„Dansinn er mikilvægur því hann veitir flestum mikla gleði“

Dansaktí­vistar berj­ast fyrir dans­list­inni, með því að bjóða fólki að dansa með sér. Reynsla þeirra sem sam­tíma­dans­ara og nem­enda við Lista­há­skóla Íslands, sé að dans­inn mæti alls staðar afgangi í íslensku sam­fé­lagi. Meira að segja á skemmti­stöðum.

„Dansinn er mikilvægur því hann veitir flestum mikla gleði“
Olga Maggý Erlends­dóttir og Rebekka Sól Þór­ar­ins­dóttir Dans­ar­arnir benda á að íslensk dans­list standi höllum fæti en hún mætir oft afgangi þegar kemur að opin­berum stuðn­ingi við list­grein­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Dansaktí­vist­arnir Olga Maggý Erlends­dóttir og Rebekka Sól Þór­ar­ins­dóttir segja að skapa þurfi fleiri dans­rými í íslensku sam­fé­lagi. Íslend­ingar séu eft­ir­bátar ann­arra þjóða þegar kemur að aðgengi að dans­rýmum fyrir almenn­ing. Næturlíf Reykja­víkur geri ekki ráð fyrir dans­andi fólki enda séu skemmti­staðir mið­bæj­ar­ins ekki hann­aðir með dans í huga. „Sem dæmi þá er ekki einn ein­asti skemmti­staður á Íslandi til­eink­aður því að gefa fólki nógu mikið pláss til að geta notið þess að dansa. Við erum komnar með nóg af því að reyna að dansa í troðn­ingi á Prikinu eða Röntgen, allar útsull­aðar eftir að fólk slettir áfengi úr glösum yfir okkur. Þetta er ekki boð­legt lengur,“ segir Olga Maggý.

Olga Maggý og Rebekka Sól telja að skortur á dans­rýmum í sam­fé­lag­inu sé hluti af stærra vanda­máli varð­andi dans­list­ina á Íslandi. Reynsla þeirra af sam­tíma­dans­braut Lista­há­skóla Íslands og atvinnu­dansi hér á landi sýni að dans­inn sé neðst á lista allra …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár