Ísland með augum úkraínskrar flóttakonu

Tania Korolenko er ein þeirra rúmlega þúsund einstaklinga sem komið hafa til Íslands í leit að skjóli undan sprengju­regni rússneska innrásar­hersins eftir innrásina í Úkraínu. Heima starf­rækti hún sumar­búðir fyrir úkraínsk börn, kenndi ensku og gaf fyrir ekki margt löngu út smásagna­safn. Hún hefur haldið dagbók um komu sína og dvöl á Íslandi og ætlar að leyfa lesendum Stundarinnar að fylgjast með kynnum flótta­konu af landi og þjóð.

„Mig hefur alltaf langað til Íslands,“ segir Tania Korolenko, sem er nú komin til Íslands, þó vissulega hefði hún kosið að ferðast hingað við allt aðrar aðstæður en þær sem fylgja því að flýja heimili sitt. 

Hún er fædd og uppalin í litlum smábæ, í 200 kílómetra fjarlægð frá höfuð­borginni Kænugarði, en hefur búið í úthverfi borgarinnar öll sín fullorðinsár.

„Upphaf­lega ætlaði ég að vera í borginni og þreyja þannig innrásina. Mig langaði einhvern veginn ekki að fara, heldur að upplifa þetta,“ segir Tania sem er einhleyp en á foreldra sem enn búa í heimabæ hennar, sem enn sem komið er hefur sloppið tiltölu­lega vel frá rússnesku innrásinni. Foreldrar hennar óttuðust eðlilega um hana eftir því sem frá leið og árásir Rússa færðust nær Kænugarði. Hún fór því til foreldra sinna en ákvað svo að leita til Evrópu. Fyrst til Belgíu, þar sem hún flakkaði milli hótela …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Vonandi hefur hún fundið sér almennilega skó.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Jæja þá fær Tania þessa ósk sína uppfylta.
    "Mig langar að sjá hraun gusast úr eldfjalli."
    0
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Þetta er spennandi, verður hún á ákveðnum dögum?
    4
  • Matthildur Jóhannsdóttir skrifaði
    Þetta reddast er oft þýtt rangt. (Stundum af ungum Íslendingum sem þekkja það lítið.)

    Við finnum lausn á þessu. Er rétt þýðing. Hugsuð sem huggun í örvæntingu.

    Ég hef hitt tugi Útlendinga sem halda að það þíði......... mañana Eða seinna, algert kæruleysi.
    Sérstaklega fólk frá Ameríku suður og norður.
    Höldum sjó, þetta reddast.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár