974. spurningarþraut: Jóladagsspurningarnar á náttfötunum!

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi átti afmæli á jóla­dag. Hvað hét hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var krýndur keis­ari í Róm á jóla­dag árið 800?

2.  Á jóla­dag 1979 gerði Rauði her­inn inn­rás í ... hvaða ríki?

3.  Á jóla­dag árið áður, 1978, höfðu Víetna­mar hins vegar farið í stór­sókn gegn Rauðu khmer­unum sem þá höfðu í nokkur ár ráðið ... hvaða ríki?

4.  Á jóla­dag 1989 voru hjón um sjö­tugt tekin af lífi í bænum Târ­goviște í hinu forna hér­aði Vallakíu. Hvað hétu hjónin? Eft­ir­nafn þeirra nægir.

5.  Hver leik­stýrði mynd­unum Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf?

6.  Jesúa er sagður fæddur í Betlehem. En hvar ólst hann upp?

7.  Í hvaða landi eru þrír hæstu fossar Evrópu?

8.  Hvað eru margir strengir á sellói?

9.  Hvaða reiki­stjarna er hulin þykkri skýja­slæðu sem felur brenn­heitt yfir­borð? 

10.  Á jóla­dag 1977 lést tæp­lega níræður kvik­mynda­leik­stjóri á heim­ili sínu í Sviss. Hann fædd­ist á Englandi, bjó lengi í Banda­ríkj­unum og gerði þar sín meist­ara­verk í kvik­mynda­list sem færðu gam­an­myndir upp á miklu hærra plan heldur en þær höfðu verið á áður en hann tók til starfa. Síðasta mynd hans hét Greifynjan af Hong Kong frá 1967 og þótti nú ekki mik­il­feng­leg miðað við gömlu meist­ara­verkin, en hvað hét þessi leik­stjóri?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá skjá­skot af sjón­varps­ávarpi sem flutt var 25. des­em­ber ... hvaða ár?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Karla­magnús.

2.  Afganistan.

3.  Kambódíu.

4.  Þetta voru Ceaușescu-hjónin. Þau hétu Nicolae og Elena.

5.  Þráinn Ber­tels­son.

6.  Í Nasaret.

7.  Noregi.

8.  Fjórir. Hlýðið til dæmis á sell­óið hérna.

9.  Venus.

10.  Chaplin.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Humphrey Bogart.

Og ávarp Gor­batévs þar sem hann sagði af sér sem for­seti Sov­ét­ríkj­anna og lagði þar með í raun Sov­ét­ríkin niður var flutt á jóla­dag 1991.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár