Norðmenn ætla að leggja á 40 prósent auðlindaskatt á laxeldið: Borga ekkert á Íslandi

Með nýjum auð­linda­skatti í Noregi þurfa lax­eld­is­fyr­ir­tæki að greiða 40 pró­senta skatt til rík­is­ins. Skatta­pró­senta grein­ar­innar verður því 62 pró­sent. Enginn slíkur sam­bæri­legur auð­linda­skattur er hér á Íslandi auk þess sem lax­eld­is­fyr­ir­tækin greiða ekki fyrir lax­eld­isk­vóta sína til íslenska rík­is­ins. Skatt­lagn­ingin í Noregi getur haft veru­leg áhrif á íslenskt lax­eldi þar sem norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki eru stærstu eig­end­urnir.

Norðmenn ætla að leggja á 40 prósent auðlindaskatt á laxeldið: Borga ekkert á Íslandi
Lax­eld­is­fyr­ir­tækin bera sig aum­lega Norsku lax­eld­is­fyr­ir­tækin, eins og Salmar AS sem Gustav Witzoe stofn­aði, bera sig aum­lega út af vænt­an­legri skatt­lagn­ingu í grein­inni. Salmar er stærsti hlut­hafi Arnarlax á Bíldudal.

Norskur eig­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíldudal, Salmar AS, er ósáttur við fyr­ir­hug­aða 40 pró­sent auka­skatt­lagn­ingu á norska lax­eld­is­iðn­að­inn. Um er að ræða sér­stakan 40 pró­sent auð­linda­skatt sem leggst ofan á aðra skatta sem lax­eld­is­fyri­tækin greiða í Noregi. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­innar þar sem Salmar er skráð á markað.

Til sam­an­burðar er eng­inn slíkur sér­stakur auð­linda­skattur á lax­eldi á Íslandi og hér á landi kosta fram­leiðslu­leyfin, lax­eld­isk­vót­inn sem íslensk lax­eld­is­fyr­ir­tæki fá frá íslenska rík­inu, ekki neitt. 

Eins og Stundin greindi frá árið 2020 þá hefðu norsku lax­eld­is­fyr­ir­tækin þurft að greiða um 169  millj­arða króna í Noregi fyrir þau 65 þús­und tonna fram­leiðslu­leyfi sem þau höfðu yfir að ráða þá hér á landi. Þetta er reiknað út frá með­al­verði á lax­eld­isk­vóta í síð­asta upp­boði sem norska ríkið stóð fyrir á slíkum kvótum árið 2018. 

Hlutabréfin féllu um 30 prósent

Hluta­bréf Salmar AS féllu um 30 pró­sent á norska hluta­bréfa­mark­aðnum á mið­viku­dag­inn í kjöl­far þess að greint var frá skatt­lagn­ing­unni fyr­ir­hug­uðu. Hluta­bréfin í félag­inu héldu áfram að falla í verði á fimmtu­dag­inn, þá um rúmt 1 pró­sent. Salmar sendi frá til­kynn­ingu á í kjöl­farið á tíð­ind­unum um skatt­lagn­ing­una, sem norska þingið þarf að sam­þykkja áður en hún gengur í gegn. 

„Noregur á nokkra vell­auð­uga við­skipta­menn í lax­eld­is­iðn­að­inum sem hafa byggt upp tals­vert ríki­dæmi vegna aðgangs þeirra að norskum fjörðum"
Fritjof Jacobsen,
blaða­maður Dagens Nær­ingsliv

Í til­kynn­ing­unni frá Salmar segir orð­rétt: „Norska rík­is­stjórnin leggur til 40 pró­sent auð­linda­skatt á fisk­eld­is­fyr­ir­tækin frá árinu 2023 og á skatt­ur­inn að eiga við fram­leiðslu sem er meiri en 4000 til 5000 tonn. Með þess­ari til­lögu verður heild­ar­skatt­lagn­ing fisk­eld­is­iðn­að­ar­ins 62 pró­sent.“

Salmar og samruninn við Arctic Fish

Varn­að­ar­orð for­stjór­ansFor­stjóri Salmar, Linda Aaase, segir að skatt­lagn­ingin geti haft slæm áhrif á starfs­menn í lax­eld­is­iðn­að­inum og hinar dreifðu byggðir í Noregi.

Nú stendur fyrir dyrum mögu­legur sam­runi Salmar AS og eig­anda lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish á Ísafirði, Norway Royal Salmon. Salmar verður því mögu­lega langstærsti hags­muna­að­il­inn í íslensku lax­eldi ef af þeim sam­runa verður en heild­ar­fram­leiðsla þess­ara tveggja lax­eld­is­fyr­ir­tækja er rúm­lega 50 pró­sent af allri fram­leiðslu á eld­is­laxi á Íslandi.  Sam­keppn­is­eft­ir­litið rann­sakar nú þennan sam­runa. Þessi skatt­lagn­ing í Noregi hefur því vænt­an­lega tals­verð óbein áhrif á lax­eld­is­iðn­að­inn á Íslandi. 

For­stjóri Salmar, Linda L. Aaase sagði í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­innar að skatt­lagn­ing myndi hafa, eðli hennar sam­kvæmt, slæm áhrif á lax­eld­is­iðn­að­inn og starfs­menn hans. „Þetta er skattur á fisk­eld­is­fyr­ir­tæki sem búa til verð­mæti og störf í strand­byggðum Noregs. Slíkur skattur mun hafa veru­legar nei­kvæðar afleið­ingar á allar afleiddar greinar sem vinna með og fyrir lax­eld­is­iðn­að­inn og á atvinnu­sköpun í þessum greinum. Salmar mun senda frá sér frek­ari upp­lýs­ingar um afl­leið­ingar þess­arar skatt­lagn­ingar fyrir sam­stæðu félags­ins þegar frek­ari upp­lýs­ingar um nýja skatt­inn liggja fyrir.“

Hafa ráð á að kaupa sér Kleenex

Umræðan um þessa auknu skatt­lagn­ingu á lax­eld­is­iðn­að­inn í Noregi hefur verið mikil síð­ustu daga í norskum fjöl­miðlum. Við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv hefur fjallað tals­vert um hana. Í grein í blað­inu í fyrra­dag sagði stjórn­mála­skýr­and­inn Fritjof Jacobsen að þrátt fyrir þessa auknu skatt­byrðar myndu eig­endur lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna þó hafa „ráð á að kaupa sér Kleenex“ til að þerra tár sín yfir henni. 

Jacobsen sagði samt, og tók þá inn byggða­sjón­ar­mið á lands­byggð­inni í Noregi, að skatt­lagn­ing gæti  haft slæm áhrif á hinar dreifðu byggðir þar í landi. Jacobsen sagði: „Noregur á nokkra vell­auð­uga við­skipta­menn í lax­eld­is­iðn­að­inum sem hafa byggt upp tals­vert ríki­dæmi vegna aðgangs þeirra að norskum fjörðum. Að þessir aðilar eigi að borga meira til sam­fé­lags­ins í gegnum skatt­kerfið er gáfu­legt. En lax­eld­is­iðn­að­ur­inn er á sama tíma mik­il­vægur iðn­aður fyrir margar byggðir við strendur Noregs og skap lax­eld­is­risarnir störf, hag­vöxt og borga skatta til nær­sam­fé­lags­ins.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár