Noregur og Ísland við. Livio AB átti níu glasa­frjóvg­un­ar­stöðvar í Svíþjóð, Noregi og Íslandi og bæt­ast þær við þessar 37 sem Gener­alLife átti fyrir. Sænski fjár­fest­inga­bank­inn Carnegie var ráð­gjafi við söl­una og greindi frá henni á heima­síðu sinni. Kaup­verðið var ekki gefið upp. 

Fyrirkomulagið gagnrýnt af viðskiptavinum …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Tilkynning um hermannaveiki í blokk fyrir eldri borgara vekur ugg
FréttirHeilbrigðismál

Til­kynn­ing um her­manna­veiki í blokk fyrir eldri borg­ara vekur ugg

Íbúum á Granda­vegi 47 barst nýlega orð­send­ing frá sótt­varn­ar­lækni og Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur þess efnis að mikið magn her­manna­veik­is­bakt­er­í­unnar hefði fund­ist í einni íbúð blokk­ar­innar. Dóttir níræðrar konu í blokk­inni hefur veru­legar áhyggjur af móður sinni en her­manna­veiki er bráð­drep­andi fyrir fólk sem er veikt fyrir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár