973. spurningaþraut: Gleðileg jól! Hér eru jólaspurningarnar!

973. spurningaþraut: Gleðileg jól! Hér eru jólaspurningarnar!

Gleðileg jól öll­sömul!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér eru Jósef, María og Jesú­barnið nýfætt. Við sjáum Jóhannes skír­ara gægj­ast (ansi ung­legan) upp úr ein­hverri holu og af ein­hverjum ástæðum eru fimm ítur­vaxnir berrass­aðir piltar í bak­grunn­inum. Þetta er eina svona hring­laga myndin sem varð­veist hefur eftir þennan til­tekna mynd­list­ar­mann en hann hafði reyndar dálítið gaman af að mála berrass­aða unga pilta, stundum. Hver var lista­mað­ur­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða jóla­sveinn kemur nú í morg­unsárið?

2.  Að fornu voru til miklu fleiri jóla­sveina­nöfn en þau 13 sem nú eru þekkt­ust. Hver af eft­ir­töldum nöfnum er EKKI þekkt sem jóla­sveina­nafn? Litli Pungur — Kletta­skora —  Baggalútur — Refur — Minka­leysir — Stein­grímur — Pönnu­skuggi — Kleinu­sníkir.

3.  Hvaða ópera eftir Verdi var frum­sýnd á aðfanga­dag 1871 í Kæró í Egifta­landi?

4.  Á þessum degi 1968 fór banda­rískt geim­far á braut um tunglið, fyrst mann­aðra geim­fara. Hvað nefnd­ist geim­farið? Hér verður númer að vera rétt!

5.  Stofn­andi Jesúíta­regl­unnar fædd­ist 24. des­em­ber 1471. Hvað hét hann?

6.  „En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keis­ara að skrá­setja skyldi alla heims­byggð­ina. Þetta var fyrsta skrá­setn­ingin er gerð var þá er ...“ Þá er hvað?

7.  Ann­að­hvort á aðfanga­dag eða jóla­dag 1975 stofn­aði bassa­leik­ar­inn Steve Harris rokk­hljóm­sveit sem átti eftir að slá heldur betur í gegn í þung­arokk­inu, ekki síst eftir að söngv­ar­inn (og flug­mað­ur­inn) Bruce Dickinson bætt­ist í hóp­inn. Hvað heitir þessi hljóm­sveit?

8.  Sagnir herma að á þessum degi árið 1613 hafi fimm­tíu manns farist í snjó­flóði þegar fólk var á leið til kirkju í firði einum norð­an­lands. Hvaða firði?

9.  „Yður er í dag frels­ari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks ...“ Ja, hvað á að hafa til marks?

10.  Hver skrif­aði þetta hér ofan­greint?

***

Síðari auka­spurn­ing:

„Barnið (Fæðing Krists á Tahítí).“ Hver mál­aði?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kerta­sníkir.

2.  Minka­leysir er ekki — svo vitað sé — jóla­sveinn.

3.  Aída.

4.  Appollo 8.

5.  Ignatius Loyola. Hvort nafn um sig gefur stig.

6.  „... Kýreníus var land­stjóri í Sýrlandi.“

7.  Iron Maiden.

8.  Siglu­firði.

9.  „Þér munuð finna ung­barn reifað og liggj­andi í jötu.“

10.  Lúkas.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fyrri mynd­ina mál­aði Michelangelo.

Þá seinni mál­aði Paul Gaugain.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár