Sjómaður í leit að föður sínum

Mikael Tamar Elíasson er 36 ára þriggja barna faðir, vél­stjóri og skáld í leit að blóð­föður sínum. Hann ólst upp hjá ömmu sinni fyrir vestan, missti ætt­ingja sína í bruna 15 ára gam­all og týndi sjálfum sér í vímu­efna­neyslu um tíma. Sjórinn lokkar og laðar en hann lenti í hættu þegar brot skall á bát­inn.

Sjómaður í leit að föður sínum

Mikael Tamar leitar nú að blóð­föður sínum. Hann er sonur íslenskrar konu og erlends manns, sem hann veit ekki hver er – eða var. „Þegar við vorum krakkar sá ég vini mína leita ráða hjá feðrum sínum, en ég átti engan pabba. Þær föð­urí­myndir sem komust mér næst fann ég í móð­ur­bræðrum mínum, sem eru þeir allra hörð­ustu vinnu­menn sem ég veit um og góðar fyr­ir­myndir. Auðvitað vildi ég vita hver pabbi minn væri en mamma hafði ekki svörin. Mér fannst ég bara vera hálfur.“

Á full­orð­ins­árum skildi hann betur hversu djúp­stæð áhrif það hafði á hann að þekkja ekki upp­runa sinn. Hann vildi vita hvaðan hann væri og hver faðir hans væri. „Fyrir þremur árum benti mamma mér á að það væri verið að selja DNA-próf í apó­teki, með aðgangi að gagna­banka sem heitir My Heritage. Ég tók þetta próf. Samkvæmt nið­ur­stöð­unni er eða var blóð­faðir minn frá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Matthildur Jóhannsdóttir skrifaði
    Ég mæli með að prófa " 23 and me" gagnabanki þeirra er mikið stærri, og það væri möguleiki að þrengja leitina frekar. Sem dæmi fylki eða bær.
    0
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    Fallegt viðtal og góð skilaboð í því. Gangi þér vel.
    0
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    ✨♥️
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár