„Þessi úrgangsmál eiga að vera í lagi”

Auður Anna Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, segir það brand­ara að end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækið Terra hafi verið valið umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins 2020, á sama tíma og það var losa plast­meng­aðan úrgang á nátt­úru­minja­svæði.

„Þessi úrgangsmál eiga að vera í lagi”
Mikið magn plasts Magn þess plasts sem Terra los­aði á urð­un­ar­stað­inn í landi Spóa­staða er veru­legt. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Auður Anna Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, segir losun end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Terra á plast­meng­uðum úrgangi á nátt­úru­minja­svæði vera alvar­lega. Traust almenn­ings á end­ur­vinnslu minnki veru­lega þegar fyr­ir­tæki og sveit­ar­fé­lög sinni mála­flokknum ekki betur en raun beri vitni. 

„Þetta er nátt­úru­lega bara svaka­legt. Eins og með allt annað varð­andi plastið, sem við erum að kom­ast að bara á und­an­förnum árum. Þessi úrgangs­mál eiga að vera í lagi og við erum bara end­ur­tekið að sjá að þetta ein­falda grund­vall­ar­mál, að sjá um úrgang­inn, það getum við á Íslandi einu sinni ekki gert almenni­lega,” segir Auður Anna.

Aðspurð hvað henni finnst um að end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki sem var kjörið umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins, af Samtökum atvinnu­lífs­ins, hafi á sama tíma verið að losa plast­meng­aðan úrgang á nátt­úru­minja­svæði í landi Spóa­staða í Blá­skóga­byggð segir Auður að fyr­ir­tækið þurfi að standa sig mun betur í þessum málum.

„Það er nátt­úru­lega bara brand­ari. Það sýnir kannski að þau sem standa að umhverf­is­mál­unum þurfa að standa sig betur. Ég vona bara að Terra sé alvara í því að taka til hjá sér, í bók­staf­legri merk­ingu og þau reyni að standa sig betur. Þetta sýnir líka að bæði eft­ir­lit og starfs­leyfi, og jafn­vel við­ur­lög við að gera svona, því er greini­lega mjög ábóta­vant hjá okkur. Ef þeir hlutir væru í lagi þá væru nátt­úr­lega miklu minni líkur að svona atvik komi upp.”

„Það er nátt­úru­lega bara brand­ari”
Auður Anna Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar

Auður segir að lítil sveit­ar­fé­lög Íslandi þurfi fag­legan stuðn­ing frá rík­inu til að sinna úrgangs­málum og að sinna þeim rétt. „Við vitum að á Íslandi eru mörg lítil sveit­ar­fé­lög sem hafa lítið bol­magn til að sinna skyldum sínum sem lögð eru á herðar þeirra. Í svona mik­il­vægum málum þá þyrftu sveit­ar­fé­lögin að fá meiri stuðn­ing, ekki beinan fjár­hags­legan stuðn­ing heldur fag­legan stuðn­ing.”

Þá segir Auður að þegar svona til­felli koma upp að það geti haft veru­leg áhrif á traust almenn­ings á end­ur­vinnslu­iðn­að­inn í heild. „Ég veit hins vegar að almenn­ingur er mjög vilj­ugur að sinna úrgangs­málum mjög vel, bæði að draga úr sínum úrgangi og flokka hann rétt. En þegar svona hlutir koma upp, að þeir sem eiga að taka við úrgang­inum, geta ekki gert það almenni­lega og fylgt algjörum grunn­reglum eða lág­marks­kröfum, þá verður nátt­úru­lega erf­ið­ara fyrir almenn­ing að treysta því að það sem þeir gera skipti ein­hverju máli.” 

Svæðið sem Terra los­aði plast­meng­aðan úrgang er á nátt­úru­minja­skrá og segir Auður að það sé sér­lega alvar­legt að úrgang­ur­inn hafi verið los­aður á svo við­kvæmu svæði. „Það að svæði sé á nátt­úru­minja­skrá þýðir að nátt­úran þar sé sér­lega verð­mæt. Algjör­lega óháð því þá losar maður bara ekki úrgangi bara hvar sem er, það á bara að vera algjör­lega ljóst, það á að vera algjör lág­marks­krafa. Alveg sama hvort það sé Terra eða sveit­ar­fé­lagið sem gerir það, þá á þetta bara að vera algjör­lega á hreinu. En það er sér­lega alvar­legt að þetta er svæði sem er á nátt­úru­minja­skrá.“

Plast um alltBíll frá Terra sést hér losa plast­úr­gang á nátt­úru­minja­svæði í Blá­skóga­byggð.
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastið fundið

Heilbrigðiseftirlitið vissi víst af ólöglegri plasturðun við Skálholt
RannsóknPlastið fundið

Heil­brigð­is­eft­ir­litið vissi víst af ólög­legri plast­urðun við Skálholt

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands vissi í meira en þrjú ár af lög­brotum end­ur­vinn­nslu­fyr­ir­tæk­is­ins Terra án þess að aðhaf­ast neitt í mál­inu. Fram­kvæmda­stjóri eft­ir­lits­ins fékk sjálf senda ábend­ingu um málið en sagð­ist þremur árum seinna aldrei hafa heyrt af því áður. Hún segir ekki ástæðu til að beita við­ur­lögum gegn fyr­ir­tæk­inu.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár