975. spurningaþraut: 44 ára gamall köttur, heldur makráður

975. spurningaþraut: 44 ára gamall köttur, heldur makráður

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir sú fræga Shakespe­are-per­sóna sem konan til vinstri er að túlka?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Ernst Stavro Blofield er voða­legur glæpa­maður sem hefur í átta eða níu bíó­myndum reynt að ná meiri eða minni heims­yf­ir­ráðum en alltaf stendur hug­rakkur útsend­ari leyni­þjón­ustu einnar í veg fyrir honum. Hvað heitir sá?

2.  Leikrit eitt eftir Ólaf Hauk Sím­on­ar­son var frum­flutt í Þjóð­leik­hús­inu 1992 og varð afar vin­sælt. Áratug síðar var það kvik­myndað af Baltasar Kormáki og varð myndin einnig vin­sæl. Leik­ritið var svo sýnt aftur í Þjóð­leik­hús­inu 2017. Þar segir frá útgerð­ar­manni sem treystir börnum sínum ekki almenni­lega fyrir fyr­ir­tæk­inu þegar árin fær­ast yfir. Hvað heitir leik­ritið? 

3.  Einn lang­lífasti köttur heims birt­ist fyrst fyrir almenn­ings­sjónum árið 1978 eða fyrir 44 árum. Jim nokkur Davis er banda­rískur teikn­ari sem ber ábyrgð á kett­inum, sem er gulur að lit, latur og hyskinn, mat­gráð­ugur og hálf­gert kvik­indi stundum, og getur að minnsta kosti verið heldur kald­rifj­aður í tali. Hvað heitir þessi köttur, ann­að­hvort á ensku eða íslensku?

4.  Hvar var gerð mikil inn­rás þann 6. júní 1944? Svarið þarf að vera nákvæmt.

5.  Hvað hét æðsti yfir­for­ingi þeirrar inn­rásar?

6.  Hvað heitir stærsta og vatns­mesta fljótið sem fellur í Mexík­óflóa?

7.  Í hvaða núver­andi þétt­býl­is­stað hafði fyrsti land­læknir Íslands aðsetur?

8.  Hvaða breska hljóm­sveit sendi frá sér lagið Girls & Boys árið 1994 og náði lagið gríð­ar­legum vin­sældum — og nýtur enn?

9.  Hvað nefn­ist skipa­skurður einn mik­ill í Egifta­landi?

10.  Skurð­ur­inn er kenndur við bæ við syðra end­ann, en hvað heitir borgin við nyrðri end­ann við Mið­jarð­ar­hafið?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi snyrti­legi ungi herra­maður?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bond ... James Bond.

2.  Hafið.

3.  Grettir eða Garfield.

Hinn mak­ráði Grettir

4.  Á Normandý. Frakk­land dugar ekki.

5.  Eisenhower.

6.  Miss­issippi.

7.  Á Sel­tjarn­ar­nesi.

8.  Blur. Ef ein­hver kann­ast ekki við lagið, má sjá upp­runa­legt vídjóið hér.

Stelpur og strákar með Blur

9.  Súez.

10.  Port Saíd.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leik­konan er aug­ljós­lega að túlka lafði Makbeð.

Herrann ungi er Muhamed Ali hnefa­leika­kappi.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár