Tveir stjórnendur selja fyrir samtals 2,3 milljarða í Arctic Fish til Síldarvinnslunnar

Eign­ar­halds­fé­lag Sigurðar Pét­urs­sonar, eins stofn­anda og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Arctic Fish, hefur selt hluta­bréf í félag­inu fyrir tæp­lega 1.900 millj­ónir króna. Núver­andi fjár­mála­stjóri lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins, Neil Shiran Þórisson, selur nú í félag­inu fyrir rúm­lega 440 millj­ónir króna. Hann seg­ist ekki vera að hætta hjá félag­inu en að óvissa um fram­tíð­ar­eign­ar­hald félags­ins hafi spilað inn í ákvörðun hans.

Tveir stjórnendur selja fyrir samtals 2,3 milljarða í Arctic Fish til Síldarvinnslunnar
Stofn­andi og frum­kvöð­ull Sigurður Pét­urs­son er einn af stofn­endum Arctic Fish og einn af frum­kvöðl­unum í þeirri bylgju sjó­kvía­eldis á Íslandi sem hófst í kjöl­far efna­hags­hruns­ins. Hann hefur nú selt sig út úr fyr­ir­tæk­inu á Ísafirði sem hann átti stóran þátt í að koma á kopp­inn.

Tveir núver­andi og fyrr­ver­andi stjórn­endur í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish á Ísafirði hafa selt hluta­bréf í félag­inu til Síld­ar­vinnsl­unnar fyrir rúm­lega 172 millj­ónir norskra króna eða 2,3 millj­arða íslenskra króna. Um er að ræða eign­ar­halds­fé­lag stofn­anda og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Arctic Fish, Sigurð Pét­urs­son, og núver­andi fjár­mála­stjóra félags­ins, Neil Shiran Þórisson. Félag Sigurðar, og við­skipta­fé­laga hans, selur bréf til Síld­ar­vinnsl­unnar fyrir rúm­lega 1.869 millj­ónir króna og Neil Shiran selur fyrir rúm­lega 440 millj­ónir króna. Við­skipti þess­ara aðila koma fram í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­innar. 

Við­skiptin hafa vakið nokkra athygli þar sem Síld­ar­vinnslan tekur með kaup­unum stórt skref inn í sjó­kvía­eldi á eld­is­laxi á Íslandi. Síld­ar­vinnslan mun eftir kaupin eiga rúm­lega 34 pró­senta hlut í félag­inu á móti rúm­lega 51 pró­senta hlut norska lax­eld­is­ris­ans Norway Royal Salmon. Síld­ar­vinnslan, sem útgerð­ar­fé­lagið Samherji á ríf­lega þriðj­ungs­hlut í, er ekki þekkt fyrir að vera þög­ull minni­hluta­eig­andi í fyr­ir­tækjum og hvað þá Samherji en stofn­endur félags­ins eru stærstu hlut­hafar Eim­skipa­fé­lags Íslands meðal ann­ars. 

Óvissa um framtíðareignarhald spilar inn í

Seldi hluta­bréf til Síld­ar­vinnsl­unnarNeil Shiran Þórisson, fjár­mála­stjóri Arctic Fish, seldi hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu til Síld­ar­vinnsl­unnar fyrr í júní.

Neil Shiran segir í sms-skila­boðum til Stund­ar­innar að sala hans á hluta­bréfum í Arctic Fish feli ekki í sér að hann sé að hætta hjá félag­inu. Hann seg­ist hafa keypt bréfin á geng­inu 62,1 en að hann selji þau nú á geng­inu 100 þannig að sölu­hagn­aður mynd­ist í við­skipt­unum. Þó bætir hann við að hluta­bréfin hafi einnig verið skuld­sett en að lán­veit­ingar hafi ekki verið frá hlut­höfum Arctic Fish.

Neil Shiran segir aðspurður að óvissa um eign­ar­hald á Arctic Fish til fram­tíðar spili  inn í ákvörðun hans að selja hluta­bréfin. „Það er erfitt að útskýra í stuttu máli. En það má líka segja að óvissa um end­an­legt eign­ar­hald und­an­farið hafi haft sitt að segja. Það er að segja hvernig NRS/NTS/Salmar-málin hafa verið.“ 

„En það má líka segja að óvissa um end­an­legt eign­ar­hald und­an­farið hafi haft sitt að segja“
Neil Shiran Þórisson, fjár­mála­stjóri Arctic Fish

Eins og Stundin hefur greint frá stendur til að norskur eig­andi Arnarlax á Bíldudal kaupi norskan eig­anda Arctic Fish og hefur verið rætt um mögu­legan sam­runa félag­anna í ljósi þessa. Eigandi Arnarlax, Salmar, getur hins vegar ekki úttalað sig um sam­run­ann eða tekið ákvörðun um hann fyrr en eftir að Salmar hefur eign­ast Norway Royal Salmon. 

Í við­tali við norskt blað í byrjun júní sagði nýráð­inn for­stjóri Salmar, Linda Lit­lekalsøy Aase, að afstaða til sam­runa lægi ekki fyrir. „Við höfum ekki tekið afstöðu til slíkra hug­mynda ennþá. Þar til annað kemur í ljós virðum við sam­keppn­is­regl­urnar og við erum sam­keppn­is­að­ilar á mark­aði dag hvern. Bæði félögin eru starf­andi á Vest­fjörð­unum á Íslandi og eiga nú þegar í góðri sam­vinnu á ýmsum stigum virð­is­keðj­unnar.“   

Eitt af því sem gæti gerst ef Arnarlax og Arctic Fish sam­ein­ast er að starfs­mönnum og stjórn­endum verður fækkað í ljósi þeirra sam­legð­ar­á­hrifa sem slíkur sam­runi hefði í för með sér. Á þess­ari stundu er óljóst hvort kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á rúm­lega þriðj­ungs­hlut í Arctic Fish hafi ein­hver áhrif á mögu­legan sam­runa þess­ara tveggja lax­eld­is­fyr­ir­tækja á Vest­fjörðum. 

Hætti og stofnandi fræðslumiðstöð um laxeldi

Félag Sigurðar Pét­urs­sonar og við­skipta­fé­laga hans, Novo, keypti bréfin í Arctic Fish á tæpar 90 millj­ónir króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2020. Þar eru hluta­bréfin bók­færð á kostn­að­ar­verði. Félagið var ekki mikið skuld­sett og var með lang­tíma­skuldir upp á 86 millj­ónir króna það ár. Miðað við sölu­verð hluta­bréf­anna í Arctic Fish og skulda­stöðu hagn­ast félagið mjög vel á við­skipt­unum með hluta­bréfin í Arctic Fish. Tæplega 1.800 millj­óna króna mis­munur er á verð­inu sem félagið greiddi fyrir hluta­bréfin í Arctic Fish og sölu­verð­inu. 

„Arctic Fish var skráð á markað og farið að ganga vel, og þá fannst mér mínu hlut­verki vera lokið“
Sigurður Pét­urs­son, stofn­andi Arctic Fish

Stundin gerði ítrek­aðar til­raunir til að ná tali af Sigurði Pét­urs­syni til að spyrja hann um við­skiptin en án árang­urs. Blaðið náði hins vegar tali af einum með­hlut­hafa Sigurðar í Novo ehf., Ingi­björgu Val­geirs­dóttur, en hún vildi ekki tjá sig um við­skiptin. „Ég hef bara engin komment á þetta. No komment, ekk­ert frá mér,“ segir Ingi­björg. Tveir aðrir hlut­hafar eiga Novo með þeim, Guð­mundur Stef­áns­son og Þóra Vala Har­alds­dóttir. 

Sigurður hætti sem fram­kvæmda­stjóri hjá Arctic Fish í fyrra­sumar og stofn­aði fræðslu­mið­stöð um fisk­eldi í Reykja­vík sem heitir Lax-inn. Í við­tölum hefur hann líst því að hann hafi talið sínu hlut­verki hjá Arctic Fish vera lokið. „Ég er frum­kvöð­ull í mér [...] Arctic Fish var skráð á markað og farið að ganga vel, og þá fannst mér mínu hlut­verki vera lokið. Ég er hættur þar sem starfs­maður þótt ég eigi ennþá hlut í fyr­ir­tæk­inu,“ sagði hann í einu slíku í vor.

Nú hefur Sigurður hins vegar selt sig út úr fyr­ir­tæk­inu sem hann stofn­aði og rak í ára­tug. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár